Fara í efni

Kulnun - Hvað höfum við lært sem nýtist okkur nú?

Til baka

Kulnun - Hvað höfum við lært sem nýtist okkur nú?

VIRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins buðu upp á eftirmiðdagsfund með Christinu Maslach, prófessor við Berkleyháskóla í Kaliforníu, á netinu þriðjudaginn 26. maí. Linda Bára Lýðsdóttir, doktor í sálfræði og sviðsstjóri hjá VIRK, fór yfir stöðuna á Íslandi í byrjun fundarins. Upptöku af streyminu af fundinum má sjá hér.

Dr. Christina Maslach er bandarískur sálfræðingur og prófessor (emerita) í sálfræði við Berkeley háskóla í Kaliforníu. Hún hefur unnið að rannsóknum á ýmsum sviðum innan félags- og heilsusálfræði en er þekktust fyrir að vera brautryðjandi í rannsóknum á vinnutengdri kulnun. Hún er meðhöfundur þess mælitækis sem mest er notað á sviði kulnunar Maslach Burnout Inventory (MBI), en það er til í fimm útgáfum sem henta mismunandi starfsstéttum.

Maslach hefur skrifað fjölmargar greinar og bækur um kulnun og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) notar skilgreiningu á kulnun í flokkunarkerfinu ICD-11 sem er í samræmi við skilgreiningu Maslach. Í nýjasta ársriti VIRK má finna grein eftir Dr. Maslach „Að finna lausnir á kulnunarvandanum“.

Eftirmiðdagsfundinum var streymt á vefsíðum stofnanna þriggja. Áhorfendum gafst kostur á að senda inn fyrirspurnir með tölvupósti til Eysteins Eyjólfssonar fundarstjóra sem bornar voru upp undir lok fundar. 

Eftirmiðdagsfundurinn 26. maí var fimmti fundurinn í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum. Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband