Fara í efni

Eitt af verkfærunum er maður sjálfur

Til baka

Eitt af verkfærunum er maður sjálfur

Elín Theodóra Reynisdóttir ráðgjafi VIRK á Akranesi

Ráðgjafar hjá VIRK gegna mikilvægu hlutverki. Þeir sem fara í samstarf við VIRK ræða við þá í upphafsferlinu og í framhaldi hefst endurhæfingin. Elín Theodóra Reynisdóttir er ráðgjafi hjá VIRK og hefur aðsetur á Akranesi. Hvað telur hún að ráði helst árangri einstaklinga í starfsendurhæfingu?

Réttur stuðningur skiptir mestu máli og vilji einstaklingsins“ segir Elín Theódóra. „Stuðningurinn felst oftar en ekki í hvatningu og mikilvægt er að þjónustuþeginn finni vel til þess að hann sé studdur áfram í endurhæfingunni.“

Hvernig hefst þetta ferli?
„Upphaf ferlis hjá ráðgjafa er að hann fær beiðni um þjónustu við einstakling frá heimilislækni. Í sumum tilvikum fer þjónustu- þegi þó í svokallað mat hjá fagaðilum VIRK sem getur verið á ólíkum sviðum, áður en kemur að viðtali hjá ráðgjafa. Þegar einstaklingur er kominn í tengsl við ráðgjafa er sett upp áætlun með markmiðum sem miða að því að auka starfsgetu og möguleika til virkrar þátttöku á vinnumarkaði.“

Hvaða verkfæri hefur ráðgjafi til að sinna sínu þýðingarmikla verkefni?
„Við höfum ýmiskonar aðferðir í samtalstækni, svo sem áhugahvetjandi samtal. Þá er reynt að ná fram og auka áhugahvöt einstaklingsins til breytinga. Þessi aðferð er byggð á erlendum rannsóknum og ráðgjafar VIRK hafa sótt námskeið um notkun áhugahvetjandi samtals.

Við vinnum í upphafi ákveðið grunnmat með hverjum einstaklingi þar sem leitast er við að safna upplýsingum um hann og aðstæður, draga fram styrkleika hans og skoða hindranir sem orðið hafa til þess að hann hafi dottið út af vinnumarkaði. Við reynum að vinna grunnmatið hratt og örugglega til þess að virk endurhæfing geti hafist sem fyrst.

Grunnmatið er ákveðinn rauður þráður í samvinnu okkar ráðgjafa við einstaklinginn því á meðan á starfsendurhæfingunni stendur er mikilvægt að skoða hvar tækifæri, hæfni og færni hvers og eins liggur.“

Hver og einn sérfræðingur í sjálfum sér

Eru þeir sem til VIRK leita yfirleitt samvinnufúsir?
„Já, meirihluti þeirra sem hefja starfsendurhæfingu vilja bæta stöðu sína, auka færni og snúa aftur til vinnu. Auk þess eru þeir líka búnir að eiga samtöl við lækni sinn og skilja hvað felst í samstarfinu og beiðni um þjónustu er send til VIRK með þeirra samþykki.

Í upphafi þjónustu finnur maður fljótlega hvort viðkomandi einstaklingur er í þessu samstarfi af heilum huga og sjái tækifærin sem geta falist í starfsendurhæfingu. Mikilvægt er að einstaklingur upplifi að hann hafi áhrif á eigin endurhæfingu, enda er hver og einn sérfræðingur í sjálfum sér. Stundum koma í þjónustu einstaklingar sem eru ekki alveg tilbúnir til að taka þátt af fullum krafti, sjá kannski ekki hvernig hlutirnir geta breyst. Þá er áhugahvetjandi samtal notað til að vinna í að hvetja til breytinga og auka sýn á hvernig stuðningur getur haft jákvæð áhrif.“

Hafa einstaklingar yfirleitt sjálfir frumkvæði að þjónustuúrræðum?
„Já margir hverjir hafa skoðun á því sem þeir telja sjálfir að geti verið gagnlegt og það er mikilvægt að hlusta, ræða og meta það með einstaklingnum. En auðvitað eru innan um einstaklingar sem ekki hafa neina skoðun á hvað henti þeim og þeirra aðstæðum.“

Hvaða úrræði hafa reynst best í endurhæfingu?
„Við á Akranesi höfum starfandi starfsendurhæfingarstöð, Starfsendurhæfingu Vesturlands, þar sem veitt er þverfagleg einstaklingsmiðuð endurhæfing og erum við í mikilli samvinnu við stöðina. Aðgengi að sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfun er ekki það sama og gengur og gerist á höfðuborgarsvæðinu en við búum að því leytinu vel að góð og náin samvinna er við þá aðila sem starfa á svæðinu. Hlutverk ráðgjafa á landsbyggðinni felur því líka í sér að vera útsjónarsamur og koma auga á tækifæri í samfélaginu þegar endurhæfingarúrræði eru skoðuð. Við nýtum þjónustu fagaðila á höfuðborgarsvæðinu þegar þannig stendur á og því verður komið við. Oftar en ekki hefur það reynst vel þegar einstaklingar fá tækifæri til vinnuprófunar, en það snýst um að fara inn á vinnustað og reyna sig í raunverulegum vinnuaðstæðum. Eitt af þeim úrræðum sem reynast vel eru námskeið af ýmsum toga, þar sem einstaklingurinn fær verkfæri eða þekkingu til að tileinka sér og nota áfram að loknu námskeiðinu.“

Starfsendurhæfingarferlið tekur mislangan tíma

Er hlutverk ráðgjafans að hafa umsjón með þessu ferli?
„Miklu máli skiptir fyrir þjónustuþegann að hafa ráðgjafann til viðtals eins og þörf er á meðan á endurhæfingu stendur. Hann heldur utan um alla þræðina, er í samskiptum við fagaðila, lækna og hefur yfirsýn yfir málið. Ráðgjafi og einstaklingur eiga regluleg viðtöl til að ræða líðan, hvernig endurhæfingin gangi og endurmeta reglulega þær leiðir sem farnar eru og árangur þeirra. Ráðgjafinn hefur það hlutverk meðal annars að þjónustuþeginn upplifi sig ekki einan á báti í þessu ferli sem er mislangt. Þetta er ferli sem getur verið krefjandi fyrir viðkomandi. Einstaklingar sem koma í þjónustu hjá VIRK hafa sumir hverjir gengið í gegnum töluverða erfiðleika en það á auðvitað ekki við um alla. Fólk býst kannski ekki við að þurfa hugsanlega að „tína upp úr töskunni“ allt það sem erfiðast hefur verið á lífsleið þess. En það er stundum nauðsynlegt - til dæmis í sálfræðimeðferð. Sumir verða þreyttir og einstaka liggur við uppgjöf, þá er ráðgjafinn búinn að mynda traust sem auðveldar einstaklingnum að ræða stöðuna.

Starfsendurhæfingarferlið tekur mislangan tíma og það hangir meðal annars saman við hvort viðkomandi er með ráðningarsamband við upphaf ferlisins eða ekki. Einhverjir eru án atvinnu og þá þarf að skoða fjárhagslegar aðstæður og leiðbeina einstaklingum við að koma framfærslumálum í réttan farveg. Skoða þarf hvort viðkomandi eigi rétt í sjúkrasjóði stéttarfélags eða greiðslum endurhæfingarlífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins.“

Leitast við að finna lausnir

Hvernig gengur fólki að komast aftur út á vinnumarkaðinn?
„Það gengur yfirleitt vel. Hér höfum við verið í góðu sambandi við atvinnurekendur ef einstaklingur er með ráðningarsamning í upphafi þjónustu og óskað eftir samvinnu þegar kemur að því að einstaklingur snúi aftur til vinnu. Í því eins og öðru eru stundum hindranir en við leitumst þá við að finna lausnir með atvinnurekendum. Jafnframt höfum við verið að nota vinnuprófanir sem hluta af endurhæfingunni, fyrir þá sem ekki eru með nein vinnutengsl. Þær fela í sér að viðkomandi fer inn á vinnustað og við gerum áætlanir um vinnuprófun. Þannig fær einstaklingur tækifæri til að prófa að vinna hjá fyrirtæki án þess að vera með ábyrgð eða skuldbindingar. Það reynist mörgum oft erfiður hjalli að ráða sig í starf, óviss um eigin getu.

Með vinnuprófun fær einstaklingur tækifæri til að bæta sjálfsmynd sína í starfi ef vel gengur. Slíkt gerir það að verkum að einstaklingur fær aukið sjálfstraust og eflist við að sjá að getan er oftar en ekki meiri en hann heldur. Við fylgjum einstaklingum eftir þegar kemur að því að snúa aftur í vinnu í framhaldi af endurhæfingu og ræðum hver verði næstu skref og erum að vissu leyti „bakland“ fyrir viðkomandi þegar hann fetar sig áfram á vinnumarkaði á nýjan leik.

Það er þó þannig að við lok endurhæfingar útskrifast ekki allir með fulla starfsgetu. Því miður getur reynst erfitt fyrir fólk með skerta starfsgetu að fá hlutastarf sem hentar og ég held að það þurfi að leggja áherslu á það í samvinnu við vinnumarkaðinn að auka framboð slíkra starfa. Þrátt fyrir skerta starfsgetu býr einstaklingurinn áfram yfir þekkingu, reynslu og færni og að fá starf við hæfi skiptir máli því það að hafa hlutverk, vera virkur þátttakandi í samfélaginu og leggja sitt af mörkum eykur lífsgæði og stuðlar að bættri heilsu og líðan.

Heilsubrestur spyr ekki um menntun eða stöðu

Þurfa einstaklingar í ákveðnum atvinnugreinum fremur á þjónustu VIRK að halda en aðrir?
„Nei, þjónustuþegarnir koma úr ýmsum atvinnugreinum og hér hafa allir íbúar Akraness aðgang að þjónustu VIRK í gegnum okkur ráðgjafana, en við erum tvær sem störfum hér. Við sinnum sem sagt fólki úr hinum ýmsu stéttarfélögum.“

Er ráðgjafastarfið sjálft erfitt?
„Þetta er krefjandi starf, mikilvægt og gefandi. Maður þarf að gefa af sér eins og jafnan er þegar unnið er með fólki. Að mynda traust við einstaklinga gerist ekki af sjálfu sér, einstaklingur þarf að finna að hlustað sé á hann og skilningur og samhyggð sé til staðar. Mér finnst mikilvægt að vera alltaf að fullu til staðar í viðtölum og því má segja að eitt af verkfærunum er maður sjálfur. Þess vegna er nauðsynlegt að hlúa vel að sjálfum sér til að geta sinnt starfinu sínu vel.“

Hefur þetta starf að einhverju leyti breytt sýn þinni?
„Ég er félagsráðgjafi að mennt og hef starfað í félagsþjónustu og við barnavernd og þekki því vel að stuðningur getur skipt sköpum. Ég hugsa að þetta starf hafi ekki breytt sýn minni heldur miklu frekar dýpkað hana. Það er margt sem bæði einstaklingar og atvinnurekendur geta gert til að hlúa að starfsfólki á vinnustöðum í formi fræðslu og forvarna. Þannig er hægt að stuðla að bættri líðan starfsfólks og koma í veg fyrir að það hverfi af vinnumarkaði – þrátt fyrir heilsubrest.

Heilsan er dýrmæt og það er ekki sjálfsagt að fara í gegnum lífið án þess að glíma á einhverjum tímapunkti við heilsubrest. Heilsubrestur spyr ekki um menntun, stöðu eða starfsheiti.“

Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2017 - sjá fleiri áhugaverðar greinaúr ársritinu hér.


Fréttir

21.07.2023
18.07.2023

Hafa samband