19.09.2013
Áhugahvetjandi samtal hjá VIRK
Verið er að innleiða notkun Áhugahvetjandi samtals við starfsendurhæfingarráðgjöf hjá VIRK. Nú hafa 22 ráðgjafar lokið
grunnnámskeið í Áhugahvetjandi samtali og í vetur er stefnt að því að allir ráðgjafar VIRK ljúki því
námskeiði. Stefnt er að framhaldsnámskeiði eftir áramót fyrir alla ráðgjafa og er það í fyrsta skipti á Íslandi
sem slíkt námskeið verður haldið.
Áhugahvetjandi samtal er einstaklingsmiðuð leið sem byggir á samvinnu og leiðbeiningu til að kalla fram og styrkja innri áhugahvöt einstaklinga til
breytinga. Aðferðin hefur gefist vel til að vinna með einstaklingum sem eru á báðum áttum varðandi breytingu eða eru tregir til, þar sem
það nýtir tvíbendni til að færa einstakling áfram í breytingarferlinu. Tvíbendni er það kallað þegar tvær leiðir
eru í boði sem báðar hafa ákveðna kosti og galla fyrir einstaklinginn. Áhugahvetjandi samtal skapar tækifæri fyrir einstaklinga að vega og meta
báðar leiðir án þess að dæma eða gagnrýna. Þannig má kalla fram og efla innri áhugahvöt til hegðunarbreytinga
(„ég ætla að breyta af því að ég vil það“) og skapa jákvæða breytingu á styttri tíma en almennt er
talið mögulegt Miller, 2009).