Pétur Már Guðjónsson
Pétur Már Guðjónsson er fæddur 1971 og er frá Akureyri. „Ég lauk starfsendurhæfingu hjá VIRK í september 2024 eftir sextán mánuði, byrjaði í maí 2023,“ segir Pétur.
Hvað varð til þess að þú leitaðir til VIRK?
„Ég fór í það sem kallað er „burnout“ eða kulnun. Ég var inni í eldhúsi heima hjá mér þegar þetta gerðist, við eldhúsbekkinn var eins og einhver slægi mig í bakið, ég fór að ofanda og fékk einhvers konar taugaáfall. Sem betur fer var konan mín heima, hún hafði starfað á bráðamóttöku, henni fannst líklegast að ég væri að fá taugaáfall og hún aðstoðaði mig, talaði við mig og róaði mig. Sama dag leitaði ég til læknis. Hann sagði að ég hefði ofgert taugakerfinu og skrifaði upp vottorð um að ég þyrfti að fara í veikindaleyfi,“ segir Pétur Már.
Hvað starfaðir þú við?
„Ég var í hlutastörfum hér og þar, við viðburðastjórnun, leiklistarkennslu á tveimur stöðum og svo var ég flugvallarstarfsmaður. Þessi samsetning kallaði á mismikla vinnu en reyndist of mikið til langframa.
Ég er með viðburðastjórnunarmenntun og hef tekið í fjarnámi og á ýmsum námskeiðum leiklistarnám, var um tíma í Listaháskóla Íslands að læra leikstjórn með ungu fólki, það er reyndar mín sérgrein. Áður en þetta gerðist starfaði ég líka við fjölmiðlun, rak útvarpsrás hér á Akureyri og vann fyrir um tuttugu árum hjá RÚV, síðast var ég svo hjá Árvakri K100 í fréttalestri.“
Ég mætti mjög vel í öll úrræði og leit bara á þetta sem mína vinnu á þeim tíma.
Leið vel með að fara í þjónustu hjá VIRK
Hver vísaði þér svo til VIRK?
„Ég fór til félagsráðgjafa hér fyrir norðan og hann lagði til að ég pantaði tíma hjá lækni sem myndi svo senda inn beiðni um þjónustu hjá VIRK. Mér fannst gott að fá þessa hjálp og þegar ráðgjafinn frá VIRK hringdi þá leið mér vel með þessa ákvörðun.“
Hvað tók svo við?
„Þá tók við áætlun um endurhæfingu og aðstoð við að reyna að lifa þetta af fjárhagslega. Ráðgjafinn hjálpaði mér að fylla út pappíra og sagði mér hvernig það gengi fyrir sig að fá endurhæfingarlífeyri. Það gekk nokkuð fljótt. Ég hafði samt óneitanlega töluverðar fjárhagsáhyggjur í fyrstu, fannst þetta vera mikil óvissa. Áhyggjur af fjármálum eru alltaf slæmar ekki síst ef maður er illa staddur andlega, maður finnur til vanmáttar þegar maður getur ekki bjargað sér, getur ekki unnið.“
Varst þú strax ákveðinn í að komast út á vinnumarkað aftur?
„Já afdráttarlaust var ég það. Svo gekk tilveran upp og niður, stundum var ég nokkuð hress en aðra daga týndur og vonlítill.“
Opnaði augu mín að heyra sögur annarra
Hvaða áætlanir voru gerðar í átt að endurhæfingu?
„Til að byrja með vorum við ráðgjafinn að stefna á mikla hreyfingu, fara í ræktina og á líkamsræktarnámskeið sem sérstaklega eru ætluð þeim sem hafa lent í andlegri kulnun. Ég á það til að fara fram úr mér, ætla mér of mikið. Þess vegna var partur af endurhæfingunni að læra að setja sjálfum mér mörk. Það gengur reyndar ekki alltof vel enn þann dag í dag en ég lærði ýmislegt hvað varðar sjálfan mig í þeim efnum íþessu ferli.“
Hvað með andlegu hliðina?
„Ég sat líka námskeið hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands þar sem farið var yfir andlega líðan. Ætli mesti lærdómurinn hafi ekki verið að læra á samfélagið og samskipti við aðra. Á þessu námskeiði sat ég með fólki í sömu sporum og ég sjálfur var, það hjálpar gríðarlega að hafa félagsskap í svona ástandi, maður getur speglað sig, skoðað hvernig hinum líður. Það opnaði oft augu mín fyrir eigin vanda að heyra annarra sögur.“
Það opnaði oft augu mín fyrir eigin vanda að heyra annarra sögur.
Hjálpaði leiklistarreynslan þér í þessu ferli?
„Að einhverju leyti en ekki síður önnur lífsreynsla. Ég var ekki neitt að vinna frá því í janúar 2023 og þar til í nóvember sama ár en ég hélt áfram í þjónustunni hjá VIRK þótt ég byrjaði að vinna, mjög lítið reyndar í fyrstu. Ég byrjaði í smáum skömmtum hjá flugvernd Isavia þar sem ég hafði áður starfað. Það gekk ágætlega af því að ég hafði styrk frá ráðgjafa VIRK annars vegar og hins vegar mikinn sveigjanleika frá vinnuveitanda.“
Hvernig er staðan hjá þér núna?
„Í dag er staðan þannig að ég er búinn að vera í smá basli en líður oftast ágætlega, er á uppleið og sé fram á að halda áfram með lífið og starfið. Ég er aftur farinn að leikstýra auk þess að vinna hjá flugvernd og jafnframt kenni ég leiklist hjá Akureyrarbæ fyrir börn í áttunda til tíunda bekk grunnskólans.“
Mér leiðist meðalmennska
Hvernig hefur þér gengið að endurheimta starfsorku?
„Allan þennan tíma hef ég þurft að hugsa vel um orkuna mína. Ég hef gjarnan þurft að leggja mig um miðjan dag eða skipta verkefnum dagsins upp. Ég er miklu meðvitaðri um að ég þarf að kunna mér hóf. En ég dett enn í að ætla mér of mikið, taka of mikið að mér og ég vil alltaf gera hlutina hundrað prósent. Mér leiðist meðalmennska.
Vissulega fannst mér í upphafi nokkur skömm að þurfa að leita mér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar. Sú tilfinning leið þó hjá og ég ákvað að vera opinn gagnvart sjálfum mér. Ég skrifaði meira að segja grein um kulnun og það að vera í slíku ástandi og birti þá grein á Akureyri.net í lok apríl 2023 en áfallið dundi yfir í janúar það ár sem fyrr sagði.“
Ég hef komist í gegnum skafla og ég held að ég sé að nýta mér það sem við ráðgjafinn minn vorum að vinna með.
Hvað viltu segja um samstarfið við VIRK?
„Þótt þjónustan hafi gengið vel þá hef ég stundum verið í slíku basli á síðasta ári að hugur minn hefur leitað aftur til VIRK. Þar var gott að vera. Ráðgjafinn minn þar las vel í mínar þarfir og samstarf okkar var frábært. Staðan núna er þannig að mér líður miklu betur þótt ég sé enn undir miklu álagi og ekki alltaf nógu skynsamur hvað snertir álag og fyrirætlanir.
Ég hef komist í gegnum skafla og ég held að ég sé að nýta mér það sem við ráðgjafinn minn vorum að vinna með. Ég hef vissulega nokkrum sinnum farið fram úr mér eftir að ég útskrifaðist frá VIRK en ég hef fengið góð verkfæri og nota þau.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Auðunn Níelsson
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2026