Rafrænt bókhald hjá VIRK
Til baka
31.03.2026
Rafrænt bókhald hjá VIRK
Frá og með 1. apríl 2026 mun VIRK eingöngu vera með rafrænt bókhald. Frá og með þeim degi mun VIRK einungis taka við rafrænum reikningum vegna kaupa á vöru og þjónustu.
Aðilar sem ekki senda reikninga beint úr sölukerfi sínu geta sent rafrænan reikning til VIRK í gegnum Skúffuna. Skúffan er gátt sem hentar vel fyrir einyrkja og smærri fyrirtæki til að koma reikningum á rafrænt form.
Allar leiðbeiningar og tilvísanir má sjá í innsendingarforminu á Skúffunni sem finna má hér.