Fara í efni

Heilsueflandi vinnustaður

Til baka
Líney og Ingibjörg
Líney og Ingibjörg

Heilsueflandi vinnustaður

Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri og Líney Árnadóttir sérfræðingur hjá VIRK

 

Einn angi forvarnarverkefnis VIRK tengist formlegu samstarfi með embætti landlæknis og Vinnueftirlitinu við að taka saman viðmið fyrir „Heilsueflandi vinnustað“. Samstarfið hófst snemma árs 2019 og er markmið þess að stuðla að betri heilsu og vellíðan á vinnustöðum.

Við gerð viðmiðanna hefur verið horft til þeirra viðmiða sem embætti landlæknis er þegar með fyrir Heilsueflandi skóla og Heilsueflandi samfélög, rannsókna og þeirrar vinnu sem liggur fyrir erlendis og síðast en ekki síst heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Ef allt gengur eftir ættu viðmiðin að geta orðið aðgengileg fyrir alla vinnustaði seinni hluta ársins 2021 svo þeir geti nýtt sér þau til að skapa heilsueflandi umhverfi fyrir starfsfólk sitt.

Útbúin hefur verið vefsíðan heilsueflandi.is fyrir verkefnið sem öll fyrirtæki geta nýtt sér þegar viðmiðin verða aðgengileg en síðan er í þróun og ekki opin eins og er.

„Verkefnið Heilsueflandi vinnustaður er mikilvægur hluti forvarnarverkefnisins en aðrir hlutar þess eru velvirk.is, vitundarvakning samanber „Er brjálað að gera“ verkefnið og rannsókn sem hefur það að markmiði að einangra breytur sem mögulega hafa áhrif á það hvort einstaklingar komast aftur til starfa eftir veikindaleyfi.“

Fyrirtæki tilraunakeyra viðmið og verklag

Frá því í febrúar 2020 hafa viðmið og verklag fyrir Heilsueflandi vinnustaði verið í tilraunakeyrslu hjá nokkrum vinnustöðum og erum við sem að verkefninu stöndum þeim afar þakklát fyrir framtakið. Öllum má vera ljóst að þetta hefur ekki verið auðvelt verkefni samhliða því að takast á við áhrifin af covid, en samt gengið vonum framar.

Vinnustaðirnir sem taka þátt voru valdir úr stórum hópi umsækjenda og var tekið mið af starfsemi, stærð og staðsetningu. Leitast var við að hafa vinnustaðina sem fjölbreyttasta til að hægt væri að prufa verklagið við mismunandi aðstæður. Auk valinna vinnustaða taka stofnanirnar þrjár sem standa að þróun á Heilsueflandi vinnustað einnig þátt. Vinnustaðirnir sem tilraunakeyra verkefnið eru því þrettán talsins og þá má sjá hér að ofan.

En hvað er Heilsueflandi vinnustaður?

Heilsueflandi vinnustaður er vinnustaður sem hefur sett sér það markmið að stuðla að betri heilsu og vellíðan starfsfólks. Markmiðinu nær vinnustaðurinn með því að búa til samfélag sem tekur mið af viðmiðum fyrir Heilsueflandi vinnustaði en þau verður eins og áður kom fram hægt að nálgast á vefsíðunni www.heilsueflandi.is.

Þau fyrirtæki sem taka þátt í tilraunaverkefninu hafa verið að prufukeyra viðmiðin í þeim tilgangi að skoða hvernig þau gagnast auk þess að veita endurgjöf til að sníða af annmarka sem gætu verið bæði á viðmiðunum og framkvæmd verkefnisins. Samhliða prufukeyrslunni hafa þau verið að innleiða heilsueflingu hjá sínum vinnustað. Í upphafi tilraunarinnar var hugmyndin um Heilsueflandi vinnustað kynnt fyrir fulltrúum vinnustaðanna sem stofnuðu síðan stýrihópa sem halda utan um verkefnið á hverjum vinnustað fyrir sig. Hlutverk stýrihópanna er að innleiða Heilsueflandi vinnustað með því að ákveða hversu hátt skor eigi við í hverju viðmiði fyrir sig og skrá stöðuna á einkasvæði vinnustaðarins á heilsueflandi. is. Í framhaldinu taka stýrihóparnir í samráði við starfsmenn ákvarðanir um þau skref sem vinnustaðurinn hefur áhuga á að taka í átt að heilsueflingu.

Margir halda að heilsueflandi vinnustaður snúist um að allir eigi nú að fara út að hlaupa, lyfta eða borða ofurhollt en viðmiðin eru mun víðtækari en svo. Þau spanna alla þá þætti sem hafa áhrif á heilsu okkar í vinnunni. Viðmiðin lúta þannig að stjórnunarháttum, starfsháttum, vellíðan í vinnu, heilsu og útiveru, áfengi og vímuefnum, vinnuumhverfi, hollu mataræði og umhverfi vinnustaðar. Viðmiðin endurspegla heildræna sýn á heilsu sem öll fyrirtæki ættu að geta tileinkað sér, fyrirtæki sínu og starfsfólki til hagsbóta. Að huga að vellíðan starfsfólks og hlúa að heilsunni á vinnutíma verður seint ofmetið því við verjum jú flest um þriðjungi tíma okkar við vinnu.

Í verkefninu Heilsueflandi vinnustaður er lögð mikil áhersla á að viðmiðin geti átt við allar tegundir af starfsemi og stærð vinnustaða. Einnig að um langhlaup til bættrar heilsu starfsfólks sé að ræða og mikil áhersla er lögð á að verkefnið sé viðráðanlegt. Þannig er mælt með því að markmiðasetning sé hugsuð til framtíðar og verið sé að taka lítil skref í jákvæða átt á hverju tímabili eftir því sem við á á hverjum vinnustað fyrir sig.

Að tilraunaverkefninu loknu verða viðmiðin aðgengileg öllum fyrirtækjum í landinu og er stefnt að því að það náist fyrir lok þessa árs, 2021.

„Við lifum í samfélagi þar sem sífellt fleiri virðast heltast úr lestinni vegna tímabundinna eða langvarandi veikinda. Svo virðist sem hluti af þessum veikindum sé til kominn vegna langvarandi álags bæði í starfi og einkalífi.“

Morgunfundir

Í tengslum við samstarfið um Heilsueflandi vinnustað hafa verið haldnir morgunfundir þar sem áherslan hefur verið á fræðslu um allt sem getur stuðlað að vellíðan á vinnustað og er þá einkum verið að höfða til stjórnenda. Morgunfundirnir eru orðnir sjö talsins:

Líðan starfsfólks og leiðir til velsældar
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá embætti landlæknis, Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum og Hildur Atladóttir, leiðtogi heilbrigðismála hjá Ísal.

Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri
Hinrik Sigurður Jóhannesson mannauðsstjóri Advania og Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við HÍ.

Kulnun - Hvað höfum við lært sem nýtist okkur nú?
Christina Maslach prófessor (emerita) við Berkeleyháskóla í Kaliforníu og Linda Bára Lýðsdóttir sviðsstjóri hjá VIRK.

Jákvæðir starfshættir á heilsueflandi vinnustað
Aðalfyrirlesari prófessor Ilona Boniwell.

Fara teymisvinna og vellíðan saman?
Henning Bang prófessor við Oslóarháskóla og Valgerður Hrund Skúladóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Sensa.

Er ávaxtakarfa og líkamsræktarstyrkur nóg?
Karolien Van Den Brekel heimilislæknir og doktor í sálfræði, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir frá embætti landlæknis og Jóhann F. Friðriksson frá Vinnueftirlitinu.

Hamingja á vinnustöðum er alvörumál!
Vanessa King hjá Action for Happiness, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri hjá embætti landlæknis og Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri hjá VIRK.

Hægt er að nálgast upptökur af öllum morgunfundunum á vefsíðum stofnananna þriggja og eins á velvirk.is.

  • Markmiðið með forvarnarverkefni VIRK er að styðja við starfsmenn og stjórnendur til að sporna við brotthvarfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests.
  • Við lifum í samfélagi þar sem sífellt fleiri virðast heltast úr lestinni vegna tímabundinna eða langvarandi veikinda. Svo virðist sem hluti af þessum veikindum sé til kominn vegna langvarandi álags bæði í starfi og einkalífi.
  • Verkefnið Heilsueflandi vinnustaður er mikilvægur hluti forvarnarverkefnisins en aðrar hlutar þess eru velvirk.is, vitundarvakning samanber „Er brjálað að gera“ verkefnið og rannsókn sem hefur það að markmiði að einangra breytur sem mögulega hafa áhrif á það hvort einstaklingar komast aftur til starfa eftir veikindaleyfi.

Greinin birtist fyrst í ársriti VIRK 2021


Fréttir

21.07.2023
18.07.2023

Hafa samband