Fara í efni

Skorað á ráðherra

Til baka
Nýkomin af fundi með ráðherra
Nýkomin af fundi með ráðherra

Skorað á ráðherra

Fulltrúar stofnana og fagfólk í heilbrigðiskerfinu ásamt Hugarfari, samtökum einstaklinga með ákominn heilaskaða, afhentu nýverið Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, formlega áskorun þess efnis að bæta þjónustu hið bráðasta við fólk með heilaskaða á Íslandi. Skorað er á ráðherra að skipa nefnd, með aðkomu fagðaðila og annarra hagsmunaaðila, til að vinna að heildarstefnumótun í málefnum fólks með ákominn heilaskaða.

Einungis brotabrot fær meðferð

Árlega hljóta um 1.000 – 1.500 manns höfuðáverka á Íslandi og helmingur eru börn undir 19 ára aldri. Í heilbrigðiskerfinu er hvorki heildstæð stefna til í þessum málefnum né verkferlar til að fylgja eftir greiningu og meðferð þessara einstaklinga. Í dag hljóta einungis um 10-20% sérhæfða meðferð, en það er bara brot af þeim fjölda sem þarf á meðferð að halda, eftir sitja um 80-90% án greiningar, meðferðar og eftirfylgni. Í heilbrigðiskerfinu er ekki til skilgreint greiningarferli eða formleg endurhæfing fyrir börn með heilaskaða. Af þeim 500 einstaklinga undir 19 ára aldri sem fá heilaáverka árlega fá einungis einn til þrír einstaklingar greiningu og meðferð sem er ekki endilega sérhæfð fyrir börn með heilaskaða.

„Við gerðum ráðherra grein fyrir þessari knýjandi þörf á bættri þjónustu við fólk með heilaskaða. Fagfólk er sammála um að vandinn liggur alls staðar í kerfinu og felst m.a. í því að þekkingu skortir á einkennum heilaskaða og afleiðingum hans, “ sagði Smári Pálsson taugasálfræðingur og sérfræðingur hjá VIRK við þetta tilefni en hann fundaði með ráðherra ásamt Guðbjörgu Ludvigsdóttur yfirlækni Grensásdeildar LSH, Guðrúnu Karlsdóttur yfirlækni á Reykjalundi, Dr. Jónasi G. Halldórssyni taugasálfræðingi, Guðrúnu Hörpu Heimisdóttir formanni Hugarfars og Þórunni Hönnu Halldórsdóttur, talmeinafræðingi og formanni Fagráðs um heilaskaða.

„Við sem störfum að málefnum fólks með ákominn heilaskaða höfum reynt ítrekað að fanga athygli stjórnmálamanna til að stuðla að því að stjórnvöld vinni að stefnumörkun í þessum málaflokki. Málið er það brýnt að við ákváðum að fara þessa leið og ýta við þessum málum hjá heilbrigðisráðherra og stjórnmálamönnum, “ sagði Guðrún Harpa, formaður Hugarfars.

Greinargerð um stöðu fólks með viðvarandi einkenni eftir höfuðáverka
Tíðni heilaáverka


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband