Fara í efni

Aldrei fleiri nýir og útskrifaðir

Til baka

Aldrei fleiri nýir og útskrifaðir

2.465 voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin og höfðu þá alls 14.663 leitað til VIRK frá því að fyrsti einstaklingurinn hóf starfsendurhæfingu á vegum starfsendurhæfingarsjóðsins haustið 2009.

1.965 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2018 sem er aukning um 5.8% á milli ára og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. 1.367 einstaklingar luku starfsendurhæfingarþjónustu frá VIRK árið 2018 sem er met í útskrifuðum einstaklingum.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem hún hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. 8.716 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og tæplega 80% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Þennan árangur hafa utanaðkomandi aðilar staðfest en niðurstöður athugunar Talnakönnunar  sýna að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2017 hafi numið um 14,1 miljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 12,6 milljónum.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánar upplýsingar um sögu VIRK, árangur og starfsemi.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband