27.10.2008
Undirbúningur starfsemi
Undirbúningur að faglegri vinnu og uppbyggingu hjá Endurhæfingarsjóði hófst í ágúst 2008 og
þessa dagana er þessi vinna í fullum gangi.. Verið er að móta starf ráðgjafa hjá sjúkrasjóðum stéttarfélagana,
safna upplýsingum og vinna í mótun gátlista og matskerfa í samvinnu við fleiri aðila.
Starfsmenn Endurhæfingarsjóðs hafa einnig lagt áherslu á að kynna sér starfsemi
sjúkrasjóða stéttarfélaga og funda með væntanlegum samstarfsaðilum m.a. innan stéttarfélaga og lífeyrissjóða.
Mikilvægur þáttur í undirbúningsferlinu er einnig upplýsingasöfnun. Verið er að safna saman
upplýsingum um endurhæfingarúrræði um allt land og einnig eru starfsmenn sjóðsins að kynna sér þær leiðir og þær
aðferðir sem notaðar eru í starfsendurhæfingu t.d. á hinum Norðurlöndunum.