Fara í efni

Velheppnaður fræðsludagur starfsendurhæfingarstöðva

Til baka

Velheppnaður fræðsludagur starfsendurhæfingarstöðva

Úrræða og þjónustusvið VIRK stóð fyrir fræðsludegi fyrir starfsfólk starfsendurhæfingarstöðva föstudaginn 8. maí sem var velsóttur og heppnaðist mjög vel.

Fjölbreytt erindi voru flutt og gott faglegt samtal átti sér stað um starfsendurhæfingu milli sérfræðinga VIRK og starfsfólks starfsendurhæfingarstöðvanna sem gegna mjög mikilvægum hlutverki í starfsendurhæfingu þjónustuþega VIRK.

Dagskrá fræðsludagsins var fjölbreytt og fróðleg:

Kröfur í atvinnutengdri starfsendurhæfingu og helstu tölur
Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK

Fagið starfsendurhæfing
Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri VIRK

Samstarf VIRK og starfsendurhæfingarstöðva
Íris Judith Svavarsdóttir; teymisstjóri í Mat og rýn hjá VIRK

Einhverfir í starfsendurhæfingu
Elín Steinarsdóttir og Guðlaug Friðgeirsdóttirm sérfræðingar í Mat og rýni hjá VIRK

Áfallamál í starfsendurhæfingu
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sérfræðingur í Mat og rýni hjá VIRK

Samstarf ráðgjafa VIRK og starfsendurhæfingarstöðva
Jónína Waagfjord, sviðsstjóri Ráðgjöf og atvinnutenging hjá VIRK

IPS hjá VIRK og samstarfsverkefni við stöðvar
Elva Dögg Baldvinsdóttir hópstjóri Ráðgjöf og atvinnutenging

IPS innleiðing hjá Samvinnu í Reykjanesbæ
Gunnrún Theodórsdóttir, ráðgjafi hjá Samvinnu

Hindranir/áskoranir í innleiðingu IPS á starfsendurhæfingarstöðvum
Fulltrúar frá starfsendurhæfingarstöðvum

VIRK í starfi
Ingibjörg Eydís Ingimarsdóttir, forvarnaráðgjafi hjá VIRK

Samantekt og umræður um framtíðina
Berglind Stefánsdóttir, rannsóknar og þróunarstjóri VIRK


Fréttir

28.04.2026
12.05.2026

Hafa samband