Stöndum með ungu fólki
Stöndum með ungu fólki
Georg Páll Skúlasonar formaður stjórnar VIRK 2025-2026
VIRK er átján ára á árinu og því er við hæfi að leggja sérstaka áherslu á unga fólkið okkar þegar kemur að starfsendurhæfingu. Það gerum við með því að nálgast þann hóp sérstaklega í gegnum Ung VIRK.
Á árinu 2025 var þátttaka í starfsendurhæfingu með mesta móti. Nýir einstaklingar í þjónustu voru rúmlega 2500 en á síðustu þremur mánuðum fjölgaði umsóknum verulega og voru þær 27% fleiri en á sama tíma ársins á undan.
Það er mikilvægt að styðja við ungt fólk sem hefur hvorki fótað sig á atvinnumarkaði eða í skóla. Félagsleg einangrun og einmanaleiki, sem geta fylgt slíkri stöðu, geta aukið líkur á þróun á geðrænum vanda. Því er sérstaklega mikilvægt að grípa þennan hóp snemma og veita markvissan stuðning. Ung VIRK er sérsniðin þjónustuleið fyrir 16–29 ára einstaklinga með litla náms- eða vinnusögu, sem þurfa þétt utanumhald, eiga erfitt með að haldast í starfi eða námi, eða þurfa einstaklingsmiðaðan stuðning við atvinnuleit eða námsval.
VIRK hefur á liðnum árum sett fókus á atriði sem skipta miklu máli þegar fólk er að komast til baka á vinnumarkað eftir mislanga fjarveru vegna veikinda, þannig vakti átakið Kombakk mikla athygli. Hjá atvinnutengingu VIRK eru mynduð tengsl við fyrirtæki, sem eru tilbúin að taka á móti fólki sem er að koma til baka eftir starfsendurhæfingu. Það þurfa margir samspilandi þættir að ganga upp þegar fólk hefur verið lengi frá vinnu til að finna sig aftur og byggja sig upp í 100% þátttöku.
Einmanaleiki er ein af þeim áskorunum sem geta fylgt því að detta út af vinnumarkaði.
Atvinnutengingin er eins konar brú á milli endurhæfingar og atvinnulífs. Í gegnum þetta samstarf er ekki einungis verið að útvega einstaklingum störf og auðvelda þeim endurkomu inn á vinnumarkaðinn heldur einnig að efla samfélagið með aukinni atvinnuþátttöku.
Einmanaleiki er ein af þeim áskorunum sem geta fylgt því að detta út af vinnumarkaði. Vinnan veitir okkur ekki aðeins tekjur, heldur líka daglega rútínu, félagsleg tengsl og tilfinningu fyrir tilgangi. Þegar fólk fer tímabundið út af vinnumarkaði getur það haft áhrif á sjálfstraust og aukið kvíða gagnvart því að snúa aftur til starfa.
Atvinna er ein helsta uppspretta félagslegra tengsla á fullorðinsárum. Því getur fjarvera frá vinnu aukið verulega tilfinningu um einmanaleika. En það er ekki síður mikilvægt að horfa til þess sem tekur við þegar fólk snýr aftur. Vinnumenning skiptir þar sköpum. Góð samskipti og hlýlegt viðmót geta stutt við aðlögun og eflt öryggi. Á hinn bóginn geta lítil eða erfið samskipti og skortur á tengslum ýtt undir einmanaleika, jafnvel þegar fólk er komið aftur til starfa.
Þess vegna er mikilvægt að við horfum á einmanaleika sem raunverulega áskorun í þessu samhengi. Verkefnið er ekki aðeins að styðja fólk aftur til vinnu, heldur líka að skapa aðstæður þar sem það upplifir tilgang að tilheyra samfélagi. Það krefst meðvitaðrar áherslu á tengsl, þátttöku og virðingu, bæði í endurkomuferlinu og í daglegu starfi.
Því lengur sem aðili er frá vinnu því meiri er áskorunin og mikilvægt að vinnufélagar, atvinnurekandi og samfélagið taki meðvitað vel á móti félögum sínum. Í hraða nútímans er hætt við að þetta gleymist.
Annað afar mikilvægt atriði sem við leggjum áherslu á er Forvarnaþjónusta VIRK. Forvarnaþjónustan er veitt einstaklingum samhliða vinnumarkaðsþátttöku þegar álagstengd einkenni, líkamleg og/eða andleg, eru farin að hafa áhrif á vinnugetu og líðan í starfi. Stuðst er við þá þekkingu og reynslu sem hefur skapast innan starfsendurhæfingar varðandi hindranir, verndandi þætti og aðstæður í vinnuumhverfinu. Þjónustan veitir bæði einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum forvarnaþjónustu með það að markmiðið að auka vinnugetu einstaklinga og þátttöku þeirra á vinnumarkaði. Áhersla er lögð á að efla bæði starfsmenn og stjórnendur til sjálfshjálpar.
Að lokum vil ég þakka stjórn VIRK fyrir ánægjulegt samstarf undanfarið starfsár. Starfsfólki VIRK þakka ég samstarfið en það á heiður skilið fyrir elju og dugnað við krefjandi aðstæður, megi VIRK nýtast þeim sem þess njóta vel og lengi.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.