Fara í efni

Aldrei eins margir hjá VIRK

Til baka
Fjölbreyttur hópur leitar til VIRK
Fjölbreyttur hópur leitar til VIRK

Aldrei eins margir hjá VIRK

2.230 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um allt land í lok ágúst, 19% fleiri en á sama tíma í fyrra þegar 1.870 einstaklingar nýttu sér þjónustuna. Aldrei áður hafa svo margir verið í þjónustu á vegum VIRK, mest höfðu áður verið 2.176 einstaklingar í þjónustu VIRK í nóvembermánuði 2014.

Til VIRK leitar nú stærri hópur með fjölþættari og flóknari vanda en áður en yfir 70% þeirra hafa ekki starfsgetu vegna andlegra sjúkdóma og/eða stoðkerfisvandamála. Samtals hafa 1.177 einstaklingar komið nýir inn í starfsendurhæfingarþjónustu á þessu ári og er það aukning um 11,6% frá fyrra ári og 735 hafa útskrifast úr þjónustunni, 3,2% færri en í lok ágúst í fyrra. Þá er meðallengd á tíma einstaklinga í þjónustu nú 15 mánuðir en var 13 mánuðir fyrir ári.

Rúmlega 70% þeirra einstaklinga sem ljúka starfsendurhæfingu hjá VIRK eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám. Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem hún hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði.

Þetta hafa utanaðkomandi aðilar staðfest en undanfarin fjögur ár hefur Talnakönnun HF metið ávinninginn af starfsemi VIRK. Samkvæmt Talnakönnun þá var 13,6 miljarða ávinningur af starfseminni 2016 og reiknaður meðalsparnaður á hvern útskrifaðan einstakling jókst milli ára, var 12,2 milljónir en 10 milljónir árin 2013-2015 - sjá nánar hér.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánari upplýsingar í samantekt um VIRK.


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband