Ung VIRK - Stuðningur við unga einstaklinga í átt að aukinni færni til að takast á við nám eða vinnu
Ung VIRK - Stuðningur við unga einstaklinga í átt að aukinni færni til að takast á við nám eða vinnu
Svandís Nína Jónsdóttir sviðsstjóri
Elín Steinarsdóttir verkefnastjóri
Vera Óðinsdóttir sérfræðingur
Berglind Stefánsdóttir rannsóknar- og þróunarstjóri
Þjónustuleið fyrir ungt fólk
Ung VIRK er þjónustuleið við ákveðinn hóp hjá VIRK sem var sett á laggirnar árið 2019. Verkefnið var þróað til að bregðast við þörfum ungs fólks með skerta starfsgetu og miðar að því að bæta lífsgæði, auka virkni og styðja við þátttöku í námi eða á vinnumarkaði.
Á þessum sex árum hefur verkefnið þróast og bæði þjónustan og úrræðin verið endurmetin í takt við þörfina hverju sinni. Lögð er áhersla á snemmtækan og samfelldan stuðning þar sem markmiðið er að grípa einstaklinga áður en langvarandi fjarvera frá vinnu eða námi festist í sessi.
Ung VIRK vinnur með ungu fólki á aldrinum 16–29 ára sem glímir við fjölþættan vanda og hefur löngun til að stefna aftur í nám eða til vinnu. Sérstök áhersla er lögð á heildræna nálgun þar sem horft er til virkni og framtíðarmöguleika frekar en ákveðinna sjúkdómsgreininga. Einstaklingsmiðuð áætlun liggur ávallt fyrir til grundvallar þjónustu VIRK.
Í dag skilgreinir VIRK hópinn út frá eftirfarandi viðmiðum:
- Hafa grunnskólapróf eða minna (ekki lokið stúdentsprófi eða sambærilegu)
- Eru með litla eða brotna vinnusögu og/eða hafa verið langan tíma frá vinnumarkaði (u.þ.b. 6 mánuði)
- Glíma við heilsubrest, t.d. andlegan eða líkamlegan vanda
VIRK veitir ungmennum í þessum hópi ýmsan stuðning umfram þá þjónustu sem venjulega er veitt í starfsendurhæfingu. Lögð er áhersla á að hafa biðtíma sem stystan og koma þeim að hjá ráðgjafa VIRK sem fyrst þar sem þau fá þéttara utanumhald hjá sínum ráðgjafa og meiri sveigjanleika í þjónustunni.
Í Ung VIRK starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga, ráðgjafa og atvinnulífstengla sem vinna saman að því að styðja einstaklinga í átt að aukinni færni til að takast á við nám eða vinnu.
Í Ung VIRK starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga, ráðgjafa og atvinnulífstengla sem vinna saman að því að styðja einstaklinga í átt að aukinni færni til að takast á við nám eða vinnu.
Ung VIRK verkefnið er liður í stefnu VIRK um að efla snemmtæka íhlutun og draga úr líkum á varanlegri jaðarsetningu ungs fólks. Með samþættri nálgun og nánu samstarfi við aðra þjónustuaðila er leitast við að styðja einstaklinga til sjálfbærrar þátttöku í samfélaginu.
Það er fjölbreyttur hópur sem fellur undir skilgreininguna Ung VIRK en þau eiga það sameiginlegt að glíma við einhvern heilsubrest sem hefur leitt til þess að þau hafa flosnað upp úr námi og átt erfitt með að fóta sig á vinnumarkaði. Ungir einstaklingar sem sækja um hjá VIRK óska oft eftir að snúa aftur í nám til að auka möguleika sína á vinnumarkaði eða jafnvel stefna á frekara nám á háskólastigi eftir að stúdentsprófi lýkur.
Tölulegar upplýsingar
Á mynd 1 má sjá tölulegar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem hófu þjónustu í Ung VIRK á árunum 2020-2025 sem og fjölda þeirra sem luku þjónustu. Ákveðinn stígandi hefur verið í fjölda þeirra sem sækja þjónustuna frá árinu 2022. Þetta er í takt við almenna fjölgun sem hefur verið á síðastliðnum árum hjá VIRK.

Líkt og kom fram hér að ofan eru ákveðnar forsendur fyrir þjónustunni hvað varðar vinnu og námssögu einstaklinga. Alltaf er þó byggt á heildrænu mati á aðstæðum hvers einstaklings svo þessir þættir standa ekki einir og sér sem forsenda þjónustu heldur þarf að skoða alla þætti í samhengi. Í Ung VIRK hópnum sem hóf þjónustu á árunum 2023-2025 hafði stærstur hluti þeirra hafið bóknám til stúdentsprófs, iðnnám eða starfsnám í framhaldsskóla en ekki lokið náminu, eða 56%. Alls höfðu 29,6% lokið grunnskólaprófi en 6,7% ekki lokið grunnskóla.

Þegar sótt er um þjónustu VIRK getur staða einstaklinga verið mismunandi. Á mynd 3 má sjá dreifingu þjónustuþega hvað varðar tíma frá vinnu við upphaf þjónustu. Hér er um að ræða alla þá sem voru ekki starfandi þegar sótt var um þjónustuna.
Alls höfðu 31,3% einstaklinga í Ung VIRK verið frá vinnu í 0-6 mánuði áður en þeir hófu þjónustu, samanborið við 56,8% annarra sem hófu þjónustu á sama tíma. Tæp 12% einstaklinga í Ung VIRK höfðu verið 3 ár eða lengur frá vinnu og 12,4% höfðu lítið sem ekkert verið starfandi.

Mikilvægt er að túlka niðurstöðurnar í samhengi við viðmið Ung VIRK sem og aldur. Sem dæmi getur ein af ástæðunum fyrir fjarveru frá vinnumarkaði verið sú að einstaklingurinn hafi verið í námi.
Á mynd 4 má sjá hvaða forsendur voru fyrir því að þjónustu lauk hjá VIRK. Hér er ekki verið að fjalla um framfærslu einstaklinga heldur meginstöðu þeirra við þjónustulok. Meirihluti þeirra sem lauk þjónustu Ung VIRK á þessum árum útskrifaðist í virkni, það er í vinnu, nám eða atvinnuleit. Einnig er áhugavert að sjá hlutfall þeirra sem luku þjónustu í námi í hópi Ung VIRK (11,7%) miðað við aðra sem luku þjónustu VIRK á sama tímabili (3,8%).
Aðeins er lítill hópur í Ung VIRK þar sem starfsendurhæfing telst fullreynd við þjónustulok, eða 7% samanborið við 13,8% hjá öðrum. Hjá einhverjum hluta ýkur þjónustu þeirra hjá VIRK með vísun í heilbrigðis- eða félagskerfi. Er það gert af mismunandi ástæðum, til dæmis vegna félagslegra áskorana eða nýtilkominna breytinga í heilsufari. Sumir í þessum hópi eru komnir vel áleiðis í sinni starfsendurhæfingu þrátt fyrir vísun í önnur kerfi. Einhverjir gætu þurft á sértækari þjónustu að halda til að geta lokið farsælli tengingu við vinnumarkað en aðrir koma aftur til VIRK í þjónustu síðar meir ef þörf er á.

Gott er að hafa í huga þegar staðan er metin við þjónustulok að í Ung VIRK er verið að veita stuðning við hóp sem hefur átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eða í námi og er vissulega að takast á við heilsubrest. Það getur verið óljóst við upphaf þjónustu hve vel einstaklingar ráða við þjónustuna en verkefnið Ung VIRK er liður í stefnu VIRK um að efla snemmtæka íhlutun og draga úr líkum á varanlegri jaðarsetningu ungs fólks.
Samantekt
Ung VIRK vinnur með ungu fólki á aldrinum 16–29 ára sem glímir við fjölþættan vanda og hefur löngun til að stefna í nám eða til vinnu. Um 200-300 einstaklingar hefja þjónustu í Ung VIRK ár hvert. Stærstur hluti þeirra hóf nám á framhaldsskólastigi en hafði ekki lokið því þegar það hóf þjónustu. Um 85% þeirra voru að takast á við andlegan vanda við upphaf þjónustu og um helmingur hópsins var meira en ár frá vinnumarkaði. En 11,1% hafði lítið sem ekkert verið á vinnumarkaði.
Meirihluti þeirra sem lauk þjónustu í Ung VIRK voru í virkni við útskrift, það er í vinnu, námi eða í atvinnuleit.
Meirihluti þeirra sem lauk þjónustu í Ung VIRK voru í virkni við útskrift, það er í vinnu, námi eða í atvinnuleit. Af þeim voru um 12% í námi sem er mun hærra hlutfall en almennt er hjá VIRK við þjónustulok. Meðal tímalengd þeirra í þjónustu var 15 mánuðir sem er litlu lengra en meðal tímalengd annarra sem voru í þjónustu á sama tíma.
VIRK hefur lagt mikla áherslu á að skapa tækifæri sem efla færni og getu þeirra einstaklinga sem tilheyra þessum hópi með það að markmiði að auka þátttöku þeirra á vinnumarkaði. Ung VIRK er leið fyrir ungt fólk sem þarf aukinn stuðning til að þróa hæfni sína og byggja upp getu til virkrar þátttöku til framtíðar.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.