Fara í efni

Styrkjum VIRK úthlutað

Til baka
Hluti styrkhafa ásamt Jónínu sviðsstjóra og Vigdísi forstjóra.
Hluti styrkhafa ásamt Jónínu sviðsstjóra og Vigdísi forstjóra.

Styrkjum VIRK úthlutað

VIRK veitir einu sinni á ári styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi.

Fjöldi úrræða hafa orðið til vegna styrkveitinga VIRK í gegnum árin sem kemur þjónustuþegum VIRK til góða í starfsendurhæfingu þeirra.

Alls bárust 26 umsóknir þetta árið og 15 þeirra fengu styrk.

Styrkir til rannsóknarverkefna

Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir - Breyting á fjölda og styrk heilahristingseinkenna í sérhæfðri endurhæfingu eftir heilahristing

Í rannsókninni á að framkvæma afturvirka greiningu og kortleggja einkennabreytingar hjá einstaklingum eftir höfuðáverka. Markmiðið er að lýsa hópnum, skoða hvaða þættir spá fyrir og tengjast breytingum á einkennum og skoða breytingar á alvarleika og fjölda einkenna yfir meðferðartímann

Rannveig S. Sigurvinsdóttir - Áföll, örorka og geðheilsa: Áhrif verndandi þátta

Markmið rannsóknarinnar er að meta algengi örorku og áhrifaþætti hennar meðal íslensku þjóðarinnar, eftir kyni og aldri. Notuð verða fyrirliggjandi spurningalistagögn úr langtíma rannsókninni „Geðheilsa karla og kvenna á Íslandi“ sem var lögð fyrir landsúrtak á árunum 2019 til 2022.

Styrkir til þróunarverkefna

Rakel Davíðsdóttir - Uppbygging eftir erfiða starfsreynslu (andlega og félagslega áhættuþætti) á vinnustað – þróun hópúrræðis innan starfsendurhæfingar

Þróa á hópúrræði sem aðstoðar einstaklinga við að vinna úr erfiðri reynslu sem þeir hafa orðið fyrir á vinnustað. Markmiðið er að skapa faglegt úrræði sem styður við bata, aukna starfsgetu og örugga endurkomu til vinnu.

Hreyfilausnir ehf. - Þróun blandaðs verkjaendurhæfingarúrræðis (staðbundið og streymi)

Þróa á verkjaendurhæfingarúrræðið, sem fara mun fram á stað og í streymi í fjar, fyrir einstaklinga með langvinna verki með áherslu á að auka virkni, bæta vinnugetu og lífsgæði. Markmiðið með úrræðinu er að auka fjölbreytni og framboð sérhæfðra úrræða í starfsendurhæfingu.

Styrkir til virkniúrræða

Fjölsmiðjan á Suðurnesjum

Atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 24 ára sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu.

Klúbburinn Geysir, Reykjavík

Atvinnumiðað endurhæfingarúrræði fyrir fólk með geðraskanir. Grundvallarmarkmið er að virkja félaga klúbbsins til starfa og koma þeim út í meiri samfélagsvirkni jafnt til atvinnu og menntunar sem og félagslegrar þátttöku.

Grófin geðrækt, Akureyri

Grófin er geðræktarstaður - úrræði fyrir fólk 18 ára og eldri, sem hefur upplifað geðræna erfiðleika og vill vinna að bata, með jafningjum í samvinnu við fagfólk Grófarinnar og reynda notendur.

Hjálparstarf kirkjunnar, Reykjavík

Virkni- og valdeflingarverkefni fyrir konur sem eru á örorkulífeyri með barn/börn á framfæri. Markmið verkefnisins eru að þátttakendur bæti sjálfsmynd og trú á eigin getu svo koma megi í veg fyrir félagslega einangrun og að þær komist út á vinnumarkaðinn eða í aðra virkni.

Hlutverkasetur, Reykjavík

Virknimiðstöð sem býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífsgæðin.

Hugarafl, Reykjavík

Samtök fólks með andlegar áskoranir og er notendastýrð starfsendurhæfing. Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar.

Klúbburinn Strókur, Selfossi

Strókur er bæði athvarf og virknimiðstöð þar sem einstaklingar eru studdir í virkni og bata eftir að hafa lent utan vinnumarkaðar sökum geðraskana og/eða eru að glíma við félagslega einangrun.

Vesturafl, Ísafirði

Geðræktar-og virknimiðstöðin Vesturafl hefur tvískipt hlutverk. Annars vegar að rjúfa félagslega einangrun og hvetja notendur til þátttöku í samfélaginu og hins vegar að reka Fjölsmiðju þar sem áhersla er lögð á ungt fólk (16-30 ára).

Afstaða - Réttindafélag, Reykjavík

Ráðgjöf og félagslegur stuðningur til handa föngum, fyrrum föngum og aðstandendum.

Aðrir styrkir

Gigtarfélag Íslands - Framtíð með gigt: Orkustjórnun og lífsstyrkur fyrir ungt fólk

Þróa á verkefni sem samanstendur af fjölbreyttri fræðslu með áherslu á orku-, verkja- og streitustjórnun sem styður við aukna þátttöku og vellíðan ungs fólks með gigt. Verkefnið er tvískipt – skólahópur og vinnuhópur og fræðsla sem hentar hvorum hópi fyrir sig til að takast á við vinnu eða nám þrátt fyrir áskoranir.

Olga Khodos - Geðheilbrigðisstuðningur fyrir úkraínska flóttamenn á Íslandi

Styrkur er veittur til að styðja við röð af málstofum um sálfræði og skyld hugvísindi fyrir Úkraínumenn á Íslandi. Málstofurnar eru haldnar í Háskóla Íslands í Veröld – Hús Vigdísar.

Auk ofangreindra styrkja þá veitir VIRK styrki árlega til úrræða fyrir þolendur kynferðisofbeldis, umsóknarfrestur er til og með 10. október n.k.

Sjá nánar um styrki VIRK hér.


Fréttir

28.04.2026
03.07.2026

Hafa samband