Fara í efni

Skref fyrir skref - morgunfundur 29. mars

Til baka

Skref fyrir skref - morgunfundur 29. mars

VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins buðu upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði miðvikudaginn 29. mars undir yfirskriftinni „Skref fyrir skref“.

Morgunfundurinn var haldinn hjá VIRK í Borgartúni 18 en einnig sem fjarfundur - upptöku af fundinum má finna hér. 

Dagskrá

Kynning á nýrri vefsíðu og kynningarmyndböndum

Innleiðing Heilsueflandi vinnustaðar hjá Hafnarfjarðarbæ - Hulda Sólveig Jóhannsdóttir

Framkvæmd Heilsueflandi vinnustaðar hjá Eflu - Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Rakel Ýr Guðmundsdóttir

Spurningar og spjall

Morgunfundurinn var sá þrettándi í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband