Velheppnuð ráðstefna um forvarnir og starfsendurhæfingu
Velheppnuð ráðstefna um forvarnir og starfsendurhæfingu
Velferð á vinnumarkaði - Ábyrgð okkar allra var yfirskrift ráðstefnu sem VIRK stóð fyrir um tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu í vinnu.
Ráðstefnan sem haldin var á Hilton Reykjavík miðvikudaginn 28. október var fjölsótt og heppnaðist í alla staði mjög vel. Boðið var upp á mjög áhugaverða fyrirlesara, erlenda jafnt sem innlenda, sem fjölluðu m.a. um heilsu, vinnu, forvarnir, virkni, snemmbærni, stjórnun og samfélagið frá fjölbreyttum sjónarhornum.
Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni voru þeir Jari Hakanen, rannsóknarprófessor við Vinnuverndarstofnun Finnlands og dósent við Helsinki-háskóla sem fjallaði um vellíðan starfsfólks – áskoranir, lausnir og hagnýt verkfæri og Lode Godderis, læknir og prófessor við KU Leuven og forstjóri IDEWE sem ræddi nýja sýn á samfellu starfsgetu og endurkomu til vinnu.

Rangar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti opnunarávarp. Vigdís Jónsdóttir forstjóri fór yfir þróun VIRK, Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs, ræddi mikilvægi snemmbærni og forvarnaáherslur VIRK og Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar og þróunarstjóri fór yfir áhrif heilsubrests á getu og atvinnuþátttöku.
Gylfi Jónu Arnbjarnarson ræddi samtal aðila vinnumarkaðarins um vinnuvernd og eflingu starfsgetu, Margrét Ólafía Tómasdóttir leit á starfsendurhæfingu frá sjónarhóli heimilislæknisins og Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri atvinnutengingar hélt í lokin utan um samtal frummælenda um áskoranir og tækifærin framundan.
Eysteinn Eyjólfsson samskiptastjóri sá um ráðstefnustjórn.
Sjá myndir frá ráðstefnunni á Facebooksíðu VIRK og upptökur af innleggjum hér.