Fara í efni
Til baka
Líkamleg heilsa

Nýtti mér öll úrræðin

Nýtti mér öll úrræðin

Gunnar Ágúst Pálsson málari varð óvinnufær vegna brjóskloss.

Gunnar Ágúst Pálsson

„Ég hafði ekki hugmynd um að mér byðist svona góð ráðgjöf hjá stéttarfélaginu mínu, Félagi iðn- og tæknigreina. Þegar Sigrún Sigurðardóttir ráðgjafi hafði farið yfir stöðuna með mér leit allt miklu betur út,“ segir Gunnar Ágúst Pálsson málari.

Gunnar Ágúst starfaði sem málari í 15 ár. Í kjölfar bankahrunsins missti hann vinnuna og var á atvinnuleysisbótum sl. haust, þegar brjósklos í baki gerði vart við sig. „Þegar ég var óvinnufær vegna brjósklossins fékk ég ekki lengur atvinnuleysisbætur, heldur sjúkradagpeninga. Ég leitaði þá til stéttarfélagsins eftir aðstoð og Sigrún ráðgjafi tók á móti mér. Hún fór yfir alla hluti með mér, skráði allt niður sem ég sagði og leitaði svo bestu lausna. Til að byrja með fór ég í sjúkraþjálfun, en það var ekki það eina. Sigrún tryggði líka að ég gat leitað mér ráðgjafar í fjármálum og hún stakk líka upp á að ég færi á námskeið til að efla sjálfsmyndina.“

Gunnar Ágúst var strax frá upphafi mjög jákvæður og sagði ekki annað hafa verið hægt, enda hefði Sigrún nálgast allt á jákvæðan hátt. „Heilsufarið batnaði fljótt og ég fór af sjúkradagpeningum og aftur á atvinnuleysisbæturnar. Mér hefur ekki tekist að fá vinnu á ný, enda er allur byggingabransinn botnfrosinn. Núna gæti ég sinnt fyrra starfi, því sjúkraþjálfunin hefur hjálpað mjög mikið og ég slapp alveg við að fara í aðgerð vegna brjóslossins, í bili að minnsta kosti. Fyrra starf er hins vegar ekki í boði og ég er alveg reiðubúinn að leita fyrir mér á nýjum vettvangi.“

„Það kom mér mjög ánægjulega á óvart hversu mikið var hægt að gera fyrir mig. Hið sama gildir um ættingja og vini, þeir voru alveg undrandi á því hversu öflugt þetta starf er.“

Kom ánægjulega á óvart

Gunnar Ágúst kveðst ekki hafa vitað af hinni öflugu ráðgjöf, sem stéttarfélag hans bauð upp á, fyrr en hann þurfti á henni að halda. „Það kom mér mjög ánægjulega á óvart hversu mikið var hægt að gera fyrir mig. Hið sama gildir um ættingja og vini, þeir voru alveg undrandi á því hversu öflugt þetta starf er. Ég er mjög þakklátur, enda veit ég að barátta undanfarinna mánuða hefði verið miklu erfiðari ef ég hefði ekki notið ráðgjafar Sigrúnar.“

Hann hittir Sigrúnu ráðgjafa ekki lengur, en veit að hann er velkominn hvenær sem hann vill. „Ég nýtti mér öll úrræði sem hún stakk upp á. Fjögurra daga námskeið í sjálfsstyrkingu var til dæmis mjög athyglisvert, en ég efast um að ég hefði sjálfur haft frumkvæði að því að sækja slíkt námskeið. Ég hafði fundið fyrir svartsýni, sem var ekki að undra, og mér fannst gott að fá þessa aðstoð. Ráðgjöfin er nauðsynleg fyrir fólk, sem lendir í því að falla út af vinnumarkaði um tíma, hver sem ástæðan er. Mér fannst líka gott að fá aðstoð við að fara yfir fjármálin, sem voru auðvitað erfið við að eiga eftir margra mánaða atvinnuleysi og veikindi. Ég sat bæði hóptíma og fékk einkaráðgjöf og hvort tveggja nýttist mér mjög vel. Það er svo miklu erfiðara að fá hlutlausa sýn á málin þegar maður situr heima í vonleysi.“

Gefst ekki upp

Gunnar Ágúst ætlar ekki að leggja árar í bát, þótt hann sjái ekki fram á að gera fengið vinnu sem málari á næstunni. „Ég gæti þess að hitta fólk og sækja námskeið, svo ég einangrist ekki og koðni niður. Núna ætla ég að sækja tölvunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Kannski það gagnist mér til að finna aðra vinnu. Ég ætla alla vega ekki að gefast upp.“

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband