Fara í efni
Til baka

Stoltar af að vera VIRKT fyrirtæki

Stoltar af að vera VIRKT fyrirtæki

Í hinu stóra og glæsilega húsi að Urðarhvarfi 8B er til húsa Skatt bókhaldsstofa sem nú hefur maklega fengið viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki 2026.

Elfa Arnbjarnardóttir
Stefanía M. Vilbergsdóttir

Í hinu stóra og glæsilega húsi að Urðarhvarfi 8B er til húsa Skatt bókhaldsstofa sem nú hefur maklega fengið viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki 2026.

Gengið er niður nokkrar tröppur í stórhýsinu, beygt til vinstri og þar á bak við glervegg má sjá starfsfólk bókhaldsfyrirtækisins að störfum. Við hittum fyrir þær Stefaníu M. Vilbergsdóttur sem er framkvæmdastjóri og Elfu Arnbjarnardóttur bókara. Elfa er að hella upp á kaffi og fyrr en varir erum við sestar inn í notalegt fundarherbergi þar sem byrjað er á að leita upplýsinga um fyrirtækið sem nú er með þrjá starfsmenn sem hafa notið þjónustu VIRK í starfsmannahópnum.

„Við bjóðum upp á alhliða bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Leggjum áherslu á öfluga ráðgjöf og persónuleg samskipti. Við upplýsum og minnum á, þegar skil nálgast hjá skattayfirvöldum. Hafi viðskiptavinir samband leggjum við áherslu á að svara fljótt og örugglega,“ segir Stefanía framkvæmdastjóri í tóntegund sem ljær orðum hennar nokkra þungavigt.

Og hver eru helstu verkefni fyrirtækisins?
„Við gerum skattframtal og veitum alhliða bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka. Við minnum okkar viðskiptavini á, þegar skilafrestir nálgast og okkur finnst mikilvægt að veita öfluga ráðgjöf.

Við notum mest bókhaldsforritið DK, það virkar þannig að við höldum utan um bókhaldið en sendum viðskiptavinum svo skýrslur um stöðuna þegar óskað er eftir. Sumir viðskiptavinir okkar vilja nota bókhaldsforritið Payday, þá getur viðskiptavinurinn fylgst með færslum meðfram því sem bókari hjá okkur vinnur að bókhaldinu fyrir hann. Mest notum við þó DK, í okkar viðskiptahópi eru allskonar fyrirtæki, allt frá einstaklingsfyrirtækjum til stórra aðila,“ segir Elfa bókari.

Viðmót hennar og bros eru þannig að blaðamaður hefði á stundinni trúað henni fyrir bókhaldi sínu. Ljóst er af því andrúmslofti sem ríkir í fundarherberginu að lögð er áhersla á hlýju í samskiptum sem er ekki það sem fólki dettur helst í hug í sambandi við bókhald.

Við höfum vonandi náð að láta í ljós hvað við erum ánægðar með starfsfólkið okkar frá VIRK og einnig hvað við erum stoltar að fá þessa viðurkenningu frá VIRK – að Skatt bókhaldsstofan hafi verið valin sem VIRKT fyrirtæki þessa árs.

Sáu strax að ungi bókarinn féll vel í hópinn

Hvaða menntun hafði sá þjónustuþegi frá VIRK sem kom til ykkar á þessu ári?
„Um er að ræða unga stúlku sem var að ljúka bókhaldsnámi. Hún bauð af sér svo góðan þokka, var svo hlý að við fundum strax að hún ætti heima í okkar hópi. Við erum átta sem störfum hjá Skatt bókhaldsstofu og það er mikilvægt að þeir sem bætast í hópinn eigi samleið með honum,“ segir Elfa.

„Stúlkan byrjaði reyndar í nóvember á síðasta ári en átti þá eftir eitt próf. Auðsótt mál var af okkar hálfu að hún fengi stutt frí til að ljúka náminu. Svo kom svolítið upp á hjá henni sem við sýndum skilning og eftir að hafa jafnað sig þá kom bókarinn ungi í sextíu og fimm prósent vinnu eftir síðustu áramót,“ segir Stefanía og bætir við að viðkomandi þjónustuþegi hafi vissulega verið einn af mörgum umsækjendum en ekki hafi liðið langt á umsóknarviðræður þegar henni og Elfu bókara hafi verið ljóst að þarna væri komin sú manneskja sem þær vildu fá í hópinn. Það hafi svo gengið eftir.

„Við lögðum áherslu á að bókarinn okkar ungi væri með okkur í hádeginu svo við gætum kynnst stúlkunni betur og hún okkur. Það er heppilegt og þéttir hópinn. Við tókum eðlilega vel á móti henni, héldum í höndina á henni eins og við gerum við alla nýja starfsmenn. Við gætum þess að nýtt starfsfólk fái góða þjálfun. Í bókhaldi þarf margt að læra,“ segir Elfa.

Er starf bókhaldara ekki fullt af leyndardómum?
„Auðvitað erum við bundin trúnaði við okkar viðskiptavini. Það skiptir því máli að starfsmaður sé trúverðugur. Þessa er gætt og hefur gengið mjög vel, hér er engum „hent í djúpu laugina“, heldur er hjálpast að. Þótt starfsmenn fyrirtækisins séu bundnir trúnaði erum við öll með nasasjón af því sem fram fer og getum því aðstoðað hvert annað ef þörf krefur. Allir geta spurt alla ef þörf er á,“ segir Elfa.

Fenguð þið einhverja leiðbeiningu frá VIRK varðandi þessa stúlku?
„Nei, við hefðum eflaust getað fengið aðstoð frá VIRK ef við hefðum eftir því leitað. En við tókum þá ákvörðun að taka á móti þessum starfsmanni á sama hátt og öðrum sem hingað hafa verið ráðnir og það gekk vel,“ segir Stefanía.

Þrír starfsmenn af átta þjónustuþegar frá VIRK

Þær stöllur láta þess getið að þær séu afskaplega ánægðar með að fá viðurkenningu frá VIRK – vera VIRKT fyrirtæki.“

„Við erum óneitanlega stoltar af því. En þess má geta að við erum með þrjá einstaklinga starfandi sem hafa lokið þjónustu hjá VIRK í átta starfsmanna hópi.

Sú fyrsta sem réð sig til okkar kom reyndar ekki á vegum VIRK. Það var ekki fyrr en síðar sem það kom upp úr dúrnum að hún hefði notið þjónustu hjá VIRK. Sú manneskja er í hundrað prósent vinnu, bókari að mennt og góður starfsmaður.

Næst kom til starfa hér frá VIRK sú stúlka sem við höfum verið að ræða mest um og er einnig bókari – yngst þessara þriggja þjónustuþega okkar frá VIRK. En þegar svo atvinnulífstengill frá VIRK sendi okkur nokkru síðar póst og benti okkur á manneskju sem leitaði eftir hlutastarfi þá slógum við hiklaust til og réðum sem sagt þriðja þjónustuþegann frá VIRK til okkar. Sá starfsmaður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur líka reynst afar vel. Það er því hátt hlutfall þjónustuþega frá VIRK, þrír af átta starfsmönnum,“ segir þær Stefanía og Elfa og eru greinilega ánægðar með þessa niðurstöðu.

„Við höfum vonandi náð að láta í ljós hvað við erum ánægðar með starfsfólkið okkar frá VIRK og einnig hvað við erum stoltar að fá þessa viðurkenningu frá VIRK – að Skatt bókhaldsstofan hafi verið valin sem VIRKT fyrirtæki þessa árs,“ segja þær í kveðjuskyni.

Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason

Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2026

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband