Fara í efni

VIRK styrkir virkniúrræði

Til baka

VIRK styrkir virkniúrræði

Framkvæmdastjórn VIRK hefur ákveðið að veita í fyrsta sinn í haust styrki til virkniúrræða sem styðja við og auka árangur í starfsendurhæfingu. Markmið VIRK með styrkveitingunum til virkniúrræðanna er að stuðla að samstarfi við aðila sem veita opið og gjaldfrjálst aðgengi að þjónustu fyrir einstaklinga sem glíma við heilsubrest sem hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra. Umsóknarfrestur rennur út 15. ágúst.

Styrkirnir til virkniúræðanna bætast við styrki sem VIRK veitir til rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna en VIRK er heimilt samkvæmt lögum 60/2012 að styrkja og stuðla með öðrum hætti að rannsóknum, þróun og uppbyggingu í atvinnutengdri starfsendurhæfingu m.a. með styrkveitingum.

Framkvæmdastjórn VIRK úthlutar styrkjunum tvisvar á ári í þessu skyni og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum fyrir 15. janúar eða 15. ágúst ár hver. Ákvarðanir um styrkveitingar eru teknar í framhaldinum af framkvæmdastjórn VIRK, í mars og október, að fenginni umsögn frá sérfræðingum sjóðsins.

Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir á styrkjum til VIRK og umsóknareyðublöð má sjá hér.


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband