Fara í efni

Fleiri nýir en færri útskrifaðir

Til baka

Fleiri nýir en færri útskrifaðir

2.306 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu á vegum VIRK á árinu 2022, 3% fleiri en árinu áður. 1.760 þjónustuþegar útskrifuðust frá VIRK á nýliðnu ári, 5% færri en 2021 en það ár var metár í útskriftum frá VIRK - sjá nánar í VIRK í tölum.

2.319 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin. 15.330 hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og 79% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Þjónustukannanir VIRK sýna að þjónustuþegar eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Sjá nánar upplýsingar um sögu VIRK, árangur og starfsemi.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband