Fara í efni
Til baka

Við getum mælt næstum allt

Við getum mælt næstum allt

Vista verkfræðistofa er eitt þeirra fyrirtækja sem fær viðurkenningu sem VIRKT fyrirtæki 2023 frá Atvinnutenginu VIRK. 

Heiðar Karlsson, framkvæmdastjóri Vista

Vista verkfræðistofa er eitt þeirra fyrirtækja sem fær viðurkenningu sem VIRKT fyrirtæki 2023 frá Atvinnutenginu VIRK. Að Bíldshöfða 14 í Reykjavík opnar Heiðar Karlsson framkvæmdastjóri dyrnar að húsakynnum þessa merka fyrirtækis og fyrr en varir leiðir hann okkur í allan sannleika um um upphaf samstarfs þess við Atvinnutengingu VIRK.

„Þetta samstarf byrjaði þannig að einn starfsmaður okkar var að fara á eftirlaun og kominn í fimmtíu prósent starf. Við þurftum að ráða einhvern til starfa á móti honum og mér datt í hug að byrja á að leita fyrir mér hjá VIRK – skoða hvort þar væri einhver sem við gætum aðstoðað við að komast í gang á vinnumarkaðinum. Ég vann áður hjá fyrirtækinu IMS Vintage Photos og þar var fólk frá VIRK sem var fóta sig á vinnumarkaðinum og gekk vel.

Þegar sem sagt okkur hjá Vista verkfræðistofu vantaði einstakling í hálft starf fannst mér að þetta gæti verið gott tækifæri fyrir þjónustuþega frá VIRK sem væri að leita að vinnu. Ég leit satt að segja á það sem samfélagslega skyldu að leita fyrst til VIRK og hafði því samband við atvinnulífstengil þar. Hann sendi til okkar nokkrar umsóknir. Eftir athugun völdum við starfsmann frá VIRK í fjörutíu prósent vinnu hjá okkur og við vorum strax hæstánægðir. Nú er þessi aðili kominn í fimmtíu prósent starfshlutfall og allir sáttir,“ segir Heiðar Karlsson.

En hvers konar starf er unnið hér á þessari verkfræðistofu?
„Vista verkfræðistofa var stofnuð 1984 af Andrési Þórarinssyni sem hefur rekið stofuna síðan. Fyrirtækið hefur alla tíð sérhæft sig í fjölþættum mælingum. Við sinnum meðal annars margvíslegum mælingum fyrir sveitarfélögin, opinbera aðila og stærri fyrirtæki. Við getum mælt næstum allt – loftgæði, veðurfar, gróðurmælingar og jarðvegsmælingar svo eitthvað sé nefnt.

Við erum einnig mikið í alls konar talningum, svo sem umferðartalningum. Einnig erum við mikið í hitamælingum – í einu orði sagt – innviðaeftirliti. Við hjálpum meðal annars veitufyrirtækjunum að fylgjast með heitu og köldu vatni og frárennsli. Allt er þetta svo tekið saman í „skýjalausn“ sem heitir Vista Data Vision. Þar er þetta geymt og birt til upplýsinga fyrir þá sem þurfa. Við erum fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í Interneti hlutanna – (Internet of Things). Þess má geta að við eru sérstaklega stoltir af jarðvegsmælingunum í hlíðunum fyrir ofan Seyðisfjörð og Eskifjörð sem við sinnum fyrir Veðurstofu Íslands.“

Að fjárfesta í tíma

Krefst starfið hérna sérmenntunar?
Já, en hluti af vinnunni hér er eftirlitsstarf, í það þarf enga sérmenntun. Við slíka vinnu hóf okkar aðili frá VIRK starf í upphafi. Smám saman fólum við honum fleiri verkefni. Við það óx sjálfstraust hans, sjálfsmyndin batnaði og við gátum fengið honum enn fjölbreyttari verkefni. Það besta sem hægt er að gera við svona aðstæður er að „fjárfesta í tíma“ – það er að gefa sér tíma til að sinna viðkomandi og segja honum til.

Ég er fimmtugur núna og hef verið stjórnandi alla mína starfstíð. Ég veit að fólk er ekki fullkomið, það lendir í áföllum í lífinu og þolir ekki endalaust álag. Þetta hefur maður ítrekað séð gerast í þeim tæknigeira sem ég starfa í – flott fólk að lenda í alvarlegri kulnun og sjúkdómum. Í slíkum tilvikum hefur viðkomandi gjarnan nýtt sér úrræði á borð við VIRK til að koma sér aftur í gang. Mér finnst eðlilegt að fyrirtæki hjálpi til við þannig uppbyggingu.

Þetta er í raun svipað og að taka starfsnema úr skóla og hjálpa honum að komast inn í starf. Ég fór sjálfur á samning þegar ég var ungur. Ég lauk stúdentsprófi og ætlaði að fara í sagnfræði, en fannst tölvurnar skemmtilegri. Ég kláraði því nám í rafeindavirkjun og fór inn í tölvuheiminn.“

Fólk vill yfirleitt standa sig vel

Hafa fleiri komið til starfa hjá ykkur frá VIRK?
„Já. Seinna var haft samband við okkur frá VIRK og spurst fyrir um hvort við hefðum laust starf fyrir ákveðinn einstakling. Ég sagði bara: – „Ekkert mál, við skulum kippa viðkomandi inn og byggja hann upp í rólegheitunum.“ Þetta var í raun ekki svo flókið, ég fjárfesti bara í svona hálftíma til klukkutíma af og til með viðkomandi starfsmanni og hann sinnti sínum störfum vel en er nú kominn í fullt starf annars staðar.“

Ég held að það skipti miklu máli fyrir þann sem er að fóta sig á vinnumarkaðinum á ný að einhver „taki hann að sér“, verði eins konar mentor.

Hvaða ráð telur þú gagnleg til að hjálpa fólki að snúa til vinnu?
„Ég held að það skipti miklu máli fyrir þann sem er að fóta sig á vinnumarkaðinum á ný að einhver „taki hann að sér“, verði eins konar mentor. Peningar hjálpa einstaklingi ekki mest í þessari stöðu heldur að einhver gefi sér tíma til að aðstoða hann. Mín reynsla af fólki er sú að það vill yfirleitt standa sig vel í starfi, gera góða hluti. Persónuleg afstaða mín er sú að ef maður hefur tíma til að sinna starfsmanni á þennan hátt þá sér maður árangur.“

Hvernig kanntu við þig í mentor hlutverkinu?
„Mér finnst það skemmtilegt. Maður reynir að setja sig í ákveðnar stellingar – vera ekki of kröfuharður – fara ekki of djúpt í hlutina strax. Byrja á að leggja áherslu á að fólk mæti vel. Ekki að krefjast of mikillar vinnu fyrstu dagana heldur fremur að viðkomandi lagi sig að aðstæðum og kynnist umhverfinu. Mér finnst líka félagslegi þátturinn mikilvægur, að einstaklingurinn komist inn í hópinn, spjalli og myndi tengsl þannig.“

Sagðir þú samstarfsfólkinu frá því að viðkomandi aðilar hafi komið frá VIRK?
„Já, það var ekki leyndarmál og það á ekki að vera þannig. Menn vita og skilja að allir geta lent í áföllum. Slíkt er eðlilegt. Starfsfólkið er fyrirtækið í raun og kallar því á mesta athygli stjórnanda.“

Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar starfsfólks?
„Í mínum huga er það jákvætt viðhorf og vera opinn fyrir því að hlutir eiga til að breytast. Það er mikilvægt að hrósa fólki, sýna því athygli og gleyma ekki gleðinni í vinnunni. Stundum verður fólk svo upptekið af starfinu og vill gera svo vel að það gleymir að staldra við – draga djúpt andann og slaka á.

Konan mín er hjúkrunarfræðingur. Þegar hún kemur heim úr vinnunni og segir mér frá því sem fram fer á bráðadeildinni þá finnst mér að áhyggjur mínar hér séu léttvægar miðað við það að hjúkra kannski fárveikum einstaklingum – þetta er ágætis jarðtenging.“

Hefurðu haft samskipti að einhverju marki við atvinnulífstengla frá VIRK?
„Já, ég ræddi á sínum tíma við atvinnulífstengla VIRK í síma og þeir hafa komið hingað til að skoða starfsemina. Mér finnst þeirra nálgun gagnvart viðfangsefninu vera flott. Þar eru settar fram ákveðnar væntingar. Skýrt plan um hvernig fylgja eigi viðkomandi starfsmanni áfram og hverju hann eigi að skila af sér. Þetta kallaði á sínum tíma á að staldra við og hugsa málið, hvers væri að vænta og skrifa það svo niður – móta ákveðna verklýsingu, nálgun og viðveruáætlun. Þá lendir hinn nýi starfsmaður ekki í því að koma í vinnuna og ekkert sérstakt liggi fyrir um hvað hann eigi að gera. Slíkt er óþægilegt.“

Gott starf sem VIRK er að vinna

Eruð þið til í að taka fleiri í vinnu frá VIRK?
„Ég á von á því að ef við værum spurðir hvort við hefðum tök á að fá inn fleiri einstaklinga frá VIRK þá myndum við bara segja já, ekkert mál. Við værum til í að brúa bil í svona sex til átta vikur meðan viðkomandi væri að leita sér að annarri vinnu til langframa. Það fólk gæti þannig byrjað að mæta til starfa og gera verkefni samkvæmt þeirri nálgun sem VIRK hefur verið með í svona tilvikum.

Það er gott starf sem VIRK er að vinna. Það er mikill hraði í samfélaginu og margir sem lenda tímabundið í erfiðleikum af þeim sökum, standast ekki álagið til langframa. Þá er mikilvægt að hafa kerfi sem grípur fólk. Ég held að það sé auðveldara nú en áður fyrir stofnun eins og VIRK að vaxa, það er meiri skilningur í samfélaginu á svona starfi.“

Menn vita og skilja að allir geta lent í áföllum. Slíkt er eðlilegt.

Eruð þið enn með fólk frá VIRK í vinnu?
„Já einn aðili frá VIRK starfar hjá okkur enn. Hann fylgist meðal annars með hitastigi í stórum byggingum, svo sem hvort bakrásarhiti í stórum byggingum sé yfir 40 gráðum. Sé svo er verið að sóa orku í þeirri byggingu – of mikið af heitu vatni fer út úr húsinu.

Heimurinn er að breytast að því leyti að það er auðveldara að setja upp búnað til að fylgjast með og mæla. En það þarf að hafa ákveðinn grundvallarskilning og þekkingu til að túlka niðurstöður mælinga rétt. Allflestir af þeim níu sem eru fastráðnir hér hafa lært rafmagnstæknifræði, hafa lokið iðnskóla og háskólaprófi. Eðli málsins vegna erum við ekki með neitt mjög stórt húsnæði því mælingarnar fara fram utanhúss. Við erum þó með verkstæði. Þar setjum við saman búnaðinn áður en hann fer út úr húsi og er komið fyrir á mælingastað.“

Gæti Vista verkfræðistofa tekið inn marga nýja starfsmenn?
„Nei, Vista verkfræðistofa getur ekki tekið inn marga í hlutastarf í einu. Einn yrði að taka við af öðrum í styttri tíma og þeir þyrftu að sinna verkefnum sem auðvelt er að útskýra og koma frá sér. Það krefst orku að hugsa um fólk og styðja það. Maður gerir engum greiða með því að taka hann inn til starfa en hafa svo engan tíma til að sinna honum. Þá líður fólki einfaldlega illa og finnst það ekki vera að skila neinu.“

Þú segir að þið getið mælt næstum allt – gætuð þið kannski mælt einhvers konar árangur hjá VIRK?
„Við gætum til dæmis mælt hve margir ganga út og inn úr húsnæði VIRK – þannig gætum við sagt svolítið til um það hversu umfangsmikil starfsemin er. Við gætum auðvitað líka mælt hve margir komast út á vinnumarkaðinn og þar fram eftir götunum. Við gætum kannski mælt hverju stytting vinnuvikunnar er að skila með spurningalistum. Hvaða áhrif hefur þetta á líðan fólks. Það er reyndar ákveðinn samfélagslegur mælikvarði ef það fjölgar sífellt í VIRK. Hvað er þá verið að gera rangt í samfélaginu?“

Hafið þið einhvern tíman bent einhverjum starfsmanni ykkar á þjónustu VIRK?
„Ekki ennþá, en við eigum það inni, vonandi. Fólk á miðjum aldri er gjarnan með börn, unglinga, heimili, aldraða foreldra og sinnir atvinnu – og svo þarf það sjálft að lifa lífinu. Allt er þetta dálítið vandasamt í æ flóknara samfélagi. Til dæmis er vanmetið það álag að hugsa um aldraða foreldra mitt á milli stofnana í viðbót við allt hitt. En á hinn bóginn er líka hollt og gott að sinna sér nákomnu fólki.“

Nánar um VIRKT fyrirtæki 2023.

Viðtalið birtist fyrst í ársriti VIRK 2023.

Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband