Að styðja fólk aftur til virkni á vinnumarkaði
Að styðja fólk aftur til virkni á vinnumarkaði
Samstarfsverkefni VIRK og Vinnumálastofnunar
Haustið 2025 hófst tilrauna- og samstarfsverkefni VIRK og Vinnumálastofnunar með það að markmiði að styðja einstaklinga sem hafa verið lengi atvinnulausir. Í verkefninu er þátttakendum boðin markviss forvarnaþjónusta á vegum VIRK sem miðar að því að efla virkni, styrkja vinnugetu og auka líkur á endurkomu á vinnumarkaði.
Rannsóknir og reynsla sýna að langvarandi atvinnuleysi getur haft neikvæð áhrif á líðan fólks, sjálfstraust og trú á eigin getu. Því lengur sem fólk er utan vinnumarkaðar, þeim mun erfiðara getur reynst að snúa aftur til starfa. Með tímanum getur jafnframt dregið úr virkni í atvinnuleit og tengslum við vinnumarkaðinn. Því er mikilvægt að bjóða upp á stuðning sem hjálpar fólki að virkja eigin styrkleika, endurheimta trú á eigin getu og byggja upp jákvætt viðhorf til atvinnuleitar.
Reynslan jákvæð
Ráðgjafar Vinnumálastofnunar hafa boðið ákveðnum hópi að taka þátt í þessu tilraunaverkefni. Samþykki þeir þátttöku hafa forvarnaráðgjafar VIRK samband, fara yfir næstu skref og veita einstaklingsmiðaðan stuðning eftir þörfum. Samhliða því voru þróuð sérstök úrræði í samstarfi við þjónustuaðila VIRK sem miða að því að efla sjálfstraust, styrkja virkni og styðja fólk í að taka næstu skref í átt að vinnu eða námi. Fyrsti hópur þátttakenda hefur lokið átta vikna námskeiði þar sem lögð var áhersla á markvissa virkni og stuðning í tengslum við líðan og atvinnuleit.
Margir þeirra sem lokið hafa úrræðinu hafa snúið aftur til starfa eða stefna á nám.
Reynslan af verkefninu hefur verið afar jákvæð. Margir þeirra sem lokið hafa úrræðinu hafa snúið aftur til starfa eða stefna á nám. Algengt var að einstaklingar lýstu aukinni virkni, bættri líðan og auknu sjálfstrausti í atvinnuleit. Niðurstöðurnar benda til þess að markviss stuðningur á þessu stigi geti haft veruleg áhrif á möguleika einstaklinga til að komast aftur inn á vinnumarkað.
Mikilvæg viðbót
Verkefnið undirstrikar mikilvægi þess að grípa einstaklinga með markvissum forvörnum og samstarfi ólíkra aðila. Með því að sameina krafta VIRK og Vinnumálastofnunar skapast tækifæri til að styðja betur við fólk sem hefur verið lengi utan vinnumarkaðar og auka líkur á farsælli endurkomu til vinnu.
Unnið er að áframhaldandi þróun verkefnisins og nýr hópur þátttakenda hefur þegar hafið sambærilegt úrræði. Samstarfið er enn í mótun, en reynslan hingað til bendir til þess að þessi nálgun geti verið mikilvæg viðbót í stuðningi við einstaklinga sem standa utan vinnumarkaðar.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.