Fara í efni

VIRK fyrirmyndarfyrirtæki

Til baka

VIRK fyrirmyndarfyrirtæki

VIRK er eitt 15 fyrirtækja sem teljast til fyrirmyndar í flokki meðalstórra fyrirtækja 2019.

Fyrirtæki ársins 2019 voru valin nýverið samkvæmt niðurstöðum könnunar sem VR stendur fyrir meðal þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði ár hvert.

Markmið könnunarinnar er að afla upplýsinga um viðhorf starfsmanna til síns vinnustaðar en könnunin er einnig vettvangur starfsmannanna til að segja stjórnendum hvað er vel gert og hvað mætti betur fara.

Fyrirtækin sem eru í fimmtán efstu sætunum í hverjum flokki í könnuninni teljast til fyrirmyndar og fá viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2019. VIRK er eitt þessara fyrirmyndarfyrirtækja, er í 6. sæti í flokki meðalstórra fyrirtækja og stekkur þangað úr 13. sætinu í könnuninni 2018.

Listinn yfir fyrirmyndarfyrirtæki VR 2019.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband