Fara í efni

Heilsueflandi vinnustaður

Til baka

Heilsueflandi vinnustaður

Líney Árnadóttir VIRK
Inga Berg Gísladóttir embætti landlæknis
Ingibjörg Loftsdóttir VIRK
Gunnhildur Gísladóttir Vinnueftirlitið

 

Heilsueflandi vinnustaður hefur það að markmiði að stuðla að góðri heilsu og vellíðan starfsfólks. Hann byggir starfsemi sína á viðmiðum um heilsueflandi vinnustaði og nýtir til þess gagnvirk verkfæri á vefnum heilsueflandi.is.

Viðmiðin á vefnum eru aðgengileg öllum vinnustöðum á landinu án endurgjalds. Þeir vinnustaðir sem nýta sér viðmiðin á heilsueflandi.is geta merkt sig með merki Heilsueflandi vinnustaðar.

Vinna er góð fyrir andlega og líkamlega heilsu en neikvætt vinnuumhverfi getur leitt til líkamlegs og andlegs heilsufarsvanda og jafnvel brotthvarfs af vinnumarkaði.

Flest verjum við um helmingi vökutímans í vinnunni alla virka daga. Það er því mikilvægt að vinnustaðir bjóði upp á heilbrigt vinnuumhverfi og stuðli að heilsueflingu og vellíðan almennt. Vinna er góð fyrir andlega og líkamlega heilsu en neikvætt vinnuumhverfi getur leitt til líkamlegs og andlegs heilsufarsvanda og jafnvel brotthvarfs af vinnumarkaði.

Margir halda að heilsueflandi vinnustaður snúist um að allir eigi nú að fara út að hlaupa, lyfta eða borða ofurhollt en viðmiðin eru mun víðtækari en svo og hver vinnustaður aðlagar þau að sínum þörfum. Þau snerta á öllum þeim þáttum sem rannsóknir sýna að hafi áhrif á heilsu og vellíðan okkar í vinnu.

Á Heilsueflandi vinnustað er lögð áhersla á:

Fyrir hverja er Heilsueflandi vinnustaður?

Heilsueflandi vinnustaður hentar öllum vinnustöðum óháð stærð, atvinnugrein eða staðsetningu. Hver vinnustaður getur nýtt viðmið Heilsueflandi vinnustaðar út frá sínum þörfum, forsendum og möguleikum. Ávinningur vinnustaða af því að huga að heilsu starfsfólks er óumdeilanlegur og kristallast í eftirfarandi atriðum þegar vel tekst til:

Tilurð viðmiðanna

Viðmiðin fyrir Heilsueflandi vinnustað voru unnin af sérfræðingum VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins. Við gerð þeirra var horft til rannsókna og fyrirmynda erlendis frá, viðmiða embættis landlæknis fyrir Heilsueflandi skóla og Heilsueflandi samfélög, auk Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Viðmiðin voru rýnd af sérfræðingum á hverju fræðasviði fyrir sig. Þannig voru t.d. viðmið fyrir næringu og hreyfingu rýnd af sérfræðingum hjá embætti landlæknis.

Viðmið sem lúta að stjórnun og starfsháttum voru rýnd af stjórnendum, mannauðsstjórum og ráðgjöfum úr atvinnulífinu.

Að lokum voru þau prufukeyrð hjá tíu ólíkum fyrirtækjum sem valin voru úr hópi 70 umsækjenda auk þess að vera innleidd og rýnd hjá VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlitinu. Öll þessi rýni skilaði sér í gagnlegum útfærslum á viðmiðunum sem þurfa þó að vera í stöðugri endurskoðun.

Heilsueflandi vinnustaður - morgunfundir

Í samstarfinu um Heilsueflandi vinnustað hafa verið haldnar kynningar til að styðja við heilsusamlegt vinnumhverfi. Einnig hafa verið haldnar kynningar á vegum Stjórnvísi og félögum mannauðsstjóra. Flestar kynningarnar má nálgast á velvirk.is.

Heilsueflandi vinnustaður er hluti af forvarnarverkefni VIRK sem unnið er í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, embætti landlæknis, Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og Vinnueftirlitið. Forvarnarverkefnið hefur það að markmiði að draga úr líkum á því að einstaklingar falli brott af vinnumarkaði vegna heilsubrests. Aðrir hlutar forvarnarverkefnisins eru m.a. velvirk.is, rannsóknir um áhrifaþætti brottfalls af vinnumarkaði og vitundarvakningar á borð við „Er brjálað að gera“ og „Virkjum góð samskipti“.

Greinin birtist fyrst í ársriti VIRK 2022


Fréttir

21.07.2023
18.07.2023

Hafa samband