Fara í efni

Þróun forvarnaþjónustu - VIRK í starfi!

Til baka
Starfsfólk forvarnasviðs VIRK; Sigurður Hannes Ásgeirsson, Guðrún Rakel Eiríksdóttir, Guðbjörg Hulda…
Starfsfólk forvarnasviðs VIRK; Sigurður Hannes Ásgeirsson, Guðrún Rakel Eiríksdóttir, Guðbjörg Hulda Einarsdóttir, Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir og Fríða Kjartansdóttir (Mynd: Eggert Jóhannesson/MBL)

Þróun forvarnaþjónustu - VIRK í starfi!

Guðrún Rakel Eiríksdóttir sviðsstjóri forvarna

Í byrjun árs 2025 var stigið mikilvægt skref með innleiðingu nýrrar forvarnaþjónustu VIRK sem miðar að því styðja einstaklinga í starfi sem eru farnir að finna fyrir heilsutengdum askorunum. Þjónustan er liður í aukinni áherslu á snemmtæka íhlutun með það að markmiði að efla vinnugetu, bæta líðan og koma í veg fyrir mögulegt brotthvarf af vinnumarkaði. Ákvörðun um að hrinda verkefninu í framkvæmd var tekin í kjölfar stefnumótunarvinnu þar sem lögð var sérstök áhersla á að efla forvarnir innan VIRK.

Flest þekkjum við þá tilfinningu að eiga erfiðara með að ráða við vinnuna en áður. Verkefni sem áður gengu vel fara að krefjast meiri orku og einbeitingar og að líðan eða líkamleg geta hafi breyst smám saman. Oft er ekki um að ræða skyndileg veikindi heldur hægfara þróun sem á sér stað yfir lengri tíma. Spurningin er því ekki endilega hvort slíkt geti gerst, heldur hvort brugðist sé við í tíma.

Margir vinnustaðir bjóða upp á stuðning fyrir starfsfólk sem upplifir vanlíðan eða aukna erfiðleika í starfi og mikilvægt er að nýta þann stuðning þegar hann er til staðar. Í sumum tilvikum nægir sá stuðningur þó ekki og þá er þörf á frekari aðstoð til að styðja við vinnugetu og halda fólki í starfi. Í slíkum tilvikum getur sú reynsla og þekking sem skapast hefur innan VIRK nýst með jákvæðum hætti.

Einstaklingsþjónustan VIRK í starfi er ætluð þeim sem glíma við byrjandi heilsutengda erfiðleika og minnkandi vinnugetu án þess að vera á þeim stað að þurfa að fara í veikindaleyfi eða starfsendurhæfingu.

Erlendar rannsóknir eru samhljóma um mikilvægi forvarna þegar kemur að heilsu og þátttöku fólks á vinnumarkaði. Snemmtæk íhlutun getur komið í veg fyrir langvarandi veikindi, dregið úr líkum á brotthvarfi af vinnumarkaði og þannig skilað verulegum samfélags- og fjárhagslegum ávinningi. Þrátt fyrir þessa þekkingu er algengt að ekki sé brugðist við ástandinu fyrr en einstaklingar geta ekki lengur sinnt starfi sínu.

Í byrjun síðasta árs hóf VIRK að bjóða upp á nýjar leiðir í forvarnaþjónustu til að aðstoða einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir á vinnumarkaði. Markmiðið er að efla bæði starfsfólk og stjórnendur í starfi. Um er að ræða þrepaskipta nálgun og því hægt að nálgast stuðning á mismunandi stigum eftir þörfum.

Þrepaskipt þjónusta – frá fræðslu til einstaklingsþjónustu

Fyrsta skrefið felst í að nýta sér vefsíðuna velvirk.is þar sem finna má fjölbreytt fræðsluefni um heilsu og gagnlegt efni fyrir vinnustaði. Þar má einnig finna Velvirkskalann og Velvirk gervigreindarspjallið. Þessi verkfæri eru hönnuð með það að leiðarljósi að auðvelda einstaklingum og vinnustöðum að taka stöðuna og ráðast í úrbætur sem byggja m.a. á gagnreyndum ráðum sérfræðinga VIRK. Þessi fræðsla og verkfæri eru mikilvægur hluti þjónustunnar og fyrir marga er það fyrsta skrefið í átt að bættri líðan.

Fyrsta skrefið felst í að nýta sér vefsíðuna velvirk.is.

Ef þörf er á frekari stuðningi er næsta skref að hafa samband við ráðgjafa í gegnum fyrirspurnargátt á velvirk.is. Þar geta einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir sent inn fyrirspurn. Flestar fyrirspurnir eru leystar með símtali frá forvarnaráðgjafa og leiða því ekki endilega til frekari þjónustu á forvarnasviði.

Fyrirspurnir til forvarnasviðs hafa töluvert aukist, sérstaklega á fyrstu mánuðum ársins. Um 60% fyrirspurna bárust frá einstaklingum sem leituðu eftir aðstoð eða ráðleggingum. Fyrirspurnir frá atvinnurekendum námu um fjórðungi allra erinda og beiðnir um kynningar til fyrirtækja voru um 10% fyrirspurna. Þetta endurspeglar vaxandi áhuga á fræðslu og forvörnum og í því samhengi hefur verið lögð sérstök áhersla á að kynna þjónustuna á vinnustöðum.

Úrvinnsla fyrirspurna er mikilvægur hluti forvarnaþjónustu hjá VIRK. Þar er hægt að svara erindum frá atvinnurekendum og fagfólki auk þess að veita ráðgjöf og leiðbeiningar til einstaklinga án þess að þeir komi formlega í þjónustu. Ráðgjafi metur þá ásamt einstaklingnum hvort þörf sé á einstaklingsþjónustunni „VIRK í starfi“. Í því samhengi er mikilvægt að kanna hvort að öll önnur úrræði, svo sem stuðningur og þjónusta á vinnustað, hafi þá þegar verið nýtt eins og kostur er.

Einstaklingar geta sjálfir sótt um þjónustuna VIRK í starfi í gegnum velvirk.is og því ekki gerð krafa um tilvísun úr heilbrigðiskerfinu. Þetta aukna aðgengi einfaldar ferlið, dregur úr bið og gerir einstaklingum kleift að sækja sér stuðning á eigin forsendum þegar fyrstu merki um erfiðleika koma fram.

Stuðningur í starfi

Einstaklingsþjónustan veitir aðgang að forvarnaráðgjafa sem heldur utan um málið frá fyrsta degi, styður við mótun áætlunar og metur þörf á frekari úrræðum sem hægt er að stunda meðfram vinnu. Þannig geta einstaklingar fengið viðeigandi stuðning án þess að þurfa að hverfa frá starfi.

Einstaklingsþjónustan VIRK í starfi er ætluð þeim sem glíma við byrjandi heilsutengda erfiðleika og minnkandi vinnugetu án þess að vera á þeim stað að þurfa að fara í veikindaleyfi eða starfsendurhæfingu.

Engin tvö mál eru eins og því er þjónustan alltaf sniðin að aðstæðum og þeim vanda sem hver og einn glímir við. Unnið er með stöðu einstaklingsins út frá vinnuaðstæðum og heilsu. Valin eru markviss og viðeigandi úrræði sem styðja við einstaklinginn án þess að íþyngja eða raska atvinnuþátttöku. Lögð er áhersla á að úrræðin falli vel að vinnu og daglegu lífi. Þegar við á er jafnframt mikilvægt að vinna málin í góðri samvinnu við vinnustaðinn enda getur vinnuumhverfið skipt miklu máli.

Þjónustan er að jafnaði tímabundin og stendur yfir í styttri tíma en almennt gengur og gerist í starfsendurhæfingu. Stuðningur og eftirfylgd í formi viðtala og símtala er veittur af forvarnaráðgjöfum á tímabilinu. Úrræðin eru jafnframt léttvægari þar sem ekki er um að ræða skilgreindan heilsubrest heldur snemmtækan stuðning sem miðar að því að styrkja bjargráð, draga úr álagi og fyrirbyggja frekara heilsutengt bakslag.

Góður árangur

Einstaklingsþjónusta VIRK í starfi hefur verið starfrækt í rúmlega eitt ár, að hluta til sem þróunar- og tilraunaverkefni innan forvarnasviðs. Náðst hefur góður árangur hjá þeim sem hafa nú farið gegnum þjónustuna. Algengt er að fólk lýsi aukinni vinnugetu, bættri andlegri og líkamlegri líðan, sem og aukinni virkni í lífi og starfi. Þessar niðurstöður benda til þess að snemmtæk íhlutun og markviss stuðningur geti haft veruleg áhrif á getu fólks til að takast á við áskoranir og viðhalda þátttöku á vinnumarkaði.

Við útskrift úr þjónustunni hafa allflestir haldist í starfi og lokið þjónustu í sama starfshlutfalli eða alls um 95% þátttakenda. 

Sá hópur sem hefur nýtt sér þjónustuna er fjölbreyttur. Um 79% þjónustuþega hafa verið konur og 21% karlar, og meðalaldur þeirra er 46 ár. Meirihluti þátttakenda hefur leitað sjálfur eftir þjónustu, sem endurspeglar aukna vitund um mikilvægi forvarna og eigin ábyrgð á heilsu og vellíðan. Einnig hafa borist tilvísanir frá fagfólki innan heilbrigðiskerfisins sem og ráðgjöfum og sérfræðingum innan starfsendurhæfingar VIRK.

Við útskrift úr þjónustunni hafa allflestir haldist í starfi og lokið þjónustu í sama starfshlutfalli eða alls um 95% þátttakenda. Hjá um 5% kom í ljós að þörfin var meiri en hægt var að mæta innan ramma forvarnaþjónustunnar og var starfsendurhæfing þá talin viðeigandi þjónusta.

Þjónustutíminn er talsvert styttri en í starfsendurhæfingu eða að jafnaði um þrír mánuðir og að hámarki sex mánuðir. Reynslan hefur sýnt að meðaltími þeirra sem lokið hafa þjónustu er í kringum fimm mánuðir. Því er mikilvægt að velja vel þau úrræði sem einstaklingum eru boðin, þannig að þau taki markvisst á þeim áskorunum sem viðkomandi stendur frammi fyrir.

Snemmtækur stuðningur skiptir sköpum

Það hefur komið vel í ljós að stuðningur forvarnaráðgjafa er gríðarlega mikilvægur hluti af þjónustunni. Algeng úrræði eru námskeið og hreyfiúrræði, og í sumum tilfellum sérhæfð þjónusta, t.d. hjá iðjuþjálfa eða vinnusálfræðingi. Þetta eru að jafnaði mun færri úrræði en í starfsendurhæfingu enda ætti vandi einstaklinga ekki að vera þess eðlis að þörf sé á umfangsmikilli þjónustu. Nú þegar hafa verið þróuð úrræði sem eru sérstaklega sniðin að þessum hópi, í samráði við fagfólk og úrræðaaðila. Í framtíðinni er stefnt að frekari þróun úrræða og námskeiða í samstarfi við fagaðila.

Það hefur verið virkilega ánægjulegt hversu vel hefur gengið að hjálpa fólki sem er enn í vinnu en farið að upplifa erfiðleika. Þá getur verið mun auðveldara að grípa inn í aðstæðurnar, einstaklingar eru oft fljótir að tileinka sér bjargráð og eiga auðveldara með að vinna með ákveðna lífstílsþætti. Snemmtækur stuðningur skiptir því sköpum!

Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.


Fréttir

28.04.2026
22.05.2026

Hafa samband