Fara í efni

Styrkjum VIRK úthlutað

Til baka
Styrkhafar ásamt Vigdísi forstjóra og Jónínu sviðsstjóra.
Styrkhafar ásamt Vigdísi forstjóra og Jónínu sviðsstjóra.

Styrkjum VIRK úthlutað

VIRK veitir einu sinni á ári styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi.

Fjöldi úrræða hjá VIRK hafa orðið til vegna þessara styrkveitinga í gegnum árin. Að þessu sinni var horft sérstaklega til þess að styrkja verkefni og/eða úrræði sem sniðin eru að þörfum einhverfra einstaklinga. Alls bárust 47 umsóknir og 22 þeirra fengu styrk þetta árið.

Styrkir veittir til rannsóknarverkefna

Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir - Kynjaðar staðalímyndir einhverfu og upplifun seinhverfra kvenna og kvára.

Rannsaka á hóp seinhverfra kvenna og kvára og kanna upplifun þeirra af kynjuðum staðalímyndum einhverfu og með hvaða hætti þær hafa mótað líf þeirra. Rannsóknin er hluti af meistaraverkefni styrkþega við kynjafræði í Háskóla Íslands.

Elísabet Kristjánsdóttir - Starf við hæfi: Sjónarhorn og reynsla háskólamenntaðra einhverfra kvenna

Rannsóknin mun varpa ljósi á sjónarhorn og reynslu einhverfra háskóla-menntaðra kvenna á aldursbilinu 30-60 ára af því að sækja um og stunda vinnu á eigin fagsviði. Rannsóknin er hluti af meistaraverkefni styrkþega í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. 

Styrkir veittir til þróunarverkefna 

Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík - Námslína fyrir einhverf ungmenni

Verkefnið miðar að því að bæta við menntunarúrræði fyrir einhverft ungt fólk á Íslandi. Á námskeiðum munu nemendum læra grunnatriði forritunar og er byggt á hefðbundnu inngangsnámskeiði í forritun.

Karl Jónas Smárason - Sjálfstrausts Gildran: Vanmat í innra lærða trúarkerfi

Þróunar á námskeiði þar sem unnið er með sjálfstraust út frá hugmyndafræði CFT og ACT - Compassion-Focused Therapy; Acceptance and Comitment Therapy. Sjálfstraust og það að trúa á eigið ágæti getu verið hornsteinn þess að treysta sér til að sækja um og halda vinnu eða klára nám. Lögð er áhersla á að bæta sjálfstraustið með aðgerðum – sjálfstraust fæst með aðgerðum, þrátt fyrir óöryggi.

Traustur kjarni - Traust tengsl – Intentional Peer Support í starfsendurhæfingu

Þróun og innleiðingu jafningjastuðnings (IPS - Intentional Peer Support) á Ísafirði. Verkefnið byggir á þjálfun í jafningjastuðningi og eftirfylgni með þátttöku í samtalsþjálfun í stuðningshópum.

Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir - Skynvin, einhverfufræðsla og ráðgjöf

Verkefnið fjallar um að þróa rafrænt námskeið fyrir einhverfa.Farið verður yfir grunnatriði einhverfu en einnig kafað dýpra í kulnun hjá einhverfum og ráð við henni. Allt efni er sett fram frá sjónarhorni einhverfra.

Heilsuþekking ehf - Langvinnir verkir – skref að betri heilsu

Þróun á netnámskeiði um langvinna verki sem verður bæði fræðilegt og verklegt. Markhópurinn eru allir sem glíma við langvinna verki og þar með talið einhverfir sem rannsóknir hafa sýnt að séu tvöfalt líklegri til að þróa með sér langvinna verki.

Hringsjá náms- og starfsendurhæfing - Geðrækt á rófinu

Þróun á námskeið fyrir einstaklinga á einhverfurófi sem eru í starfsendur-hæfingu. Námskeiðið byggir á að aðlaga hugræna atferlismeðferð að þörfum einstaklinga á einhverfurófi.

Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar - Mín leið

Þróun á sérhæfðu úrræði sem nýtist einstaklingum á einhverfurófi og eru í þörf fyrir þverfaglega heildræna starfsendurhæfingu. 

Styrkir veittir til virkniúrræða

Klúbburinn Afstaða, Reykjavík

Ráðgjöf og félagslegur stuðningur til handa föngum, fyrrum föngum og aðstandendum.

Bataskóli Íslands

Skólinn er fyrir alla 18 ára og eldri sem glíma við geðrænar áskoranir, aðstandendur fólks með geðrænar áskoranir og starfsfólk á heilbrigðis og velferðarsviði. Flestir sem sækja skólann eru þar vegna eigin áskorana.

Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu

Undirbúa nemendur á aldrinum16- 24 ára fyrir nám og vinnu. Fjölsmiðjan er fyrst og fremst virkniúrræði og viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili hjá Menntamálastofnun.

Fjölsmiðjan á Suðurnesjum

Atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 24 ára sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu.

Klúbburinn Geysir, Reykjavík

Atvinnumiðað endurhæfingarúrræði fyrir fólk með geðraskanir. Grundvallarmarkmið er að virkja félaga klúbbsins til starfa og koma þeim út í meiri samfélagsvirkni jafnt til atvinnu og menntunar sem og félagslegrar þátttöku.

Grófin geðrækt, Akureyri

Grófin er geðræktarstaður - úrræði fyrir fólk 18 ára og eldri, sem hefur upplifað geðræna erfiðleika og vill vinna að bata, með jafningjum í samvinnu við fagfólk Grófarinnar og reynda notendur.

Hjálparstarf kirkjunnar, Reykjavík

Virkni- og valdeflingarverkefni fyrir konur sem eru á örorkulífeyri með barn/börn á framfæri. Markmið verkefnisins eru að þátttakendur bæti sjálfsmynd og trú á eigin getu svo koma megi í veg fyrir félagslega einangrun og að þær komist út á vinnumarkaðinn eða í aðra virkni.

Hlutverkasetur, Reykjavík

Virknimiðstöð sem býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífsgæðin.

Hugarafl, Reykjavík

Samtök fólks með andlegar áskoranir og er notendastýrð starfsendurhæfing. Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar.

Klúbburinn Strókur, Selfossi

Strókur er bæði athvarf og virknimiðstöð þar sem einstaklingar eru studdir í virkni og bata eftir að hafa lent utan vinnumarkaðar sökum geðraskana og/eða eru að glíma við félagslega einangrun.

Vesturafl, Ísafirði

Geðræktar-og virknimiðstöðin Vesturafl hefur tvískipt hlutverk. Annars vegar að rjúfa félagslega einangrun og hvetja notendur til þátttöku í samfélaginu og hins vegar að reka Fjölsmiðju þar sem áhersla er lögð á ungt fólk (16-30 ára).

Specialisterne á Íslandi, Reykjavík

Specialisterne starfað í þágu einstaklinga, 18 ára og eldri, með greiningu á einhverfurófinu og stuðla að því að þessir einstaklingar eigi jöfn tækifæri og aðrir á atvinnumarkaði.

Bergið Headspace, Reykjavík

Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

Safn virkniúrræða sem styðja við, auka virkni og árangur í starfsendurhæfingu má finna á hér.

Auk ofangreindra styrkja þá veitir VIRK styrki árlega til úrræða fyrir þolendur kynferðisofbeldis, umsóknarfrestur er til og með 10. október n.k. Sjá nánar um styrki VIRK.


Fréttir

27.06.2025
02.05.2025

Hafa samband