Fara í efni

Styrkir VIRK 2021

Til baka

Styrkir VIRK 2021

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki sem veittir verða árið 2021 til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi.

VIRK er heimilt samkvæmt lögum að styrkja og stuðla með öðrum hætti að rannsóknum, þróun og uppbyggingu í atvinnutengdri starfsendurhæfingu. Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum 15. febrúar n.k. inn á netfangið styrkir@virk.is.

Sérstaklega verður horft til verkefna og/eða úrræða sem sniðin eru að þörfum einstaklinga af erlendum uppruna í styrkveitingum VIRK árið 2021.

Aðeins umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK eru teknar til greina. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna hér.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021.

Open for grant applications

VIRK Vocational Rehabilitation Fund has started accepting grant applications for projects that will increase the diversity and availability of interventions in vocational rehabilitation and grants for research projects that promote development and greater general knowledge about vocational rehabilitation in Iceland.

Grants are offered once a year for activity projects, research projects and development projects and grant applications must be received by VIRK by 15. of February via the e-mail address styrkir@virk.is

This year VIRK will pay special attention to applications for projects and/or interventions that are tailored to the needs of individuals of foreign origin.

Only applications that meet all regulations set forth by VIRK will be accepted. Further information regarding the application and about olicies and rules as well as the application form can be found on VIRK´s web page here (it can be translated using the Translation button on the top right of the page).

The application deadline is end of day February 15th, 2021.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband