Erla Hrönn Júlíusdóttir
Erla Hrönn Júlíusdóttir er með BA í sálfræði, M.ED. í menntunarfræðum og starfar sem kennari í unglingadeild Foldaskóla í Grafarvogi. Hún nýtti sér einstaklingsþjónustu forvarnasviðs VIRK með góðum árangri.
„Í febrúar 2025 var ég komin með mikil einkenni streitu og álags. Einkenni eins og mikill kvíði, áhyggjur, þreyta, úthaldsleysi, eirðarleysi, óróleiki, einbeitingarleysi, minnisleysi og mikil aftenging við umhverfi og aðstæður sem varð á endanum hreinlega hættulegt.
Ég pantaði tíma hjá heimilislækni því á þeirri stundu vissi ég að eitthvað alvarlegt væri að. Í því viðtali nefndi heimilislæknirinn minn forvarnasvið VIRK sem úrræði í mínum veikindum, heilsugæslan sem ég var hjá var í samstarfi við VIRK og væri þetta nýtt verkefni hjá þeim. Í framhaldi sendir heimilislæknirinn minn beiðni til VIRK,“ segir Erla Hrönn aðspurð um aðdraganda þess að hún leitaði til forvarnasviðs VIRK.
Forvarnaráðgjafinn mikilvægur
Hvernig var upplifun þín af ferlinu?
„Upplifun mín af ferlinu var mjög góð, ég var komin með viðtal hjá forvarnaráðgjafa VIRK tveimur vikum eftir að læknirinn minn sendi beiðni sem ég tel hafa verið úrslitaatriði varðandi bataferlið, því ef biðtíminn hefði verið lengri er ég ekki viss um að bati minn hafi gengið jafnvel og raun ber vitni og fjarvera mín frá vinnu hefði orðið mun lengri.“
Hvernig gekk, hvað gagnaðist þér best?
„Það gekk mjög vel heilt á litið. Það sem gagnaðist mér best var tvennt: Númer eitt, forvarnaráðgjafinn sem tók á móti mér hjá VIRK var yndisleg. Hún greindi stöðu mína og benti mér á hvað væri gott að gera en jafnframt passaði hún að hafa það þannig að ég hefði orku og getu til að framkvæma það.
Hún beindi mér á vissa braut varðandi úrræði sem voru sniðin að mér. Hún var alltaf hvetjandi og náði mér á rétta braut ef bakslag varð. Númer tvö var það markþjálfinn sem ráðgjafinn sendi mig til, hann rammaði vel og vandlega inn styrkleika mína og lét mig nota þá bæði í vinnu og einkalífi.“
Ég lærði að nýta mér einföld en áhrifarík bjargráð gegn streitu og álagi sem ég nota enn í dag og mun halda áfram að nýta mér.
Aftur til vinnu sterkari
Hver voru áhrif aðstoðar forvarnasviðsins á vinnugetu og almenna líðan þína?
„Áhrifin voru mjög góð. Ég efldist á margan hátt. Ég fór að setja skýr mörk í vinnu og einkalífi og lærði að hlusta á mig og mína líðan, í raun að leyfa mér að „líða“ sem er nauðsynlegt til að vinna úr hlutum.
Ég lærði að nýta mér einföld en áhrifarík bjargráð gegn streitu og álagi sem ég nota enn í dag og mun halda áfram að nýta mér því dagarnir eru stundum erfiðir og stundum ekki, bara eins og lífið er. Áhrifin eru meðal annars þau að ég sníð mér stakk eftir vexti, tek ekki að mér of mörg verkefni og tek ekki vinnuna með mér heim.
Úthald varð betra, einbeiting jókst, eirðarleysi, áhyggjur og kvíði urðu minni. Núvitund varð miklu betri og líðan er stöðugri. Það má segja að ég hafi orðið ég sjálf aftur, jákvæð, hress og félagslynd, eitthvað sem ég fann ekki fyrir þegar ég labbaði inn í VIRK en eru lýsandi mínum persónuleika þegar allt er eins og það á að vera.
VIRK bjargaði mér og það var gert hratt og örugglega. Vinnan með VIRK skilaði mér aftur til vinnu sterkari og tilbúnari en ég var til að takast á við allskonar verkefni. Takk fyrir að bjarga mér VIRK,“ segir Erla Hrönn að lokun.
Mynd: Lárus Karl Ingason
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2026