Fara í efni

Aldrei fleiri hjá VIRK

Til baka

Aldrei fleiri hjá VIRK

2.614 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin, 6% fleiri en fyrir ári síðan.

2.062 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2019 og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. Um 5% aukningu á milli ára er að ræða sem er hlutfallslega minni aukning en undanfarin tvö ár. 1.420 einstaklingar útskrifuðust frá VIRK árið 2019 sem er einnig met. 

Um áramótin höfðu 17.188 hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK frá því að fyrsti einstaklingurinn hóf starfsendurhæfingu á vegum starfsendurhæfingarsjóðsins haustið 2009. 10.122 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og tæplega 80% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem starfsemin hefur á undanförnum áratug skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. Þennan árangur hafa utanaðkomandi aðilar staðfest, niðurstöður Talnakönnunar sýna t.d. að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2018 nam um 17,2 miljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 12,7 milljónum það ár.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánar upplýsingar um sögu VIRK, árangur og starfsemi.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband