Fara í efni

1. Beiðni frá lækni

Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá lækni og ræða við hann hvort starfsendurhæfing hjá VIRK sé viðeigandi á þessum tímapunkti.

Ef læknirinn telur starfsendurhæfingu viðeigandi þá sendir hann beiðni til VIRK.

Hér fyrir neðan er farið yfir helstu skilyrði sem einstaklingar þurfa að uppfylla til að eiga rétt á starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK og einnig er farið yfir helstu ástæður þess að einstaklingar eru ekki teknir inn í þjónustu VIRK heldur vísað annað.

Réttur til þjónustu VIRK og helstu ástæður frávísana

Meginskilyrði fyrir þjónustu hjá VIRK eru eftirfarandi:

  1. Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.
  2. Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
  3. Að geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram.

Auk þess er nauðsynlegt að:

  • Einstaklingur þarf að vera fær um að axla ábyrgð á eigin lífi, geta tekið þátt í athöfnum daglegs lífs og sinnt nauðsynlegum þáttum starfsendurhæfingar.
  • Einstaklingurinn hafi þörf fyrir þjónustuna og hún sé til þess fallin að auðvelda honum að fara aftur til vinnu.
  • Þjónustan sé líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt.
  • Samráð sé við viðeigandi aðila, s.s. heimilislækni, meðferðaraðila og atvinnurekanda þegar við á.

 

Helstu ástæður frávísana

Erlendir ríkisborgarar og þjónusta VIRK


Þessi skilyrði eru samkvæmt skipulagsskrá VIRK og lögum nr. 60/2012.

Til að einstaklingur eigi rétt á þjónustu VIRK þarf að liggja fyrir tilvísun frá lækni þar sem heilsubrestur sem hægt er að vinna með í starfsendurhæfingu er staðfestur. Ráðgjafar VIRK starfa alltaf í samráði við lækni. Mögulegt er fyrir lækni að fylla út og senda beiðni um þjónustu sem aðgengileg er í Sögu og á vefsíðu VIRK.

Öllu jöfnu hefur einstaklingur gagn af starfsendurhæfingu ef útlit er fyrir að hann komist ekki aftur í vinnu án markvissrar, sérhæfðrar aðstoðar og talið raunhæft og tímabært að auka starfsgetu með starfsendurhæfingu.

 

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband