Forvarnaþjónusta VIRK
Forvarnasvið VIRK veitir einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum forvarnaþjónustu með það að markmiði að auka vinnugetu einstaklinga og þátttöku þeirra á vinnumarkaði. Áhersla er lögð á að efla bæði starfsmenn og stjórnendur til sjálfshjálpar.
Forvarnaþjónustan er veitt einstaklingum samhliða vinnumarkaðsþátttöku þegar álagstengd einkenni, líkamleg og/eða andleg, eru farin að hafa áhrif á vinnugetu og líðan í starfi. Stuðst er við þá þekkingu og reynslu sem hefur skapast innan starfsendurhæfingar varðandi hindranir, verndandi þætti og aðstæður í vinnuumhverfinu.
Hægt er að hafa samband við forvarnaráðgjafa auk þess að í boði er stuðningsefni á velvirk.is.
