Fara í efni

14 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK 2017

Til baka

14 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK 2017

14,1 milljarða heildarávinningur var af starfsemi VIRK árið 2017og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling var 12,6 milljónir króna samkvæmt nýrri skýrslu Talnakönnunar. Bæði heildarávinningurinn og ávinningur samfélagsins af virkni útskrifaðra einstaklinga eykst á milli ára.

Niðurstöður skýrslu sem Vigfús Ásgeirsson tryggingastærðfræðingur hjá Talnakönnun hf vann fyrir stjórn VIRK sýna að 14,1 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2017. Niðurstöður fyrri athugana Talnakönnunar sýndu að ávinningur af starfi VIRK var 13,6 milljarðar árið 2016, 13,8 milljarðar 2015, 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013. Í þessu samhengi má benda á að rekstrarkostnaður VIRK nam 2,8 milljörðum 2017 eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Ávinningurinn af virkni einstaklinga eykst

Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK og nam hann 12,6 milljónum króna á árinu 2017 og eykst aðeins frá fyrra ári þegar ávinningurinn af hverjum útskrifuðum einstaklingi nam 12,2 miljónum króna eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Þetta er fimmta árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013-2017 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.

Skýrsla Talnakönnunar verður meðal umfjöllunarefna á ársfundi VIRK 24. apríl og á 10 ára afmælisráðstefnu VIRK sem haldin verður í Hörpu föstudaginn 4. maí.

Skýrslu Talnakönnunar um ávinninginn af starfsemi VIRK 2017 má sjá hér og fyrri skýrslur má sjá hér.


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband