Fara í efni
Til baka

Í aðalhlutverki í eigin lífi

Í aðalhlutverki í eigin lífi

Hlutverkasetrið að Borgartúni 1 er notalegur staður að heimsækja. Gengið er inn sjávarmegin í húskynnin. Skór af ýmsu tagi í hillum í forstofunni segja manni að þar sé talsvert af fólki innandyra. Á móti mér tekur Helga Ólafsdóttir iðjuþjálfi og tekur að kynna mér starfsemina sem fram fer í Hlutverkasetrinu. Ýmsir þjónustuþegar VIRK hafa nýtt sér þau úrræði sem Hlutverkasetrið hefur upp á að bjóða. 

Hlutverkasetrið

Hlutverkasetrið að Borgartúni 1 er notalegur staður að heimsækja. Gengið er inn sjávarmegin í húskynnin. Skór af ýmsu tagi í hillum í forstofunni segja manni að þar sé talsvert af fólki innandyra. Á móti mér tekur Helga Ólafsdóttir iðjuþjálfi og tekur að kynna mér starfsemina sem fram fer í Hlutverkasetrinu. Ýmsir þjónustuþegar VIRK hafa nýtt sér þau úrræði sem Hlutverkasetrið hefur upp á að bjóða. Þau eru margvísleg eins og fram kemur í viðræðum okkar Helgu.

Á móti mér tekur Helga Ólafsdóttir iðjuþjálfi og tekur að kynna mér starfsemina sem fram fer í Hlutverkasetrinu. Ýmsir þjónustuþegar VIRK hafa nýtt sér þau úrræði sem Hlutverkasetrið hefur upp á að bjóða. Þau eru margvísleg eins og fram kemur í viðræðum okkar Helgu.

Hlutverkasetrið er virkni- og endurhæfingarmiðstöð sem býður upp á allskonar leiðir til að fólk geti haldið sér virku,“ segir Helga Ólafsdóttir. „Samstarfið við VIRK hefur verið mjög jákvætt. Við höfum fundið mikinn velvilja frá VIRK í okkar garð. Ráðgjafar VIRK benda þjónustuþegum sínum reglulega á okkur og mættu jafnvel gera meira af því,“ bætir Helga við og hlær glaðlega.

Hvenær byrjaði þetta samstarf?
„Það hefur staðið í nokkur ár. Hlutverkasetrið var stofnað 2005. Fyrstu árin var megin áherslan á endurhæfingu en þegar atvinnuleysið jókst eftir efnahagshrunið 2008 varð ljóst að þörf fyrir virkni var mikil. Þegar vinnan er ekki lengur til staðar breytist gjarnan félagslegur veruleiki fólks til hins verra. Þá var áherslunum hér breytt og þannig hefur það verið síðan. Einkunnarorð okkar eru: „Vertu í aðalhlutverki í eigin lífi.“

Íslensk sýn ræður ríkjum innan Hlutverkasetursins en ákveðin verkefni eru að erlendri fyrirmynd. Úrræðið notandi spyr notanda er til dæmis þekkt ytra – þá spyr tilvonandi notandi einhvern sem er að nota eitthvert úrræði álits á því. Af okkar hálfu er alltaf skoðað hvað gengur vel og hvað má betur fara. Hægt er að hafa beint samband við okkur hér. Í framhaldi af því förum við með viðkomandi í kynningu á starfseminni. Hafi hann áhuga á að halda áfram fær hann skráningarblað og býðst að mæta í allt það sem hér er í boði.“

Hvað er vinsælast hjá ykkur?
„Listanámskeiðið. Við erum með færa myndlistarkennara sem fá jafnvel þá sem aldrei hafa reynt sig á þessum vettvangi til þess að teikna og mála af leikandi færni. Hingað kemur fólk á breiðu aldursbili og úr ýmsum stéttum samfélagsins. Sumir staldra stutt við, aðrir lengur. Sumir koma oft í viku en aðrir sjaldnar. Allt eftir óskum og þörfum viðkomandi einstaklings. Við erum tíu sem störfum hér, sumir í hlutavinnu. Einu sinni í viku eldum við mat og svo erum við svo heppin að hafa Samhjálp hér á næstu grösum. Þar er boðið upp á mat á hverjum degi. Við fáum oft mat þaðan sem kemur sér vel. Hingað eru allir velkomnir.“

„Hér getur fólk komið og farið að vild í lengri eða skemmri tíma. Mörgum líkar slíkt fyrirkomulag vel. Við tökum á móti fólki þar sem það er statt.“

Hvernig er samstarfi ykkar við VIRK háttað?
„Við höfum verið styrkþegar VIRK og á móti benda ráðgjafarnir þjónustuþegum á úrræði Hlutverkasetursins. Við heyrum í ráðgjöfunum reglulega og fólk sem kemur hingað eftir ábendingu þeirra heldur sumt áfram að koma hér eftir að þjónustunni hjá VIRK er lokið. Það er mjög ánægjulegt.“

Hver er ástæða þess að fólk leitar í Hlutverkasetrið?
„Ástæðurnar eru margvíslegar, stundum er fólk að leita að ákveðnum úrræðum, svo sem slökun, dansi, handavinnuklúbb sem starfar hér tvisvar í viku og þar fram eftir götunum. Sumir eru einmana og leita eftir félagsskap. Þeir finna hann hér. Allir koma á sínum eigin forsendum. Þörfin er greinilega mikil og ánægja þeirra sem koma er augljós. Við erum með ólíka hópa en samkomulagið er ótrúlega gott.“

Eruð þið með námskeið?
„Nei ekki beinlínis. Oft er fólk sem kemur hingað búið að sækja mörg slík og er fremur að sækja sér félagsskap og viðhalda virkni. Hér getur fólk komið og farið að vild í lengri eða skemmri tíma. Mörgum líkar slíkt fyrirkomulag vel. Við tökum á móti fólki þar sem það er statt. Vilji fólk sérhæfðari námskeið er slíkt í boði víða annars staðar.“

Hver borgar þessa starfsemi?
„Við erum með þjónustusamning við félagsmálaráðuneytið sem Vinnumálastofnun heldur utan um, Reykjavíkurborg styrkir starfsemi okkar og loks höfum við sótt um og fengið árlega styrki frá VIRK fyrir ákveðin verkefni. Við leigjum hér í Borgartúni 1, þú ættir að sjá hvað þetta húsnæði hentar okkur vel.“

Helga lætur ekki sitja við orðin tóm. Hún stendur á fætur og býður blaðamanni að skoða sig um. Greinilega er hér mjög margt í boði, ótal púslkassar eru í hillum, efni til að sauma úr með fannhvítum saumavélum handavinnurýmisins. Tölvuherbergið stendur fyrir sínu og Salurinn bíður eftir dansfólki og jógaunnendum. Herbergi eru líka til reiðu fyrir þá sem vilja hvíla sig frá dagsins önn. Allt er þarna vel um gengið og sérlega notalegt. Eldhús er í miðju húsnæðinu en frammi á gangi situr handavinnuhópurinn við prjónaskap og spjall.

Við kveðjum Helgu og Hlutverkasetrið með hlýju og göngum út á gangstéttina. Sú tilfinning er góð að til skuli vera staður sem býður hverjum þeim sem vill þiggja skemmtun, fræðslu og félagsskap.

Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Hlutverkasetur

Greinin birtist fyrst í ársriti VIRK 2021

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband