Fara í efni

Streitustiginn á velvirk.is

Til baka

Streitustiginn á velvirk.is

Streitustiginn er verkfæri sem vinnustaðir geta notað til að búa sér til sameiginlegt orðfæri um álag og streitu á vinnustaðnum og getur gagnast við að greina hvort streita er til staðar, hversu alvarleg hún er og til að velja leiðir til úrbóta í framhaldinu ef þarf.

Stiginn er þannig hentugt tæki til að fá skýra mynd af því hvernig streita þróast og auðveldar okkur að tala um hana. Gagnlegt getur líka verið fyrir hvern og einn að nýta stigann til að átta sig á hvar hann er staddur hverju sinni.

Streitustigann má finna á velvirk.is sem er hluti af VelVIRK forvarnarverkefninu sem hefur það að markmiði að vinna gegn brottfalli af vinnumarkaði vegna heilsubrests, einkum og sér í lagi vegna álagstengdra einkenna.

Sjá nánar á velvirk.is hvernig stjórnendur og starfsmenn geta nýtt sér streitustigann og hér er hann til útprentunar


Fréttir

29.01.2024
23.01.2024

Hafa samband