Fara í efni

Úrræði í atvinnutengdri starfsendurhæfingu

Til baka

Úrræði í atvinnutengdri starfsendurhæfingu

Heildræn sýn og einstaklingsmiðuð þjónusta sem miðar að þörfum hvers og eins þjónustuþega.

Ásta Sölvadóttir sviðsstjóri úrræða og þjónustu

 

Einkunnarorð VIRK, fagmennska, metnaður og virðing leggja grunninn að öflugu samstarfi við fjölda fagaðila í starfsendurhæfingu víðsvegar um landið. Samstarfið felur í sér stöðugar umbætur, tilraunaverkefni, þróunarverkefni, áherslu á gagnreyndar aðferðir og mat á þörfum einstaklinga hverju sinni. Þá eru samstarfsaðilar VIRK hvattir til þess að nýta þróunarstyrki frá VIRK til þess að koma á laggirnar nýjum úrræðum eftir áherslum og þörfum hverju sinni.

Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum

Kaup VIRK á úrræðum jukust lítillega milli ára og námu þau 1.991 milljónum króna á árinu 2024 eins og sjá má á mynd 1. Myndin sýnir þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu á föstu verðlagi. Í árslok 2024 voru rúmlega 530 þjónustuaðilar með virkar pantanir í upplýsingakerfi VIRK sem er aðeins fjölgun frá árinu á undan.

Ný úrræði líta reglulega dagsins ljós og heildarfjöldi úrræða sem VIRK keypti af þjónustuaðilum voru samtals 876 samanborið við 827 árið áður sem er tæplega 6% fjölgun nýttra úrræða milli ára. Þá voru gerðar rúmar 25.500 pantanir í upplýsingakerfi VIRK samanborið við tæplega 23.700 pantanir árið á undan. Pöntunum fjölgar í takt við fjölda einstaklinga í þjónustu.

Sálfræðingar fjölmennasti hópurinn meðal fagaðila

Fjölmennasti hópur þjónustuaðila eru sem fyrr sálfræðingar en VIRK var í samstarfi við tæplega 180 sálfræðinga eða fyrirtæki tengd sálfræðiþjónustu á árinu 2024. Næst fjölmennasti hópurinn eru sjúkraþjálfarar en tæplega 130 aðilar voru með virka pöntun tengda sjúkraþjálfun. Þriðji fjölmennasti hópurinn meðal þjónustuaðila var í flokknum heilsuefling og líkamsrækt eða um 120 aðilar.

Á síðustu árum hefur orðið talsverð aukning í kaupum á úrræðum hjá þjónustuaðilum sem bjóða upp á ráðgjöf og þjónustu sem eykur daglega virkni og stuðlar að félagslegri kjölfestu einstaklinga en um er að ræða um 50 fagaðila með heilbrigðismenntun sem sinna margskonar einstaklingsbundinni ráðgjöf til einstaklinga, t.d. iðjuþjálfun, félagsráðgjöf, næringarráðgjöf, fíkniráðgjöf, fjölskylduráðgjöf, ráðgjöf hjúkrunarfræðinga og fleira.

Þá býður fjölbreyttur hópur þjónustuaðila upp á ýmsa þjónustu sem snýr að aukinni þátttöku en um 50 fræðslu- og símenntunaraðilar veittu ráðgjöf og fræðslu sem eykur möguleika á vinnumarkaði. Þá buðu um 40 þjónustuaðilar ýmis úrræði sem tengjast vinnu- og námsmiðaðri sjálfseflingu og markþjálfun.

Nær helmingur útgjalda vegna sérhæfðra starfsendurhæfingarúrræða

Mynd 2 sýnir hlutfallslega skiptingu útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum á árinu 2024. Hæstri fjárhæð er varið til kaupa á sérhæfðum starfsendurhæfingarúrræðum hjá starfsendurhæfingarstöðvum um land allt, um 48% útgjalda. 32% fjárhæðar er varið til kaupa á sálfræðiþjónustu og úrræða á sviði sjálfseflingar. Úrræði tengd hreyfingu og sjúkraþjálfun nema samtals um 11%.

Þróunar- og tilraunaverkefni

Átta starfsendurhæfingarstöðvar skrifuðu undir tilraunasamning við VIRK um þróun á IPS þjónustu á árinu 2024. Individual placement and support (IPS) stendur fyrir einstaklingsmiðaðan stuðning við starfsleit. Starfsmenn stöðvanna fengu handleiðslu hjá atvinnulífstenglum VIRK vegna innleiðingar á þjónustunni á hverri starfsendurhæfingarstöð fyrir sig.

Þá tók VIRK upp breytt verklag varðandi áfallamál með það að markmiði að ramma betur inn þjónustu við einstaklinga sem glíma við afleiðingar áfalla. Boðið var upp á kynningarfundi vegna verkefnisins í september og framvegis mun hópur sálfræðinga sem tekur þátt í þróunarverkefninu eingöngu veita áfallameðferð á vegum VIRK.

Í árslok 2024 voru rúmlega 530 þjónustuaðilar með virkar pantanir í upplýsingakerfi VIRK sem er aðeins fjölgun frá árinu á undan.

VIRK hefur beint sjónum sínum að þörfum einstaklinga af erlendum uppruna í þjónustu VIRK undanfarin ár en um er að ræða fjölbreyttan hóp einstaklinga sem kemur bæði frá löndum innan og utan EES/ EFTA. Mikil þróun hefur átt sér stað hvað varðar úrval úrræða fyrir þennan hóp hjá samstarfsaðilum VIRK á undanförnum árum. Í dag er hægt að velja um starfstengd, sjálfseflingar- og tungumálanámskeið sem miða að inngildingu fólks frá fjölbreyttum menningarsvæðum. Þá nýtir VIRK túlkaþjónustu eftir þörfum þegar kemur að einstaklingsúrræðum fyrir þennan hóp þjónustuþega. Sérhæfðum úrræðum fyrir pólsku- og enskumælandi hefur einnig fjölgað á síðustu árum.

Endurskoðun á úrræðum í upplýsingakerfi VIRK

Árið 2025 stendur yfir endurskoðun á úrræðum í upplýsingakerfi VIRK og eru samstarfsaðilar VIRK hvattir til þess að fara yfir úrræðin sín sem eru nú þegar í kerfinu og loka þeim úrræðum sem eru ekki lengur í boði. VIRK mun óvirkja úrræði sem hafa ekki verið nýtt síðustu 12 mánuði eða lengur. Á meðan á endurskoðuninni stendur er VIRK ekki að taka inn ný úrræði nema nauðsyn krefur. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir um ný úrræði síðar á árinu.

Samvinna og góð samskipti eru lykill að árangri

Sérfræðingar og ráðgjafar VIRK eru í reglulegum samskiptum við samstarfsaðila um allt land. Úrræða og þjónustusvið heldur utan um samninga við fagaðila í starfsendurhæfingu og hefur umsjón með öllum keyptum úrræðum ásamt eftirliti með þeim. Öll kaup á úrræðum eiga sér stað í gegnum upplýsingakerfi VIRK. Þegar þróun á nýjum úrræðum á sér stað sér úrræða- og þjónustusvið VIRK um að koma á fundum með öðrum sérfræðingum á starfsendurhæfingarsviðum VIRK eftir því sem við á.

Upplýsingar, miðlun og VIRK-dagurinn

Upplýsingar og miðlun eru mikilvægur þáttur í starfi sviðsins. Á hverju ári eru haldnar úrræðamessur í tengslum við fræðsludaga VIRK þar sem samstarfsaðilar geta kynnt úrræði fyrir ráðgjöfum og sérfræðingum VIRK. Þá er áætlað að halda sérstakan VIRK-dag fyrir samstarfsaðila þar sem hægt verður að miðla þekkingu og reynslu af samstarfinu við VIRK, fræðast um nýjungar og stuðla að enn betri tengslum þeirra sem koma að atvinnutengdri starfsendurhæfingu á Íslandi.

Greinin birtist í ársriti VIRK 2025.


Fréttir

06.05.2025
03.06.2025

Hafa samband