Fara í efni

Virkur vinnustaður - Velheppnað málþing

Til baka

Virkur vinnustaður - Velheppnað málþing

Haustið 2011 fór VIRK af stað með Virkan vinnustað, metnaðarfullt 3ja ára þróunarverkefni um forvarnir á vinnustað og endurkomu einstaklinga til vinnu eftir veikindi eða slys. VIRK var umsjónar- og ábyrgðaraðili verkefnisins en fulltrúar frá aðilum vinnumarkaðarins sátu í stýrihópi þess. 12 fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í verkefninu, um 30 vinnustaðir innan mismunandi starfsgreina, svo sem verslunar og þjónustu, fræðslu- og heilbrigðisstarfsemi, framleiðslustarfsemi og fiskiðnaðar.

Kannaðar voru og prófaðar leiðir sem aukið gætu vellíðan starfsmanna á vinnustaðnum, minnkað fjarveru þeirra og auðveldað þeim endurkomu til vinnu eftir langtíma veikindi.  Viðamikil fræðsluáætlun var í gangi öll þrjú árin, bæði fyrir starfsfólk og stjórnendur svo að forvarnagildi viðverustefnu skili sér markvisst inn á vinnustaðinn. Einnig var fræðsla tengd innleiðingu sérstakra viðverusamtala sem er markvisst tæki til að hafa áhrif á skammtíma- og langtíma fjarveru. Í upphafi og lok verkefnisins fór fram vinnustaðagreining auk þess sem lykiltölum fjarvista var safnað öll þrjú árin hjá hverjum vinnustað fyrir sig og þær dregnar saman að því loknu.

Þróunarverkefninu lauk í árslok 2014 og niðurstöðurnar voru kynntar á málþingi 5. maí. Auk þess er bæklingur um fjarverustjórnun væntanlegur sem hægt verður að nálgast hér á heimasíðu VIRK. 

Á málþinginu fluttu erindi þau Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK, Jónína Waagfjörð deildarstjóri hjá VIRK, Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri Garðabæjar, Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri Norðlenska, Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, Álfheiður M. Sívertsen lögfræðingur hjá SA, Ragnheiður Stefánsdóttir mannauðsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri starfsendurhæfingarsviðs VIRK . Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent við Háskóla Íslands stjórnaði fundi af röggsemi og leiddi umræður.

Sjá má glærur sem fylgdu erindum frummælenda hér að neðan auk þess að upptökur á erindum þeirra má sjá á youtuberás VIRK.

Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK
Virkur vinnustaður og þróun hjá VIRK

Jónína Waagfjörð deildarstjóri hjá VIRK
Þróunarverkefni VIRK: Virkur vinnustaður

Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri Garðabæjar
Hver er galdurinn á bak við árangursríka viðverustjórnun?

Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri Norðlenska
Norðlenska – fjarvistir og viðbrögð

Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Virkur vinnustaður – Byggjum á verðmætri reynslu

Álfheiður M. Sívertsen lögfræðingur hjá SA
Hagur vinnustaða af fjarverustefnu

Ragnheiður Stefánsdóttir mannauðsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg
Og hvað svo? Hvað tók við eftir að Virkum vinnustað lauk?

Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri starfsendurhæfingarsviðs VIRK
Næstu skref – Tenging við starfsendurhæfingarferli VIRK


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband