Fara í efni

30 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Til baka

30 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Niðurstöður skýrslu sem Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK sýna að 30 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2021, reiknað á föstu verðlagi ársins 2021, en rekstrarkostnaður VIRK nam 3,7 milljörðum sama ár.

Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK og nam hann 16,2 milljónum króna á árinu 2021, einnig reiknað á föstu verðlagi.


Þetta er níunda árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og ávinning af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013-2021 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun.

Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.

Sjá nánar:
Árangur VIRK
Skýrslur Talnakönnunar
81% telja að VIRK hafi mikla þýðingu
77% jákvæðir gagnvart VIRK
VIRK í tölum


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband