Fara í efni

Þjónusta við einhverfa í starfsendurhæfingu hjá VIRK

Til baka
Þórey Edda og Guðrún Rakel
Þórey Edda og Guðrún Rakel

Þjónusta við einhverfa í starfsendurhæfingu hjá VIRK

Þórey Edda Heiðarsdóttir sviðsstjóri mats og rýni 
Guðrún Rakel Eiríksdóttir sviðsstjóri forvarna 

Meginmarkmið VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði. Þjónustuþegar VIRK eru gríðarlega fjölbreyttur hópur sem takast á við ýmiss konar áskoranir. 

Einhverfir einstaklingar eiga, eins og aðrir á aldrinum 16-70 ára, fullan rétt á starfsendurhæfingu að uppfylltum skilyrðum um þjónustu hjá VIRK. Þjónustan er ávallt einstaklingsmiðuð og er færni einstaklinga metin í samhengi við heilsubrest með tilliti til hindrana og styrkleika hvers og eins.

Einhverfir einstaklingar eiga, eins og aðrir á aldrinum 16-70 ára, fullan rétt á starfsendurhæfingu að uppfylltum skilyrðum um þjónustu hjá VIRK. 

Umfjöllun um einhverfu hefur aukist töluvert á síðastliðnum árum. Í stuttu máli sagt er einhverfa taugaþroskaröskun og eins og sjá má á heimasíðu Einhverfusamtakanna er einhverfa „meðfædd og til staðar alla ævi en kemur fram með ólíkum hætti allt eftir aldri okkar, þroska og færni. Greining á fullorðinsaldri hefur færst mjög í aukana á undanförnum árum samfara aukinni þekkingu og innsýn í veruleika einhverfs fólks” 1.

Þegar litið er til einhverfra er vissulega um afar fjölbreyttan hóp að ræða. Birtingarmynd þeirra eiginleika sem einhverfir búa yfir er einstaklingsbundin og áhrif þessara eiginleika á daglegt líf koma fram með mismunandi hætti. Þarfir einhverfra eru breytilegar eftir aldri og aðstæðum og því mikilvægt að þjónusta við einhverfa fullorðna taki mið af því. Eins þarf að líta til þess að einhverfumiðuð þjónusta standi til boða fyrir alla aldurshópa í starfsendurhæfingu. Þekkt er að samsláttur er við ýmsa líkamlega sjúkdóma eins og flogaveiki og svefnvanda. Eins eru geðraskanir hjá einhverfum algengar en það getur í vissum tilfellum verið bein eða óbein afleiðing þess að lifa í óeinhverfum heimi.

Greina þarf styrkleika, áskoranir og þarfir hvers og eins

Þegar við á getur starfsendurhæfing reynst afar gagnleg þjónusta fyrir einhverfa einstaklinga sem þurfa aðstoð við að komast í vinnu við hæfi. Mikilvægt er að vinnuumhverfið sé styðjandi og að skilningur ríki á vinnustaðnum þegar kemur að einhverfu starfsfólki. Markmiðið er ekki eingöngu að aðstoða fólk í vinnu heldur skiptir miklu máli að um farsæla atvinnuþátttöku sé að ræða og að í því samhengi sé litið til lengri tíma. VIRK hefur lagt áherslu á að bjóða upp á sérhæfð úrræði fyrir einhverfa í samstarfi við úrræðaaðila og atvinnurekendur. Hluti af því að veita einhverfumiðaða nálgun er meðal annars að greina styrkleika, áskoranir og þarfir hvers og eins. Fyrir einhverfa geta þættir eins og sveigjanleg vinnuskilyrði og réttur stuðningur á vinnustað skipt afar miklu máli þegar kemur að því að ná fótfestu á vinnumarkaði.

Þegar við á getur starfsendurhæfing reynst afar gagnleg þjónusta fyrir einhverfa einstaklinga sem þurfa aðstoð við að komast í vinnu við hæfi. Mikilvægt er að vinnuumhverfið sé styðjandi og að skilningur ríki á vinnustaðnum þegar kemur að einhverfu starfsfólki.

Á Íslandi er takmarkaður aðgangur að einhverfugreiningu á fullorðinsaldri og því getur verið erfitt að átta sig á fjölda þeirra sem þurfa einhverfumiðaða nálgun í starfsendurhæfingu. Í byrjun júní 2024 var send út óformleg könnun til ráðgjafa VIRK varðandi fjölda einhverfra í þjónustu auk fleiri spurninga. Markmiðið var að kanna fjölda einhverfra í starfsendurhæfingu og hvort tækifæri væru til þess að bæta þjónustu við þennan hóp. Samkvæmt svörum ráðgjafa VIRK má gróflega áætla að fjöldi einhverfra í þjónustu VIRK í júní 2024 hafi verið um 16%, óháð því hvort formleg greining lægi fyrir um einhverfu.

Aukin sérhæfð þjónusta fyrir einhverfa í starfsendurhæfingu

Vitneskja um einhverfu hefur aukist töluvert í samfélaginu á síðastliðnum árum. VIRK hefur aukið sérhæfða þjónustu við þennan hóp á undanförnum árum, bæði í formi einstaklings- og hópúrræða. Vegna aukinnar umfjöllunar og þekkingar á einhverfu hefur mikill áhugi verið til staðar hjá ráðgjöfum og sérfræðingum VIRK þegar kemur að málefnum einhverfra. Starfsfólk VIRK hefur kallað eftir fræðslu og stuðningi til að koma sem best til móts við þarfir einhverfra í þjónustu. Síðastliðin ár hefur starfsfólki meðal annars verið boðið upp á fræðslu frá Einhverfusamtökunum, vinnustofu um einhverfa í starfsendurhæfingu og fræðslu frá fagfólki með sérþekkingu á einhverfu.

Hjá VIRK er nú verið að koma á laggirnar sérstöku fagteymi sem hefur það hlutverk að skoða og meta þarfir einhverfra og gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja faglega þjónustu. Um er að ræða þróunarverkefni en teymið mun samanstanda af sérfræðingum, ráðgjöfum og atvinnulífstenglum hjá VIRK. Samhliða starfsendurhæfingu verður sérstaklega haldið utan um fjölda einhverfra í þjónustu, árangur úrræða og óskað eftir endurgjöf frá þjónustuþegum varðandi ýmsa þætti í starfsendurhæfingu. Fagteymið mun einnig vera ráðgefandi og styðja annað starfsfólk VIRK eftir þörfum.

Hjá VIRK er nú verið að koma á laggirnar sérstöku fagteymi sem hefur það hlutverk að skoða og meta þarfir einhverfra og gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja faglega þjónustu.

Árlega veitir VIRK styrki til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna sem tengjast starfsendurhæfingu (muna hlekk). Nú í ár var sérstaklega horft til verkefna og úrræða sem sniðin eru að þörfum einhverfra einstaklinga í starfsendurhæfingu í styrkveitingum VIRK. Mun það liggja fyrir á næstu mánuðum hvaða umsóknir hljóta styrk og eru miklar vonir bundnar við að fá góðar og faglegar umsóknir sem snúa að einhverfum.

Að lokum má þess geta að eitt af verkefnum nýs forvarnasviðs VIRK verður að útbúa efni sem mun birtast á uppfærðum forvarnavef VIRK, www.velvirk.is. Tilgangurinn er meðal annars að gefa gagnleg ráð til stjórnenda sem vilja bæta eða viðhalda góðu vinnuumhverfi og styðja við sitt starfsfólk. Hægt verður að nýta þann vettvang í að stuðla að aukinni þekkingu og skilningi á einhverfu á íslenskum vinnumarkaði.

Heimilidir

  1. https://www.einhverfa.is/, tekið af vef Einhverfusamtakanna 28.2.2025.

Greinin birtist í ársriti VIRK 2025.


Fréttir

06.05.2025
28.05.2025

Hafa samband