Atvinnutenging VIRK og samstarf við atvinnulífið
Atvinnutenging VIRK og samstarf við atvinnulífið
Elva Dögg Baldvinsdóttir hópstjóri
Þorsteinn Gísli Hilmarsson verkefnastjóri
Meginmarkmið VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs er að aðstoða einstaklinga sem lenda í veikindum eða slysum við að komast aftur inn á vinnumarkaðinn.
Einstaklingar sem leita til VIRK byrja sinn starfsendurhæfingarferil hjá ráðgjafa. Langflest sem fara í gegnum starfsendurhæfinguna fara aftur í sitt fyrra starf eða fara í sjálfstæða atvinnuleit eftir að þjónustu hjá ráðgjafa lýkur. Einhverjir þjónustuþegar VIRK kunna að þurfa aukna aðstoð við að komast aftur inn á vinnumarkað og stendur þeim þá til boða að fá sértæka aðstoð frá atvinnulífstenglum VIRK.
Margir þjónustuþegar eru að skipta um starfsvettvang og/eða eru með skerta starfsgetu og eru því að leita sér að hlutastörfum. Minna er um auglýst hlutastörf á almennum vinnumarkaði samanborið við störf sem teljast sem fullt stöðugildi og er fjölgun hlutastarfa eitt af markmiðum atvinnutengingar til þess að mæta þörfum hópsins.

Mikilvægur hluti starfsendurhæfingar
Atvinnutenging er mikilvægur hluti af starfsendurhæfingu. Hlutverk hennar er að tengja saman einstaklinga sem eru að ljúka starfsendurhæfingu og fyrirtæki eða stofnanir sem eru að leita að starfsfólki. Markmiðið er að auðvelda farsæla endurkomu einstaklinga á vinnumarkaðinn og á sama tíma veita fyrirtækjum tækifæri til að fá hæft og áhugasamt starfsfólk.
Markmiðið er að auðvelda farsæla endurkomu einstaklinga á vinnumarkaðinn og á sama tíma veita fyrirtækjum tækifæri til að fá hæft og áhugasamt starfsfólk.
Atvinnulífstenglar aðstoða einstaklinga við að snúa aftur út á vinnumarkað í störf sem hæfa getu þeirra, reynslu og menntun. Þeir vinna náið með einstaklingum sem eru tilbúnir að stíga næsta skref í átt að atvinnu og leita jafnframt eftir samstarfi við fyrirtæki og stofnanir sem geta boðið upp á störf eða tækifæri til að prófa sig áfram í starfi.
Starf atvinnulífstengla felur meðal annars í sér að aðstoða einstaklinga við atvinnuleit og undirbúning atvinnuleitar, svo sem við stefnumörkun, gerð ferilskráa, atvinnuumsóknir og að undirbúa einstaklinga fyrir atvinnuviðtöl. Þegar starf finnst vinna atvinnulífstenglar einnig með vinnustaðnum að því að tryggja að aðlögun gangi vel. Þeir veita bæði einstaklingnum og vinnustaðnum fræðslu, stuðning og fylgja einstaklingnum eftir á fyrstu stigum ráðningar ef þörf er á.
Það skiptir máli að leggja upp úr góðu samstarfi við atvinnulífið
Samstarf við atvinnulífið skiptir sköpum til þess að atvinnutenging VIRK skili árangri. Góð tengsl við fyrirtæki og stofnanir er grundvöllur þess að hægt sé að finna störf sem henta bæði einstaklingnum og vinnustaðnum. Því leggja atvinnulífstenglar VIRK mikla áherslu á að byggja upp traust og góð samskipti við atvinnurekendur.
Þetta gera þeir með reglulegum samskiptum við fyrirtæki í sínum daglegu störfum ásamt því að heimsækja þau. Tilgangur heimsókna til fyrirtækja er að kynna atvinnutenginguna ásamt því að afla upplýsinga um fyrirtækið, starfsmenn sem sjá um ráðningar og athuga stöðu á ráðningum sem framundan eru sem/og að miðla einstaklingum áfram í störf séu þau í boði.
Fyrirtæki sem taka þátt í samstarfi við VIRK fá stuðning og ráðgjöf frá atvinnulífstengli.
Atvinnulífstenglar eru sérfræðingar í atvinnulífinu og þekkja vel þarfir og starfsemi fyrirtækja. Þekking á vinnustöðum, menningu þeirra og þeim verkefnum sem þar eru unnin gerir stefnumótunarvinnu í atvinnuleit auðveldari ásamt því að beina einstaklingum í störf við hæfi.
Í dag eru yfir 1600 fyrirtæki og stofnanir skráð í upplýsingagrunn VIRK og mörg þeirra eru með ákveðna tengiliði sem auðveldar allt samstarf. Ávallt er verið að hugsa upp nýjar leiðir til þess að vekja athygli á kostum þess að vera í samstarfi og hvernig hægt er að hafa boðleiðir stuttar og skilvirkar fyrir fyrirtækin.
Fyrirtæki sem taka þátt í samstarfi við VIRK fá stuðning og ráðgjöf frá atvinnulífstengli um hvernig best sé að standa að stuðningi og aðlögun starfsmanns sem er að snúa aftur til vinnu eftir veikindi eða slys. Þetta getur gert ráðningarferlið skýrara og öruggara fyrir vinnustaðinn.
Ávinningur
Breytingar sem urðu á örorkulífeyriskerfinu þann 1. september 2025 gera ráð fyrir því að fleiri munu koma til með að fara á hlutaörorku1. Það þýðir að fleiri einstaklingar í nýja kerfinu munu koma til með að leita sér að hlutastörfum. Það er missir fyrir samfélagið að hæfileikaríkt fólk sé oft útilokað frá jöfnum tækifærum og hinum ýmsum störfum vegna þess að það getur ekki sinnt fullu starfi t.d. vegna færniskerðingar2.
Atvinnulífstenglar aðstoða einstaklinga við að snúa aftur út á vinnumarkað í störf sem hæfa getu þeirra, reynslu og menntun.
Í mörgum þróuðum ríkjum eru um 20% þeirra einstaklinga með skerta starfsgetu útilokaðir frá jöfnum tækifærum á vinnumarkaði2. Þá virðist ekki skipta máli þótt einstaklingarnir séu með viðeigandi menntun og vilja til vinnu. Þrátt fyrir viðleitni ríkisstjórna og annarra hagsmunaaðila til að bæta atvinnustig þessa samfélagshóps er þátttaka þeirra á vinnumarkaði enn töluvert minni samanborið við hóp þeirra einstaklinga með fulla starfsgetu3.
Þegar einstaklingar fá tækifæri til að snúa aftur á vinnumarkaðinn styrkist ekki aðeins staða þeirra sjálfra heldur einnig samfélagsins í heild. Virk atvinnuþátttaka hefur jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og stuðlar að heilbrigðara og sterkara samfélagi.
VIRK hefur ítrekað leitað nýrra leiða til þess að hvetja fyrirtæki og stofnanir til samfélagslegrar ábyrgðar meðal annars með góðu samstarfi við atvinnutengingu VIRK. Samstarfið leiðir oft af sér að einstaklingar með ólíka starfsgetu fá tækifæri til þess að starfa í mismiklu starfshlutfalli á almennum vinnumarkaði.
Árið 2023 veitti VIRK í fyrsta skipti viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki til fyrirtækja og stofnana sem sýndu samfélagslega ábyrgð og voru í sérstaklega góðu samstarfi við atvinnutengingu VIRK. Þessi viðurkenning er ákveðinn gæðastimpill á ábyrgð og fyrirtækjamenningu þeirra sem hana hljóta. Í ár er þessi viðurkenning veitt í fjórða sinn, í þetta sinn til 12 fyrirtækja og stofnana eins og sjá má hér.
Samantekt
Atvinnutenging VIRK mun halda áfram að efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir en sú vinna er lykilþáttur í að auðvelda þjónustuþegum að komast aftur inn á vinnumarkað. Með virku samstarfi skapast fleiri atvinnutækifæri, þá sérstaklega hlutastörf sem henta þörfum margra þjónustuþega VIRK.
Tengsl við atvinnulífið gerir jafnframt ráðningarferli skilvirkara og tryggir bæði stuðning og eftirfylgd inn í starf fyrir einstaklinga jafnt sem vinnustaði. Slíkt samstarf stuðlar einnig að aukinni þátttöku einstaklinga sem hafa ekki fulla getu til virkni á vinnumarkaði og skilar auknum samfélagslegum ávinningi fyrir samfélagið í heild þar sem þekking og færni þessa hóps nýtist betur.
Í því samhengi gegna starfsmenn atvinnutengingar lykilhlutverki. Þeir eru brúin milli einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref aftur inn á vinnumarkaðinn og þeirra fyrirtækja sem eru tilbúin að opna dyr og skapa ný tækifæri.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.
Heimildir
- Félags- og húsnæðismálaráðuneytið. (2024, 22. júní). Öll með: Frumvarp um breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykkt á Alþingi. Stjórnarráðið. https://www.stjornarradid.is/efst-abaugi/frettir/stok-frett/2024/06/22/ Oll-med-Frumvarp-um-breytingara-ororkulifeyriskerfinu-samthykkt-aAlthingi/
- Tompa E. 2023. Ávinningur af þátttöku allra á vinnumarkaði fangaður: Leiðin fram á við fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu og vinnumarkaður 21. aldarinnar. Ársrit VIRK. 2023; bls 35-39.
- Turcotte, M. 2014. Persons with disabilities and employment, in Insights on Canadian Society: Statistics Canada Catalogue no. 75- 006- X2014001. Downloaded from https://www150. statcan.gc.ca/n1/en/ catalogue/75-006-X