Fara í efni

Ráðstefna VIRK 28. október

Ráðstefna VIRK um tækifæri í forvörnum og starfsendurhæfingu og hvernig við nýtum þau til þess að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu í vinnu.

Haldin á Hilton Reykjavík miðvikudaginn 28. október kl. 9-16. Húsið opnar kl. 8.00 og boðið verður upp á léttar veitingar í samverustundinni að lokinni ráðstefnunni. 

Ráðstefnan fer að hluta fram á ensku. Ráðstefnugjald er 12.000 kr., innifalið í því er morgunhressing, kaffiveitingar og hádegismatur.

Skráning á ráðstefnu hér

Dagskrá

9.00 Setning
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
 
9.10 VIRK þróun

Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK

9.40 Employee Well-being, Threats, and Workplace Solutions - Research and Practical Tools
Jari Hakanen, rannsóknarprófessor í vinnusálfræði við Vinnuverndarstofnun Finnlands og dósent við Háskólann í Helsinki

10.40 Kaffihlé/Heilsuhlé

11.00 Hvað kostar að bíða?
Af hverju snemmbær stuðningur við starfsgetu skiptir máli
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs VIRK

11.30 Heilsa. Færni. Vinna.
Um áhrif heilsubrests á getu og atvinnuþátttöku
Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri VIRK

12.00 Hádegisverður

13.00 From Prevention to Participation: Rethinking the Continuum of Work Ability and Return to Work
Lode Godderis, læknir og prófessor í vinnu- og umhverfislæknisfræði við KU Leuven í Belgíu og forstjóri IDEWE

14.00 Samtal aðila vinnumarkaðarins um vinnuvernd og eflingu starfsgetu
Gylfi Jónu Arnbjarnarson, M.Sc.

14.40 Kaffihlé/Heilsuhlé

15.00 Starfsendurhæfing séð með augum heimilislæknis
Margrét Ólafía Tómasdóttir, heimilislæknir og yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu

15.30 Áskoranir og tækifærin framundan
Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri atvinnutengingar VIRK leiðir samtal Jari Hakanen, Lode Godderis, Gylfa Jónu Arnbjarnarsonar, Margrétar Ólafíu Tómasdóttur og Vigdísar Jónsdóttur

16.00 Ráðstefnulok og samverustund

Ráðstefnustjóri: Eysteinn Eyjólfsson, samskiptastjóri VIRK

Nánar um fyrirlesara:

Jari Hakanen 

Jari Hakanen er einn af fremstu fræðimönnum á alþjóðavísu á sviði vinnusálfræði (work and occupational psychology) og starfar í dag sem rannsóknarprófessor við Vinnuverndarstofnun Finnlands. Hann er jafnframt dósent við Háskólann í Helsinki. Rannsóknir hans hafa haft mikil áhrif á skilning á tengslum vinnu, vellíðan og starfsgetu.

Jari er sérstaklega þekktur fyrir rannsóknir sínar á jákvæðum og verndandi þáttum vinnu, einkum helgun (work engagement), kulnun (burnout) og jafnvægi þegar kemur að kröfum og bjargráðum í starfi (Job Demands–Resources model). Hann hefur lagt áherslu á að skoða ekki einungis hvað veldur ánægju og vanlíðan í vinnu, heldur hvað styður við heilsu, seiglu og sjálfbæra atvinnuþátttöku (sustainable working life).

Rannsóknir hans sýna meðal annars hvernig sterk félagsleg tengsl, stuðningur stjórnenda, tilgangur í starfi og raunhæfar kröfur geta aukið starfsánægju, dregið úr líkum á vanlíðan og stutt fólk í að vera lengur og heilbrigðara á vinnumarkaði - nálgun sem er sérstaklega mikilvæg þegar kemur að bæði starfsendurhæfingu og forvörnum.

Styrkur Jari liggur m.a. í því að tengja saman vísindi og hagnýta nálgun. Hann talar jafnt til rannsakenda, stjórnenda og fagfólks sem vinnur beint með fólki. Hann mun gefa okkur dýrmæta innsýn í það hvernig jákvæðir þættir í vinnu (positive work factors) geta verið lykillinn að ekki bara árangursríkum forvörnum heldur líka endurkomu til vinnu í kjölfar starfsendurhæfingar.

Lode Godderis

Lode Godderis er læknir og prófessor í vinnu- og umhverfislæknisfræði (Occupational and Environmental Medicine) við KU Leuven í Belgíu. Hann er jafnframt forstjóri IDEWE, mikilvægri stofnun í Evrópu á sviði vinnuverndar, vinnuheilsu og forvarna (prevention and protection at work).

Hann hefur mikla þekkingu þegar kemur að því að tengja akademíska rannsóknarvinnu við stefnumótun/framkvæmdir í vinnuumhverfinu.

Rannsóknir Lode beinast að tengslum vinnu og heilsu (work–health interaction), þar á meðal áhrifum vinnuálags, streitu og umhverfisþátta á líkamlega og andlega heilsu. Hann hefur einnig lagt mikla áherslu á snemmtækar forvarnir (early prevention), áhættugreiningar og þróun kerfa sem styðja við heilbrigða atvinnuþátttöku áður en fólk veikist eða dettur út af vinnumarkaði.

Í starfi sínu hjá IDEWE vinnur hann náið með fyrirtækjum, stjórnendum og opinberum aðilum að því að þróa kerfisbundnar lausnir sem tengja saman vinnuvernd, heilsueflingu og starfsgetu.

Þessi reynsla gerir Lode að sérstaklega áhugaverðan fyrirlesara varðandi það hvernig stór kerfi og stofnanir geta haft áhrif. Hann hefur einmitt fjallað um það hvernig samvinna ólíkra kerfa, heilbrigðiskerfis, vinnumarkaðar og tryggingakerfa, geta haft mikilvæg áhrif og dregið úr líkum á veikindafjarveru.

Margrét Ólafía Tómasdóttir

Margrét Ólafía Tómasdóttir er starfandi sérfræðingur í heimilislækningum frá 2014.

Útskrift úr læknadeild 2007, Doktorspróf frá NTNU í Þrándheimi og HÍ 2017 um áhrif áfalla og krefjandi aðstæðna á heilsufar og fjölveikindi. 

Lektor við Læknadeild HÍ frá 2019. Yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

 

Berglind Stefánsdóttir

Berglind Stefánsdóttir er starfandi rannsóknar- og þróunarstjóri hjá VIRK, hefur unnið að starfsendurhæfingu hjá VIRK sl. 8 ár og komið að faglegu starfi og rannsóknum á þeim tíma.

Stundar nú einnig doktorsnám við Háskólann í Reykjavík þar sem viðfangsefnið er kulnun í starfi.

Er menntaður sálfræðingur frá 2013 og starfaði í klínísku starfi áður en hóf störf hjá VIRK.

Ragnar Þór Ingólfsson

Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra og tók við embætti ráðherra þann 11. janúar 2026. Hann hefur setið á Alþingi frá árinu 2024.

Sölustjóri o.fl. hjá Erninum 1992–2016. Formaður VR 2017–2024. Formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 2019–2024. Varaforseti ASÍ 2020–2024.

Í stjórn Borgarahreyfingarinnar 2009, í framboði fyrir Dögun 2016.

Í stjórn VR 2009–2024, formaður stjórnar 2017–2024. Í stjórn Landssambands verslunarmanna 2017–2024, formaður 2019–2024. Í miðstjórn og varaforseti ASÍ 2017–2024. Í stjórn Virk starfsendurhæfingar 2017–2023. Í stjórn Bjargs íbúðafélags síðan 2017, varaformaður 2020–2024, formaður síðan 2024.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2024 (Flokkur fólksins).

Formaður þingflokks Flokks fólksins 2025-2026.

Fjárlaganefnd 2025-2026 (formaður 2025-2026), framtíðarnefnd 2025, efnahags- og viðskiptanefnd 2025, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga 2025.

Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2025 (formaður 2025).

Gylfi Jónu Arnbjarnarson 

Gylfi Jónu Arnbjarnarson hefur M.Sc gráðu í hagfræði, stjórnun og opinberri stjórnsýslu frá CBS í Kaupmannahöfn. Hann starfaði sem aðalhagfræðingur hjá ASÍ 1992-1997, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. 1997-2001, framkvæmdastjóri hjá ASÍ frá ágúst 2001 og kosinn forseti ASÍ í október 2008 til október 2018.

Gylfi hefur síðan unnið sem ráðgjafi fyrir stéttarfélög, alþjóðlegur sérfræðingur fyrir Alþjóðavinnumálastofnunina (ILO) í Georgíu og Svartfjallalandi og sérfræðingur fyrir stjórnvöld við að móta virkar vinnumarkaðsaðgerðir til að lina áhrif Covid-19 faraldursins til 2002 og sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu með ábyrgð á gerð framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu starfsmenntunar. Undanfarið ár hefur hann starfað sem verkefnisstjóri skipaður af fjármála- og efnahagsmálaráðherra við endurskoðun aðila vinnumarkaðar á veikinda, slysa- og örorkubótakerfinu með áherslu á aukna þjónustu og endurkomu til vinnu.

Gylfi hefur verið meðlimur í mörgum stjórnum, nefndum og vinnuhópum bæði innanlands og utan í tengslum við starf sitt.

Guðrún Rakel Eiríksdóttir

Guðrún Rakel Eiríksdóttir er klínískur sálfræðingur að mennt og starfaði um árabil á sviði taugasálfræði áður en hún hóf störf hjá VIRK árið 2018. Hún er í dag sviðsstjóri forvarna hjá VIRK og hefur lagt ríka áherslu á snemmtækan stuðning við starfsgetu og hvernig vinnustaðir geta hjálpað fólki að vera áfram í vinnu þegar heilsan bregst.

Guðrún hefur unnið að rannsóknum og fræðslu um langvarandi álag, kulnun í starfi og vinnutengda líðan. Hún stundar doktorsnám við Háskólann í Reykjavík og rannsakar meðal annars taugasálfræðilega þætti kulnunar.

Hafa samband