Fara í efni

Hamingja á vinnustöðum er alvörumál!

Til baka
Ingibjörg kynnir Velvirk
Ingibjörg kynnir Velvirk

Hamingja á vinnustöðum er alvörumál!

Húsfyllir, 400 manns, var á morgunfundi VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlitsins um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum á Grand Hótel þann 21. febrúar. 

Aðalfyrirlesari á morgunfundinum var Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum. Vanessa er viðskiptafræðimenntuð í grunninn, var endurskoðandi og vann m.a. hjá Morgan Stanley bankanum í UK þegar hún færði sig yfir í jákvæða sálfræði en hún er hér á landi að kenna í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands. 

Auk Vanessu þá ávarpaði Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifaði rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnti Velvirk verkefnið.

Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK, Alma D Möller landlæknir og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir forstjóri Vinnueftirlitsins rituðu undir viljayfirlýsingu um heilsueflingu á vinnustöðum undir lok morgunfundarins.

Dagskrá
Ávarp
Alma D. Möller, landlæknir
The serious business of happiness at work - sjá glærur
Vanessa King, Action for Happiness
Hamingja vinnandi fólks á Íslandi  - sjá glærur
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis
Er brjálað að gera? - sjá glærur
Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK

Fundarstjóri var Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands.

Sjá má upptöku af morgunfundinum hér.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband