Fara í efni
Til baka

Legg áherslu á að koma eins fram við alla

Legg áherslu á að koma eins fram við alla

„Mér hefur fundist afskaplega gaman að fylgjast með þessum ungu mönnum finna sig í lífi og starfi, það er beinlínis gott fyrir sálina og hjartað að sjá hvað þeir hafa staðið sig vel.“

Sigurður Kristjánsson verksmiðjustjóri hjá Lindsay

Þeir sátu fjórir samstarfsmennirnir og voru að fá sér bita þegar blaðamaður birtist til að ræða við Sigurður Kristjánsson verksmiðjustjóra hjá Lindsay, Klettagörðum 23. Sú deild sem Sigurður veitir forstöðu er með tvo starfsmenn sem komið hafa þangað til starfa eftir starfsendurhæfingu á vegum VIRK. 

„Það bar þannig til að ég hitti vinafólk sem á son sem var þá í endurhæfingu hjá VIRK. Til tals kom að hann kynni að vanta vinnu þegar hann væri tilbúinn til að koma út á vinnumarkaðinn. Ég sagði þeim að mig myndi sennilega vanta starfsmann fljótlega og úr varð að pilturinn kom hingað til starfa, fyrst í hlutastarfi á vinnusamningi þar sem Tryggingastofnun ríkisins greiddi honum laun á móti fyrirtækinu hér. Ráðgjafi frá VIRK kom þessu í kring. Þetta hefur gengið svo vel að nú er pilturinn kominn í fullt starf hjá fyrirtækinu. Við erum fjórir starfsmenn í þessari deild Lindsay sem framleiðir Royalbúðinga, lyftiduft og Bezt á kryddið. Af þessum fjórum hér eru því tveir frá VIRK,“ segir Sigurður þegar hann hefur boðið upp á kaffisopa og við erum sest að spjalli afsíðis.

Fram kemur í máli Sigurðar að Royalbúðingarnir hafi verið hluti af veislumat Íslendinga í yfir sjötíu ár. Hann er Dalamaður að uppruna, kjötiðnaðarmaður að mennt og starfaði um langt árabil sem slíkur en sló hins vegar til þegar honum bauðst að gerast framleiðslustjóri hjá Lindsay fyrir tólf árum.

„Það hefur komið mjög vel út að fá þessa tvo starfsmenn sem við erum nú með frá VIRK. Vitanlega komu aðilar frá VIRK að ráðningu þessara manna og lagðar voru áætlanir sem gengið hafa upp. Sá fyrri, sem ég sagði þér frá áðan, er nú sem sagt í fullu starfi, er falin æ meiri ábyrgð og stendur vel undir henni. Hinn maðurinn er af erlendu bergi brotinn, hann starfar hér þrjá daga í viku og er einstaklega samviskusamur og kemur gangandi töluverðan veg til vinnu og mætir aldrei of seint – hvernig sem veðrið er.“

Eykur ábyrgðina smám saman

Hafa fleiri komið hingað frá VIRK?
„Já, fáeinir hafa komið hingað til okkar í starfsþjálfun en þessi vinna hentaði því fólki ekki svo ekki varð úr ráðningu. Það er nú einu sinni þannig í þessu lífi að stundum „smellur allt“ – og stundum ekki. Ég man að ég fann sjálfur þegar ég kom hingað til starfa að hér ætti ég heima og þannig líður mér enn. Ég er opinn fyrir því að leyfa ungu fólki að koma hingað og prófa hvort því líkar. Á það verður hins vegar að líta að það fellur ekki öllum það sama. Fólk hefur ólíkan bakgrunn og áhuga, það þarf því stundum að reyna sig á fleiri en einum stað til að finna rétta starfið fyrir viðkomandi.“

Í hverju felast þau störf sem þið bjóðið upp á?
„Þetta er „lítil og sæt“ verksmiðjuvinna, framleiðsla og pökkun á Royal-búðingum, lyftidufti og kryddvöru. Þetta er ekki flókin vinna en ég hef haft að leiðarljósi að auka smám saman ábyrgðina, færa viðkomandi starfsmenn í meira krefjandi störf til að auka reynslu þeirra. Ég læt þá sannarlega gera ýmislegt annað en sitja við færiband og pakka. Það léttir á mér að þeir geti tekið við störfum sem ég sinni að jafnaði.“

Hvað vinna margir í þinni deild?
„Við erum fjögur, helmingur starfsmanna er frá VIRK. Ég er stoltur af þessu,“ svarar Sigurður og brosir. „Sá sem byrjaði hér síðar er líka farinn að auka við sig ábyrgð. Hann var fremur fáskiptinn í upphafi og talaði ekki íslensku né ensku. Það olli mér í upphafi dálitlum kvíða sem reyndist algjörlega óþarfur. Þessi starfsmaður er núna á íslenskunámskeiði og er allur að koma til félagslega. Það er gaman að sjá fólk „taka flugið“, fá meira sjálfstraust og finna sig æ betur í starfi.“

Hvernig hafa þeir komið sem fengið hafa að prófa sig í vinnu hér?
„Það er hringt frá VIRK og við tökum á móti fólkinu og erum til í að leyfa fleirum að koma. Lindsay-fyrirtækið starfar í mörgum deildum og þeir sem byrja að vinna hér eiga möguleika á að færast á milli deilda.“

„Það þarf ekki að koma neitt öðruvísi fram við þá sem koma frá VIRK en aðra. Þeir eru ekki settir „í bómull“ og eru hreint ekki látnir finna að þeir séu á einhvern hátt öðruvísi en aðrir. Ég tel það mikilvægt til að bæta sjálfsmynd þeirra og viðhalda góðum anda á vinnustaðnum. Mér er tæknilega sama hvaðan fólk kemur ef það hefur áhuga á að vinna og standa sína pligt."

Gætir þess að störfin verði ekki of einhæf

Þegar sá fyrsti kom frá VIRK lagðir þú þá niður fyrir þér hvernig þú ætlaðir að höndla stjórnunina? „Nei, hann bara mætti og ef satt skal segja þá hefur mér yfirleitt gengið vel að nýta allar hendur. Það er ekki flókið. Ég sá bara fyrir mér að þetta myndi þróast á hinn besta veg. Hér er heimilislegt umhverfi og ég legg áherslu á að koma eins fram við alla. Við vinnum saman, látum þetta fljóta og skiptumst gjarnan á til að störfin verði ekki of einhæf. Það er líka mikilvægt til að geta skipt um stóla og vinnustöðu. Ég legg áherslu á hafa sem mest jafnræði. Það viðhorf þarf að minni hyggju að vera fyrir hendi í stjórnun. Reynslan hefur kennt mér að það virkar best. Helst að sem flestir geti gegnt sem margvíslegustu störfum. Þá er enginn ómissandi og vinnuandinn verður hlýr.“

Er öðruvísi að fá fólk til starfa úr starfsendurhæfingu en þá sem koma til dæmis eftir auglýsingu?
„Það þarf ekki að koma neitt öðruvísi fram við þá sem koma frá VIRK en aðra. Þeir eru ekki settir „í bómull“ og eru hreint ekki látnir finna að þeir séu á einhvern hátt öðruvísi en aðrir. Ég tel það mikilvægt til að bæta sjálfsmynd þeirra og viðhalda góðum anda á vinnustaðnum. Mér er tæknilega sama hvaðan fólk kemur ef það hefur áhuga á að vinna og standa sína pligt. Hér erum við sveigjanleg, ef fólk þarf að skreppa þá er það í lagi, ef mikið er að gera er hins vegar mikilvægt að starfsfólk sé tilbúið til að leggja þá á sig aukalega í staðinn. Oft er mikið að gera fyrir bolludaginn, þá er gríðarlega mikil sala í Royal-búðingum.“

Hvað má segja um félagslífið í fyrirtækinu?
„Það er eins og gengur og gerist, árshátíð og eitthvað gert saman af og til. Ég hef ekki orðið var við að neitt sé öðruvísi hjá þessum starfsmönnum sem komið hafa frá VIRK en öðrum. Ég hef gefið þeim góð ummæli og hef ekki orðið var við að komið sé fram við þessa starfsmenn mína á annan veg en aðra hjá fyrirtækinu. Mér hefur fundist afskaplega gaman að fylgjast með þessum ungu mönnum finna sig í lífi og starfi, það er beinlínis gott fyrir sálina og hjartað að sjá hvað þeir hafa staðið sig vel.“

Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband