Hvernig tryggjum við farsæla atvinnuþátttöku?
Hvernig tryggjum við farsæla atvinnuþátttöku?
Ráðstefna VIRK um forvarnir og starfsendurhæfingu 28. október
Tækifæri í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkað verður umfjöllunarefni ráðstefnu sem VIRK stendur fyrir 28. október nk.
Boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlesara og áhugaverð innlegg á ráðstefnunni, lokadagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
Hakanen og Godderis aðalfyrirlesarar
Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni verða þeir Jari Hakanen, rannsóknarprófessor í vinnusálræði við Finnish Institute of Occupational Health og dósent við Háskólann í Helsinki og Lode Godderis, læknir og prófessor í vinnu- og umhverfislæknisfræði við KU Leuven í Belgíu og forstjóri IDEWE.
Nánar um Jari Hakanen, áherslur hans og rannsóknir
Jari Hakanen er einn af fremstu fræðimönnum á alþjóðavísu á sviði vinnusálfræði (work and occupational psychology) og starfar í dag sem rannsóknarprófessor við Finnish Institute of Occupational Health. Hann er jafnframt dósent við Háskólann í Helsinki. Rannsóknir hans hafa haft mikil áhrif á skilning á tengslum vinnu, vellíðan og starfsgetu.
Jari er sérstaklega þekktur fyrir rannsóknir sínar á jákvæðum og verndandi þáttum vinnu, einkum helgun (work engagement), kulnun (burnout) og jafnvægi þegar kemur að kröfum og bjargráðum í starfi (Job Demands–Resources model). Hann hefur lagt áherslu á að skoða ekki einungis hvað veldur ánægju og vanlíðan í vinnu, heldur hvað styður við heilsu, seiglu og sjálfbæra atvinnuþátttöku (sustainable working life).
Rannsóknir hans sýna meðal annars hvernig sterk félagsleg tengsl, stuðningur stjórnenda, tilgangur í starfi og raunhæfar kröfur geta aukið starfsánægju, dregið úr líkum á vanlíðan og stutt fólk í að vera lengur og heilbrigðara á vinnumarkaði - nálgun sem er sérstaklega mikilvæg þegar kemur að bæði starfsendurhæfingu og forvörnum.
Styrkur Jari liggur m.a. í því að tengja saman vísindi og hagnýta nálgun. Hann talar jafnt til rannsakenda, stjórnenda og fagfólks sem vinnur beint með fólki. Hann mun gefa okkur dýrmæta innsýn í það hvernig jákvæðir þættir í vinnu (positive work factors) geta verið lykillinn að ekki bara árangursríkum forvörnum heldur líka endurkomu til vinnu í kjölfar starfsendurhæfingar.
Nánar um Lode Godderis, áherslur hans og rannsóknir
Lode Godderis er læknir og prófessor í vinnu- og umhverfislæknisfræði (Occupational and Environmental Medicine) við KU Leuven í Belgíu. Hann er jafnframt forstjóri IDEWE, mikilvægri stofnun í Evrópu á sviði vinnuverndar, vinnuheilsu og forvarna (prevention and protection at work).
Hann hefur mikla þekkingu þegar kemur að því að tengja akademíska rannsóknarvinnu við stefnumótun/framkvæmdir í vinnuumhverfinu.
Rannsóknir Lode beinast að tengslum vinnu og heilsu (work–health interaction), þar á meðal áhrifum vinnuálags, streitu og umhverfisþátta á líkamlega og andlega heilsu. Hann hefur einnig lagt mikla áherslu á snemmtækar forvarnir (early prevention), áhættugreiningar og þróun kerfa sem styðja við heilbrigða atvinnuþátttöku áður en fólk veikist eða dettur út af vinnumarkaði.
Í starfi sínu hjá IDEWE vinnur hann náið með fyrirtækjum, stjórnendum og opinberum aðilum að því að þróa kerfisbundnar lausnir sem tengja saman vinnuvernd, heilsueflingu og starfsgetu.
Þessi reynsla gerir Lode að sérstaklega áhugaverðan fyrirlesara varðandi það hvernig stór kerfi og stofnanir geta haft áhrif. Hann hefur einmitt fjallað um það hvernig samvinna ólíkra kerfa, heilbrigðiskerfis, vinnumarkaðar og tryggingakerfa, geta haft mikilvæg áhrif og dregið úr líkum á veikindafjarveru.
Ráðstefnan er m.a. ætluð atvinnurekendum og stjórnendum og þeim sem koma að starfsendurhæfingu og forvörnum t.d. ráðgjöfum, sérfæðingum og þjónustuaðilum VIRK, sérfræðingum í endurhæfingu innan trygginga- og heilbrigðisgeirans, rannsakendum og starfsmönnum stéttarfélaga.
Ráðstefnan fer að hluta fram á ensku og verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 28. október - takið daginn frá!