Úrræði VIRK – Einstaklingsmiðuð þjónusta og öflugt samstarf
Úrræði VIRK – Einstaklingsmiðuð þjónusta og öflugt samstarf
Ásta Sölvadóttir sviðsstjóri úrræða og þjónustu
Þjónusta VIRK í starfsendurhæfingu byggir á einstaklingsmiðaðri, þverfaglegri og atvinnumiðaðri nálgun þar sem markmiðið er að styðja fólk til snemmbærrar og áranngursríkrar endurkomu til vinnu.
Samvinna við lykilaðila á borð við stéttarfélög, atvinnurekendur, lífeyrissjóði, heilbrigðiskerfi og aðra aðila velferðarkerfisins tryggir að einstaklingar fái viðeigandi þjónustu á réttum tíma. Öflugt samstarf fagaðila, stuðningskerfa og atvinnulífs er þannig ein af stoðum úrræðakerfis VIRK og lykilforsenda þess að auka möguleika fólks á vinnumarkaði.
Stöðug þróun í takt við þarfir
Þjónusta VIRK er í stöðugri þróun og er í takt við þarfir samfélagsins hverju sinni. Því þurfa úrræðin sem boðið er upp á að endurspegla þarfir mismunandi hópa. Við þróun úrræða er líka horft til þess að heilsubrestur getur verið af ólíkum toga, bæði hvað varðar líkamlega og andlega heilsu, daglega virkni, þátttöku og umhverfisþætti svo dæmi séu nefnd. Þá þarf að meta árangur úrræða fyrir mismunandi hópa.
Framboð, þróun og val á úrræðum Úrræðaframboð VIRK byggir á markvissri þróunarvinnu og kerfisbundnu mati á þörfum einstaklinga í þjónustu. Úrræðateymi VIRK fer reglulega yfir þau úrræði sem eru í boði og metur hvort bæta þurfi við nýjum úrræðum eða aðlaga eldri, í nánu samstarfi við sérfræðinga á sviði starfsendurhæfingar, ráðgjafa og þjónustuaðila. VIRK er samkvæmt lögum heimilt að styðja við rannsóknir, þróun og uppbyggingu í atvinnutengdri starfsendurhæfingu og árlega eru veittir styrkir til þróunar nýrra úrræða. Fjölmörg árangursrík úrræði eiga rætur sínar að rekja til slíkra styrkja.
Starfsendurhæfing skilar mestum árangri þegar áhersla á atvinnuþátttöku er skýr í úrræðum.
Þegar upphafsmati á færni og hindrunum til atvinnuþátttöku er lokið, vinna ráðgjafi og einstaklingur markvisst að því að velja viðeigandi úrræði út frá niðurstöðum matsins. Lögð er áhersla á að ferlið sé einstaklingsmiðað og sérsniðið að hindrunum hvers og eins Í þessu gegna samstarfsaðilar VIRK lykilhlutverki þar sem úrræðin eru veitt hjá þeim.
Líkja má samstarfinu við öflugt tannhjól þar sem góð samskipti, traust og fagmennska knýja áfram stöðugar umbætur byggðar á gagnreyndum aðferðum með það að leiðarljósi að leiða einstaklinga með farsælum hætti inn á vinnumarkað. Miðlun upplýsinga um framgang starfsendurhæfingar fer fram í gegnum upplýsingakerfi VIRK, til dæmis í greinargerðum fagaðila sem hafa þann tilgang að veita upplýsingar um stöðu og frekari þjónustuþörf einstaklinga, í lokaskýrslum þjónustuaðila sem þeir skila í lok úrræða og skráningu mætinga í einstaklingstíma.
Þróun útgjalda og samstarfsaðilar
Kaup VIRK á úrræðum jukust lítillega milli ára og námu þau 2.225 milljónum króna á árinu 2025 eins og sjá má á mynd 1. Myndin sýnir þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu á föstu verðlagi. Á árinu voru 552 samstarfsaðilar með virka pöntun í upplýsingakerfi VIRK sem er örlítil fjölgun frá árinu á undan. Heildarfjöldi samstarfsaðila var 966 samanborið við 876 árið 2024.

Heildarfjöldi úrræða sem VIRK keypti af samstarfsaðilum voru samtals 1148. Þá var fjöldi pantana í upplýsingakerfi VIRK 29.450 samanborið við 25.500 árið á undan sem er rúmlega 15% fjölgun pantana milli ára. Fjölgunina má rekja til aukinnar aðsóknar í þjónustu VIRK.
Skipting útgjalda eftir úrræðaflokkum
Sálfræðingar eru sem fyrr fjölmennasti hópur samstarfsaðila en VIRK var í samstarfi við rúmlega 190 sálfræðinga eða fyrirtæki tengd sálfræðiþjónustu á árinu. Næst fjölmennasti hópur samstarfsaðila eru sjúkraþjálfarar, en rúmlega 130 aðilar voru með virka pöntun tengda sjúkraþjálfun. Þriðji fjölmennasti hópurinn meðal þjónustuaðila eru aðilar sem bjóða upp á heilsueflingu og líkamsrækt en 125 aðilar buðu upp á slíka þjónustu. Auk þess buðu rúmlega 50 þjónustuaðilar ýmis úrræði sem tengjast vinnu- og námsmiðaðri sjálfseflingu og markþjálfun.
Þeim þjónustuaðilum sem bjóða upp á ráðgjöf og þjónustu sem eykur daglega virkni og stuðla að félagslegri kjölfestu einstaklinga í starfsendurhæfingu hefur fjölgað talsvert á síðustu árum. Í dag er VIRK í samstarfi við rúmlega 50 fagaðila með heilbrigðismenntun sem sinna margskonar einstaklingsbundinni ráðgjöf til einstaklinga. Má þar nefna úrræði eins og iðjuþjálfun, félagsráðgjöf, fjölskylduráðgjöf, næringarráðgjöf og fíkniráðgjöf.
Þá býður fjölmennur hópur þjónustuaðila upp á ýmsa þjónustu sem snýr að aukinni hæfniþróun á vinnumarkaði en rúmlega 50 fræðslu- og símenntunaraðilar veittu ráðgjöf og fræðslu sem eykur möguleika á vinnumarkaði.
VIRK á í góðu samstarfi við starfsendurhæfingarstöðvar á öllum helstu þéttbýlisstöðum landsins. Þjónusta stöðvanna er heildstæð og byggir á faglegu þverfaglegu utanumhaldi þar sem unnið er með einstaklingum bæði í hóp og með einstaklingsviðtölum. Með skýrum ramma eins og daglegri mætingu, stundaskrá og hópefli er skapaður rammi sem styrkir rútínu, félagsfærni og trú á eigin getu. Markmiðið er að einstaklingar fari í vinnu eða nám og styrki stöðu sína gagnvart vinnumarkaði.

Mynd 2 sýnir hlutfallslega skiptingu útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum. Hæsti útgjaldaliðurinn er vegna kaupa á sérhæfðum starfsendurhæfingarúrræðum hjá starfsenduhæfingarstöðvum um land allt, um 44% útgjalda. 35% er varið til kaupa á sálfræðiþjónustu og úrræða á sviði sjálfseflingar. Úrræði tengd hreyfingu og sjúkraþjálfun nema samtals um 11% af heildarkostnaði við aðkeypta sérfræðiþjónustu og 9% er vegna annarrar ráðgjafar, námsúrræða og atvinnutengdra úrræða.
Endurskoðun og mat á úrræðum
Regluleg endurskoðun úrræða er mikilvæg til þess að tryggja að þjónustan sé í takt við raunverulegar þarfir og framvindu einstaklingsins, að gæði séu tryggð og úrræði séu nýtt á skynsamlegan hátt. Mikilvægt er að samstarfsaðilar VIRK fari reglulega yfir þau úrræði sem þeir bjóða VIRK, setji inn ný tímabil fyrir námskeið og loki úrræðum sem ekki er þörf á.
Í þessu samhengi skiptir líka máli að einstaklingar gefi sér tíma til þess að meta þau úrræði sem þeir fara í á vegum VIRK í lok hvers úrræðis. Þegar einstaklingar meta úrræði út frá gæðum fær VIRK bæði sterkara þjónustuframboð fyrir hvern og einn og betri þjónustu til lengri tíma, því endurgjöfin veitir tækifæri til umbóta og hefur áhrif á framboð þjónustu. Mat einstaklinga á þjónustu styrkir auk þess rödd þeirra og gerir úrræðin og þjónustu VIRK notendamiðaðri.
Innleiðing á nýju bókhaldskerfi
Unnið er að innleiðingu á nýju bókhaldskerfi hjá VIRK sem mun gera utanumhald og rekjanleika greiðslna til samstarfsaðila markvissari. Framvegis verður einungis tekið á móti rafrænum reikningum.
Til að tryggja rétta afgreiðslu reikninga er mikilvægt að búið sé að skrá mætingu í úrræðum (t.d. í einstaklingsúrræði, námskeið og hópmeðferðir) áður en reikningur er sendur, þannig að yfirlit úr upplýsingakerfinu geti fylgt sem fylgiskjal með reikningnum fyrir einn mánuð í senn. Starfsmenn VIRK aðstoða samstarfsaðila við þessar breytingar eftir þörfum. Nánari leiðbeiningar má finna í Handbók þjónustuaðila á vef VIRK.
Tækifæri fram á við
Starfsendurhæfing skilar mestum árangri þegar áhersla á atvinnuþátttöku er skýr í úrræðum. Framundan eru tækifæri til að efla enn frekar samvinnu VIRK, heilbrigðisþjónustu, TR, Vinnumálastofnunar, menntakerfis og atvinnulífs þannig að einstaklingar upplifi samfellt og samræmt ferli í stað aðskildra kerfa. Með skýrri tímalínu, einstaklingsáætlun og markvissri vinnu með styrkleika og veikleika hvers einstaklings má stytta fjarveru frá vinnumarkaði og efla stöðu fólks til lengri tíma.
Greinin birtist í ársriti VIRK 2026.