Fara í efni

77% jákvæðir gagnvart VIRK

Til baka

77% jákvæðir gagnvart VIRK

Nær átta af hverjum tíu landsmanna eru jákvæðir gagnvart VIRK Starfsendurhæfingarsjóði samkvæmt viðhorfskönnun Maskínu sem gerð var í febrúar.

Samtals 77% svarenda segjast vera mjög eða frekar jákvæð(ur) gagnvart VIRK, 20% svara í meðallagi og 3% svarenda eru neikvæðir gagnvart VIRK. 

Þá segjast 57% svarenda þekkja einhvern sem hefur leitað til VIRK og 8% þeirra hafa sjálfir leitað til VIRK.

Viðhorfskönnunin er nýjasti liðurinn í viðleitni til þess að meta þjónustu VIRK og árangur og nýtist til þess að þróa starfsemina áfram. Hún er viðbót við þjónustukönnun VIRK, við árlegt mat Talnakönnunar á ávinningi af starfsemi VIRK og öðrum árangursmælikvörðum sem finna má samantekna á vefsíðu VIRK.  

Viðhorfskönnunin var gerð af Maskínu fyrir VIRK dagana 7. til 23. febrúar 2022. Viðhorfskönnunn fór fram á netinu og var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr þjóðskrá. 

Svarendur voru 1.897 talsins á öllu landinu, 18 ára og eldri. Gögnin voru vegin til samræmis við tölur Hagstofunnar þannig að hópurinn sem svarar endurspeglar þjóðina út frá kyni, aldri og búsetu. 


Fréttir

29.01.2024
23.01.2024

Hafa samband