Fara í efni

Fréttir

Velheppnuð ráðstefna um forvarnir og starfsendurhæfingu

Ráðstefnan var fjölsótt og heppnaðist í alla staði mjög vel. Boðið var upp á mjög áhugaverða fyrirlesara, erlenda jafnt sem innlenda, sem fjölluðu m.a. um heilsu, vinnu, forvarnir, virkni, snemmbærni, stjórnun og samfélagið frá fjölbreyttum sjónarhornum.

Styrkjum VIRK úthlutað

Fjöldi úrræða hjá VIRK hafa orðið til vegna þessara styrkveitinga í gegnum árin. Alls bárust 26 umsóknir þetta árið og 15 þeirra fengu styrk.

Velferð á vinnumarkaði Ábyrgð okkar allra

Ráðstefna VIRK 28. október um forvarnir og starfsendurhæfingu og hvernig við komum í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðveldum endurkomu inn á vinnumarkað.

Að styðja fólk aftur til virkni á vinnumarkaði

Haustið 2025 hófst tilrauna- og samstarfsverkefni VIRK og Vinnumálastofnunar með það að markmiði að styðja einstaklinga sem hafa verið lengi atvinnulausir. Í verkefninu er þátttakendum boðin markviss forvarnaþjónusta á vegum VIRK sem miðar að því að efla virkni, styrkja vinnugetu og auka líkur á endurkomu á vinnumarkaði.

Vinna getur verið verndandi þáttur

„Ég hef unnið hjá VIRK í fimm ár og starf mitt hér er margþætt. Hvað matið snertir kem ég í fyrsta lagi að inntöku fólks í þjónustu hjá VIRK. Þar er ég skoða hvers konar heilsubrest viðkomandi er að glíma við, reyna að átta mig á því hvað er að koma í veg fyrir að einstaklingur geti sinnt vinnu sinni og meta hvort starfsendurhæfing sé viðeigandi á þeim tímapunkti. Starfsendurhæfing er alltaf miðuð út frá einstaklingnum og hans hindrunum til vinnu."

IPS atvinnutenging

Individual placement and support (IPS) er gagnreynd aðferð sem byggir á því að styðja einstaklinga til þess að öðlast og viðhalda samkeppnishæfu launuðu starfi á opnum vinnumarkaði.

Þróun forvarnaþjónustu - VIRK í starfi!

Í byrjun árs 2025 var stigið mikilvægt skref með innleiðingu nýrrar forvarnaþjónustu VIRK sem miðar að því styðja einstaklinga í starfi sem eru farnir að finna fyrir heilsutengdum askorunum. Þjónustan er liður í aukinni áherslu á snemmtæka íhlutun með það að markmiði að efla vinnugetu, bæta líðan og koma í veg fyrir mögulegt brotthvarf af vinnumarkaði.

Vonglaðir halda til vinnu á ný

Tinna Sigurbjörg er atvinnulífstengill hjá VIRK á Suðurnesjum. Aðsetur hennar er í Heilsugæslunni Höfða í Reykjanesbæ sem er útibú frá Höfða í Reykjavík.

Hafa samband