Fara í efni

Metaðsókn hjá VIRK

Til baka

Metaðsókn hjá VIRK

2.576 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu hjá VIRK á árinu 2025, 205 fleiri en árið áður, sem er 8,6% fjölgun. Um metaðsókn að þjónustu VIRK er að ræða, aldrei hafa fleiri hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK á einu ári. Síðustu þrjá mánuði 2025 bárust 27% fleiri beiðnir um starfsendurhæfingu til VIRK en síðustu þrjá mánuði fyrra árs.

2.095 þjónustuþegar útskrifuðust frá VIRK á nýliðnu ári, 196 fleiri en árið 2024 eða 9,3%. 80% þeirra sem útskrifast hafa frá VIRK frá upphafi eru virkir á vinnumarkaði við útskrift; þ.e. í vinnu, í atvinnuleit eða lánshæfu námi.

2.984 einstaklingar voru í þjónustu hjá VIRK um áramótin, 7,1% fleiri en um síðustu áramót. Frá 2008 þá hafa tæplega 27.000 einstaklingar hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK og sum oftar en einu sinni. Þannig eru skráðir rúmlega 31.000 starfsendurhæfingarferlar í upplýsingakerfi VIRK.

Þjónustukannanir VIRK sýna að þjónustuþegar eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Sjá nánar í VIRK í tölum og Árangur VIRK.


Fréttir

27.01.2026
02.01.2026

Hafa samband