Signý Ólafsdóttir
Freyja Rúnarsdóttir
„Við hér á Hrafnistu erum afar stolt af því að vera aftur tilnefnd og síðan valin VIRKT fyrirtæki árið 2025 af VIRK Starfsendurhæfingarsjóði,“ segir Freyja Rúnarsdóttir mannauðsráðgjafi. Við hlið hennar í fundarsal á fyrstu hæð situr Signý Ólafsdóttir verkefnastjóri á mannauðssviði. Samræður okkar snúast um það hvernig Hrafnista hefur skipað sér í fremstu röð fyrirtækja sem ráða til starfa fólk sem lokið hefur starfsendurhæfingu hjá VIRK.
„Við settum okkar það markmið í fyrra þegar Hrafnista var valin sem VIRKT fyrirtæki fyrir árið 2024 að vera á lista tilnefndra ár hvert. En við bjuggumst ekki við að við yrðum aftur VIRKT fyrirtæki,“ bætir Freyja við. Þær brosa báðar.
Hvernig vinnið þið að þessu markmiði?
„Þessi ákvörðun lifir, ef svo má segja, í undirmeðvitundinni hjá okkur hér. Að vera vakandi fyrir því ef staða losnar að hafa þá samband við atvinnulífstengil hjá VIRK til að athuga hvort þar sé að finna starfsmann sem hentar í umrædda stöðu.
Þær Freyja og Signý leggja ríka áherslu á að það að missa vinnugetu af einhverjum ástæðum sé eitthvað sem getur komið fyrir alla.
Hér hefur komið til starfa fólk frá VIRK í dagdeildir, í borðsal og eldhús, þessi störf henta einkum fyrir þá sem vilja vinna á dagvinnutíma. Aðhlynningarstörf henta þeim sem hafa líkamlega burði til að sinna slíku og þar höfum við meira sveigjanleika hvað snertir starfshlutfall.
Það er okkar að vega og meta í samvinnu við atvinnulífstengla VIRK hvort þetta gangi upp. Við höfum þá samband áður en starf er auglýst og atvinnulífstenglar leita í sínum gagnagrunni hvort heppilegan starfskraft sé þar að finna. Síðan fáum við sendar ferilskrár þeirra sem koma til greina og við förum yfir þær. Oft höfum við fengið ferilskrár nokkurra einstaklinga sem við svo ræðum við. Stundum tökum við hóp umsækjenda í viðtöl og veljum svo þann sem við teljum að starfið henti vel.“
Þær Freyja og Signý leggja ríka áherslu á að það að missa vinnugetu af einhverjum ástæðum sé eitthvað sem getur komið fyrir alla.
Öll getum við lagt okkar af mörkum
Finnst ykkur að það fólk sem kemur til ykkar frá VIRK sé betur undirbúið en aðrir umsækjendur?
„Stundum á það við og þess bera að geta að breiddin hjá VIRK varðandi þann hóp sem sækir sér starfsendurhæfingu er mikil. Það fólk hefur í farteskinu allskonar þekkingu og reynslu. Vissulega hafa sumir í þeim hópi sem komið hefur frá VIRK til starfa hjá Hrafnistu getu umfram aðra sem sækja hér um. En það er þó allur gangur á slíku rétt eins og gerist almennt í samfélaginu.“
Hefur reynsla ykkar í þessum efnum aukist frá fyrra ári?
„Já, reynsla okkar af samstarfi við atvinnutengingu VIRK hefur aukist á þessu ári, það hafa komið nýir einstaklingar til starfa hér á Hrafnistu í allskonar störf og það hefur gengið vel. Það sýnir meðal annars sú staðreynd að stjórnendur deilda hér á Hrafnistu eru farnir að leita að fyrra bragði til VIRK þegar ráða þarf nýjan starfsmann. Áður hafði mannauðssviðið oftar milligöngu.
Atvinnulífstenglar VIRK eru líka farnir að leita til okkar ef þeir eru með fólk sem lokið hefur endurhæfingu og þeir telja að væri heppilegur starfskraftur hér. Þetta hefur því sannarlega verið farsælt samstarf,“ segir Freyja.
Hjá VIRK liggur gríðarlega mikil þekking, mannauður sem við teljum að önnur fyrirtæki ættu að skoða.
Mynduð þið ráðleggja öðrum fyrirtækjum að leita eftir starfsfólki hjá atvinnutengingu VIRK?
„Já. Hjá VIRK liggur gríðarlega mikil þekking, mannauður sem við teljum að önnur fyrirtæki ættu að skoða. Við sáum ný fyrirtæki á pari við Hrafnistu á listanum yfir tilnefnd fyrirtæki fyrir VIRKT fyrirtæki og fögnum því. Við viljum hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að skoða hjá atvinnulífstenglum VIRK hvort finna megi starfsfólk í þau störf sem eru í boði hjá þeim. Okkur finnst að allir eigi að taka þátt. Öll getum við lagt okkar af mörkum.“
Félagsstarf hjá Hrafnistu er ríkulegt
Hvernig gengur ykkur yfirleitt að fá starfsfólk?
„Það gengur mjög vel. Hér starfar fólk af ýmsum þjóðernum og við það eykst fjölbreytileikinn. Við gerum okkur líka grein fyrir að eftir örfá ár verði fjölbreytileikinn sá sami meðal heimilisfólksins á hjúkrunarheimilum okkar. Núna er meirihluti heimilisfólks Íslendingar en þetta er að breytast og við viljum vera á undan þeirri breytingu. Vera búin að fara í gegnum þann þroskaferil sem þarf til að mæta fyrirsjáanlegum fjölbreytileika íbúa Hrafnistuheimila.“
Eiga sjómenn ennþá meiri rétt en aðrir til að fá búsetu hjá Hrafnistu?
„Nei, þannig var þetta fyrstu árin en er nú aflagt. Hrafnista er hins vegar í eigu Sjómannadagsráðs og hér innandyra má sjá margt sem ber sjómennskunni vitni. Eitt sinn var hér starfrækt netaviðgerðarstofa. En hún er ekki við lýði lengur. Þarfir íbúa hafa breyst í takt við þær breytingar sem hafa orðið á íslensku samfélagi. Fólk sem kemur hingað til búsetu er eldra en áður var og færri vinnufærir,“ segir Signý.
Síðast en ekki síst lítum við á þetta samstarf sem samfélagslega skyldu okkar.
Hún bætir við að ríkulegt félagsstarf sé hjá Hrafnistu, stunduð sé handavinna af ýmsu tagi, fólk spjalli saman og taki kannski í spil svo eitthvað sé nefnt. „Hér kemur líka fólk utan úr bæ í dagdvöl, úrræði eru í boði fyrir aðila sem eru í sjálfstæðri búsetu og þiggja hérna fjölbreytta þjónustu.“
Kostir við að fá starfsfólk frá VIRK eru fjölmargir
En hverjir eru kostir þess að fá fólk hingað til starfa sem kemur úr starfsendurhæfingu hjá VIRK?
„Kostirnir eru fjölmargir, þetta fólk hefur farsællega farið í gegnum endurhæfingarprógramm hjá VIRK og það gefur heilmikla reynslu, eins er hjá VIRK atvinnulífstengill sem hjálpar þeim sem eru að fóta sig á ný úti á vinnumarkaðinum og hann hjálpar líka deildarstjórum hér að skilja hvað þarf að hafa í huga. Og sem fyrr sagði fáum við hingað fólk sem hefur margt hvert gífurlega starfsreynslu og það staldrar oft lengi við hjá okkur. Hafa ber líka í huga að starfsfólk okkar hefur sumt hvert nýtt sér endurhæfingu hjá VIRK. Síðast en ekki síst lítum við á þetta samstarf sem samfélagslega skyldu okkar,“ segir Freyja.
Við erum mjög þakklát fyrir þjónustuna hjá VIRK, bæði vegna þjónustunnar sem starfsfólk okkar hefur fengið þar þegar á hefur bjátað og einnig fyrir það góða starfsfólk sem hefur komið hingað í gegnum atvinnutengingu VIRK.
Hefur starfsfólk ykkar almennt stuðning frá Hrafnistu í veikindum?
„Já, sumir hverjir leita sem sagt til VIRK í starfsendurhæfingu en við styðjum starfsfólk okkar á ýmsan hátt komi upp veikindi. Það er ávallt gleðiefni þegar fólk kemur til baka tvíeflt. Sumir byrja þó kannski í lægra starfshlutfalli en færa sig upp í fulla vinnu smám saman. Við erum mjög þakklát fyrir þjónustuna hjá VIRK, bæði vegna þjónustunnar sem starfsfólk okkar hefur fengið þar þegar á hefur bjátað og einnig fyrir það góða starfsfólk sem hefur komið hingað í gegnum atvinnutengingu VIRK.“
Öryggi, traust og vellíðan
Eruð þið með ráðleggingar til fyrirtækja um hvernig er heppilegt að taka á móti nýju starfsfólki?
„Miklu máli skiptir varðandi þá sem koma frá VIRK að þeir hafa um tíma áfram samband við atvinnulífstengla hjá VIRK. Við hjá Hrafnistu erum með okkar móttökuferli sem allir ganga í gegnum og höfum verið að endurmóta þetta ferli að undanförnu til að koma því í betri takt við síbreytilegt samfélag.
Við leggjum áherslu á að nýtt starfsfólk upplifi öryggi og hlakki til að mæta á vinnustaðinn. Sé þörf á meiri aðlögun fyrir þá sem koma frá VIRK er slíkt á verksviði deildarstjóra viðkomandi deildar og sem áður sagði getur starfsmaðurinn í fyrstu leitað til atvinnulífstengils VIRK. Samstarf okkar við atvinnutengingu VIRK hefur verið mjög farsælt,“ segir Signý.
Við leggjum áherslu á að nýtt starfsfólk upplifi öryggi og hlakki til að mæta á vinnustaðinn.
Er margt starfsfólk hjá Hrafnistu í skertu starfshlutfalli?
„Já, margir vinna hér hlutastarf með skóla, það fólk kemur inn á kvöldin og um helgar og yfir sumartímann til að leysa fastráðið starfsfólk af í sumarleyfum. Algengt er að fólk byrji hér í hlutastarfi og á það við ýmsa sem koma frá VIRK. En þeir feta sig oft fljótt upp í fullt starf,“ segir Freyja. Hún og Signý bæta við: „Hrafnista er heimili fólks og hugmyndafræði Hrafnistu gengur út á að starfsemi og verklag sé sveigjanlegt og fari eftir þörfum hvers einstaklings. Við viljum að íbúar, þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Viðtal úr ársriti VIRK 2025.