Guðfinna Þórdís Gunnarsdóttir
Guðfinna Þórdís Gunnarsdóttir lauk starfsendurhæfingu hjá VIRK fyrir rúmu ári. „Þrettán mánuðir síðan, ég hef aldeilis hoppað langt síðan ég byrjaði hjá VIRK og þangað sem ég er komin í dag,“ segir Guðfinna og brosir. En líf Guðfinnu hefur ekki alltaf verið létt.
„Ég varð fyrir einelti í grunnskóla, það hafði mikil áhrif og ég vann lengi vel ekki úr þeirri reynslu. Það gerði ég hins vegar hjá VIRK, þar fékk ég alla þá þjónustu sem ég þurfti,“ segir Guðfinna. „Ráðgjafinn minn kom mér til sálfræðings og skráði mig á líkamsræktarnámskeið í Orkustöðinni í Njarðvík.“
„Ég er uppalin í Þorlákshöfn til fermingaraldurs en þá fluttum við mamma og systir mín í Árbæ í Reykjavík. Foreldrar mínir skildu þegar ég var ellefu ára. Ég varð líka fyrir smávegis einelti í Árbæjarskóla en þar fékk ég miklu meiri stuðning en í Þorlákshöfn. Þannig var það þá. Á litlum stöðum er að minni hyggju oft meira um einelti en í stærri sveitarfélögum. Það er líka meira um viðeigandi þjónustu þar sem margt fólk býr.“
Ég kom inn í þjónustuna hjá VIRK með eitt markmið – að leggja mig alla fram og ná bata til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.
Hvað hrjáði þig mest þegar þú óskaðir eftir þjónustu hjá VIRK?
„Við skulum orða þetta eins og það var – ég óskaði ekki eftir þjónustu sjálf hjá VIRK. Ég fór inn á Reykjalund í meðferð hjá efnaskipta- og offituteymi þar. Ég er búin að vera í megrun síðan ég var ellefu ára gömul, eða kannski fyrst í aðhaldi. Ég er búin að prófa alla kúra sem sögur fara af, svo sem ketó, danska kúrinn, Herbalife og svo framvegis en ekkert dugði til langframa.
En á Reykjalundi var tekið vel við mér og ég gripin þegar þunglyndi og kvíði var í hæstu hæðum. Ég hafði, áður en ég kom á Reykjalund verið að vinna með langveika stúlku, hún var heima í þrjár vikur og fór svo í vikufrí. En þessar þrjár vikur vann ég alla daga og það var of mikið. Ég var samt ekki verkjuð heldur fyrst og fremst andlega mjög illa stödd.“
Sálfræðiþjónustan gerði mikið
Hvað var þá gert í málunum?
„Félagsráðgjafi hjá Reykjalundi lagði til að ég segði upp vinnu minni og allt teymið sem hafði mig til meðferðar lagði sig fram um að koma mér í þjónustu hjá VIRK. Þegar ég fór fyrst inn á Reykjalund var ég um tvö hundruð kíló en hreyfði mig samt eins og ég gat þegar ég komst inn á Reykjalund og seinna hjá VIRK.
En eftir að ég lauk þjónustu þar fór ég í efnaskiptaaðgerð, það er stundum kallað hjáveituaðgerð, maginn er minnkaður. Nú hef ég léttst um hundrað og tuttugu kíló frá því ég var þyngst. Það er mikill léttir. Og líður mér andlega miklu betur.“
VIRK getur rétt þér öll réttu tólin en ef þú vilt ekki vinna vinnuna þá situr þú fastur þar sem þú komst inn.
Hvað var það sem gerði mest fyrir þig í þjónustunni hjá VIRK?
„Það var sálfræðimeðferðin sem ég komst í á vegum VIRK. Það var ofboðslega erfitt að komast í gegnum fyrstu tímana, horfast í augu við hvar ég væri stödd og hvert vandamálið væri. Ég gerði þetta í gegnum tölvusamskipti, horfði á sálfræðing á tölvuskjá og hann á mig en ég var samt í öryggi heima hjá mér sem var mér mikilvægt.
Við fórum í gegnum HAM – sem er hugræn atferlismeðferð. Ef þú ert tilbúin að vinna verkið þá virkar sú meðferð hundrað prósent. Ég kom inn í þjónustuna hjá VIRK með eitt markmið – að leggja mig alla fram og ná bata til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.“
Hver er þín menntun?
„Ég kláraði bifvélavirkjann árið 2015 en í dag er ég í sjúkraliðanámi. Ég vil frekar gefa frá mér hið jákvæða viðhorf sem ég hef tileinkað mér og vera til staðar fyrir fólk en gera við vélar, nema kannski fyrir sjálfa mig. Ég vinn í dag á hjúkrunarheimilinu Sólvangi og sú vinna gefur mér mikla gleði. Mér finnst svo gaman að vinna með fólki, ég hef alltaf verið sögð mikið „partýdýr“,“ segir Guðfinna og hlær.
Þýðingarmikið að hlusta á innri röddina
Hvað fleira kom þér að gagni í þjónustunni hjá VIRK?
„Ráðgjafinn minn hjá VIRK vildi að ég færi út á meðal fólks og lagði til að ég væri að hreyfa mig hjá Orkustöðinni. Það var erfitt fyrst að mæta þar en ég fékk frábæran þjálfara sem var með þetta námskeið og endalausan stuðning frá ráðgjafanum mínum hjá VIRK og því fólki sem var með mér á líkamsræktarnámskeiðinu. Við spjölluðum mikið en ég hef haldið sambandi við það fólk sem ég kynntist þarna. En það var mikilvægt skref að fara á þetta námskeið, vera innan um fólk og ræða við það.
VIRK aðstoðaði mig mikið með því að koma mér í samband við annað fólk – koma mér út í lífið aftur. Ráðgjafinn sagði við mig: „Batinn sem þú vilt stendur og fellur með þér“. Ég tók þetta inn og þetta er mitt sterka leiðarljós í dag. VIRK getur rétt þér öll réttu tólin en ef þú vilt ekki vinna vinnuna þá situr þú fastur þar sem þú komst inn.
Mér fannst líka frá upphafi þýðingarmikið að hlusta á mína innri rödd í þessu ferli frekar en að hlusta á neikvæðu raddirnar sem koma úr öllum áttum í samfélaginu ef þú ert ekki alveg samkvæmt staðalímyndinni.“
VIRK greip mig og hjálpaði mér
Hvernig er staðan hjá þér í dag?
„Þegar ég hætti í þjónustunni hjá VIRK hafði ég sótt um 250 störf en fékk ekkert þeirra. Að vísu tvö viðtöl sem leiddu ekki til neins. Þá brá ég á það ráð að fara í fjarbúð, skildi eiginmanninn eftir og flutti á Kirkjubæjarklaustur þar sem vinkona mín býr og fékk þar vinnu í sundlauginni og sem stuðningsfulltrúi á leikskóla, eiginlega hundrað og fjörutíu prósent vinnu.
Þetta voru mikil viðbrigði en ofboðslega gott, þarna varð ég að halda áfram og vinna með það sem ég hafði tileinkað mér hjá VIRK. Hjónabandið þoldi þetta mjög vel. Bæði gerir fjarlægðin fjöllin blá og svo ber þess að geta að maðurinn minn hefur líka fengið góða þjónustu hjá VIRK og skildi því vel hvað ég var að fara í gegnum. Mamma var líka ofboðslega mikill stuðningur,“ segir Guðfinna og brosir.
Allt það sem er að gerast hjá mér núna er af því að ég fékk svo mikla og góða aðstoð.
„Hvað varstu lengi í fjarbúðinni?
„Í sex mánuði. Þá sótti ég um starf hjá Landspítalanum og fékk starfið þar. Ég vann á augndeildinni á Eiríksgötu og var þar í áttatíu prósent starfi, það var ekki í boði meira. Mjög mikið af konum vinna þar og þær og yfirmenn mínir hvöttu mig til að fara í kvöldskóla og læra sjúkraliðann. Síðustu áramót tók ég svo þá ákvörðun að hætta á mínum frábæra vinnustað á Eiríksgötunni til þess að fara að vinna meira í umönnun sem tengist námi mínu hundrað prósent.
Ég stunda mitt nám í kvöldskólanum hjá FB í Breiðholti. Námið á að vera þrjú ár og ef ég held mér við efnið eins og ég er að gera í dag þá mun útskrifast um jólin 2027. Staðan hjá mér núna er sem sagt þannig; ég er í hundrað prósent vinnu og tek þrjá til fjóra áfanga á hverri önn í skólanum. Það er á dagskrá að eignast börn og mikill þrýstingur í þá átt frá umhverfinu en ég ætla að ljúka námi fyrst.
Allt það sem er að gerast hjá mér núna er af því að ég fékk svo mikla og góða aðstoð. VIRK greip mig og hjálpaði mér að komast í gegnum erfiðasta tímann í þessu ferli.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2026