Sigmundur Ísak Þorsteinsson
Securitas – orðið eitt fyllir mann öryggiskennd. Í ár hefur Securitas í annað sinn hlotið þann heiður að vera útnefnt VIRKT fyrirtæki. „Við tökum þessu með auðmýkt, gleði og þakklæti í bland við stolt,“ segir Sigmundur Ísak Þorsteinsson, deildarstjóri Tæknisviðs hjá Securitas.
Hann stendur í fordyrinu albúinn þess að leiða blaðamann um hin mjög svo veglegu húsakynni fyrirtækisins. Eftir að hafa gengið um ótal herbergi, upp og niður stiga og skyggnst inn í hinar ýmsu deildir verður á vegi okkar harðlæst stórt herbergi. „Þetta er stjórnstöðin – hjartað okkar,“ segir Sigmundur Ísak. Þegar skyggnst er inn um glugga hins rökkvaða rýmis „hjartans“ ber fyrst fyrir augu skáp með ótal spjöldum sem á hanga ótrúlegur fjöldi lykla.
Að hverju skyldu allir þessir lyklar ganga?
„Þetta eru lyklar að heimilum og fyrirtækjum. Í stjórnstöðina koma öll boð til Securitas og þaðan er hringt í tengiliði og tæknimenn þegar hjálparbeiðnir berast. Stjórnstöð Securitas er starfrækt allan sólarhringinn, vaktar boð frá kerfum og bregst við,“ svarar Sigmundur Ísak.
Eftir að hafa gengið um hin glæsilegu húsakynni sem fyrrum hýstu fyrirtækið Íslenskameríska liggur leiðin inn í fundarherbergi sem ber hið virðulega nafn Keilir.
„Öll fundarherbergin bera íslensk nöfn svo sem Surtsey, Hólmatindur og svo framvegis. Hið stærsta ber nafnið Árnastofa til heiðurs Árna Guðmundssyni, einum af frumkvöðlum þessa ágæta fyrirtækis. Hér að Tunguhálsi 9 – 11 í Reykjavík eru höfuðstöðvar Securitas en við höfum starfsemi á fleiri stöðum á landinu, á Akureyri, Eskifirði og í Reykjanesbæ. Securitas er íslenskt fyrirtæki sem hefur leyfi til að nota þetta nafn sem samsvarandi fyrirtæki á Norðurlöndum eiga.“
Fann strax að þar færi maður sem fengur væri í
Hvernig bar það til að þjónustuþegi frá VIRK hóf störf hjá tæknisviði Securitas?
„Þegar atvinnulífstengill VIRK hafði samband og benti okkur á að þjónustuþegi með sveinspróf í rafvirkjun væri að leita sér að vinnu þá sögðum við já. Tveir aðrir þjónustuþegar frá VIRK starfa hjá okkur en þessi þriðji er sá fyrsti sem hefur störf á tæknisviði. Þetta er ánægjuleg þróun í ljósi þess að hjálpsemi er eitt af þremur gildum Securitas. Hin tvö eru heiðarleiki og árvekni,“ segir Sigmundur Ísak og brosir.
Hvernig gekk svo umsóknarferlið hjá þjónustuþeganum?
„Nú, við tókum viðtal við umræddan þjónustuþega. Atvinnulífstengill frá VIRK mætti með honum á fundinn. Ég fann strax og ég hafði rætt við þjónustuþegann að þar færi maður sem fengur væri í að fá til starfa. Allt gekk þetta þó rólega fyrir sig í fyrstu. VIRK setti upp tveggja mánaða tímaplan. Mér finnst eftirfylgni frá VIRK vera til fyrirmyndar. Sjálfur reyndi ég að styðja vel við viðkomandi einstakling eftir bestu getu.
Þjónustuþeginn mætti fyrstu dagana tvo tíma í senn en fljótlega fór hann að sækjast eftir hærra starfshlutfalli og er nú kominn í fimmtíu prósent vinnu á sviði brunavarna. Starfsfólk okkar er allt í hundrað prósent starfi og á það stefnir okkar maður. Starfssvið okkar leyfir ekki hlutastörf, það yrði ansi flókið. Eigi að síður hef ég búið til tímabundið hlutastarf fyrir þjónustuþegann frá VIRK, síðan kemur í ljós hvort fyrirætlanir hans um fullt starf gangi upp.
Hið gleðilega er að þessi einstaklingur hefur fallið vel í hópinn, samstarfsfólkið er gríðarlega ánægt með hann. Við erum mjög ánægð með að þrír þjónustuþegar VIRK sem hafa byrjað hjá okkur í vinnuprófun hafa endað sem fastráðnir starfsmenn.“
Við erum mjög ánægð með að þrír þjónustuþegar VIRK sem hafa byrjað hjá okkur í vinnuprófun hafa endað sem fastráðnir starfsmenn.
Leggjum áherslu á góða skilgreiningu á starfinu
Hvernig takið þið á móti nýliðum almennt?
„Við erum mjög flotta nýliðafræðslu sem allir fara í gegnum sem koma til okkar, að henni lokinni þarf ég að finna verkefni til að leysa og velja þarf þau verkefni vel, þannig að nýliðinn fái góðan grunn í því sem við erum að gera. Og umfram allt að hann fái sjálfstraust, þekkingu og verði öruggur í starfi. Svo reynum við að byggja ofan á það.
Hjá tæknisviði Securitas leggjum við áherslu á að hafa góða skilgreiningu á starfinu, það er til hvers sé ætlast af starfsmanninum. Um er að ræða krefjandi störf, flókin kerfi sem þarf að læra á. Það er æði margt sem nýr starfsmaður þarf að setja sig inn í hér. Við gerum ríka kröfu um öryggisatriði og að reglum og öryggiskröfum sé fylgt. Slíkt skapar öryggiskennd hjá starfsfólkinu.“
Hvað hefur þú unnið lengi hjá Securitas?
„Ég byrjaði hér sem tæknimaður árið 2004 en færðist svo ofar og varð deildarstjóri tæknisviðs, í því starfi hef ég verið undanfarin ár,“ segir Sigmundur Ísak.
Gætum þess að fólkið fái góða og örugga þjálfun
Hvernig er fólk almennt ráðið inn í fyrirtækið?
„Við setjum inn auglýsingu hjá Alfreð. Fólk sækir um og síðan hefst ferlið. Rætt er við umsækjendur og loks ráðið í starfið. Á tæknisviði leitum við oftast að fólki sem er menntað í rafmagnsfræði, iðnfræði, rafeindafræði, rafvirkjun og jafnvel nemum í þessum greinum. Hjá fyrirtækinu vinna jafnt konur sem karlar og við gætum þess að fólkið fái góða og örugga þjálfun.
Flest starfsfólk Securitas, um fimm hundrað og fimmtíu manns, starfar við tækniþjónustu og öryggisvörslu en svo erum við að sjálfsögðu með sölu, fjármál, mannauð og aðra sérfræðinga. Við erum þjónustufyrirtæki með hátæknivörur og þjónustu. Við erum m.a með myndavélaeftirlit og búnað, slökkvikerfi og brunavarnir, innbrota- og aðgangsstýringar, heilbrigðislausnir, gæslu og ráðgjöf. Þess má geta að kerfin okkar eru útbúin með rafhlöðum sem halda kerfinu í gangi í 24 tíma ef til rafmagnsbilunar kemur.“
Hvers konar viðskiptavini eruð þið með?
„Hópurinn er fjölbreytilegur. Við erum með fjórtán þúsund heimili, átta þúsund fyrirtæki og um þrjú þúsund hnappþega í þjónustu hjá okkur. Við fáum 27 þúsund útköll á ári og um 30 þúsund símtöl inn á stjórnstöðina árlega. Starfsemin er vaxandi ekki síst hnappþjónustan. Slík þjónusta gerir fólki kleift að vera á heimili sínu lengur en ella væri sem er auðvitað allra hagur.
Þess ber að geta að við höfum reglulega tekið á móti þjónustuþegum frá VIRK í vinnuprófun. Sem fyrr getið þá hefur það samstarf þrisvar sinnum leitt til áframhaldandi ráðningar í starfi hjá okkur. Því er ekki að leyna að við erum, sem fyrr gat, afar stolt af því að VIRK hefur í annað sinn útnefnt okkur VIRKT fyrirtæki.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2026